Telur sig hafa orðið af hagnaði upp á 1,9 milljarð vegna Borgunarsölu

Í stefnu Landsbankans vegna Borgunarmálsins kemur fram að bankinn telji sig hafa orðið af hagnaði upp á rúmlega 1,9 milljarð króna vegna þess. Heildarskaðabótakrafa ríkisbankans er þó ekki skilgreind í stefnunni.

Landsbankinn
Auglýsing

Lands­bank­inn telur að bank­inn hafi orðið af 1.930 millj­ónum króna hagn­aði þegar hann seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun til hóps einka­fjár­festa og stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins á 2,2 millj­arða króna. Því liggur fyrir að sá hagn­aður sem Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu rík­is­ins, telur sig hafa orðið af er rúm­lega 250 millj­ónum krónum lægri en heild­ar­sölu­verðið á hlutnum var haustið 2014, þegar hann var seldur bak við luktar dyr til hóps sem stóð að Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borg­un.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Íslands­banka. Ástæða þess er sú að Íslands­banki er stærsti eig­andi Borg­unar með 63,5 pró­sent eign­ar­hlut og því er Borgun talið sem dótt­ur­fé­lag bank­ans í upp­gjöri hans.

Stefndi og vill fá skaða­bætur

Lands­bank­inn stefndi Borg­un, Hauki Odds­syni, for­stjóra Borg­un­ar, BPS ehf. (fé­lag í eigu stjórn­enda og starfs­manna Borg­un­ar) og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun þann 12. jan­úar 2017. Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun og BPS eru þeir aðilar sem keyptu hlut Lands­bank­ans haustið 2014. Málið var höfðað til við­ur­kenn­ingar á skapa­bóta­skyldu þeirra vegna þess að Lands­bank­inn telur sig hafa orðið af sölu­hagn­aði við sölu á hlut sínum í Borgun þar sem að stefndu hefðu leynt upp­lýs­ingum um sölu á hlut í Visa Europe til Visa Inc. og þeim rétt­indum sem fylgdu hlutn­um. Þar munar mestu um hlut­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe, sem reynd­ist á end­anum vera 6,2 millj­arðar króna.

Auglýsing

Lands­bank­inn hefur ekki vilja gefa upp hver skaða­bótakrafa bank­ans vegna máls­ins sé. Í árs­reikn­ingi Íslands­banka segir að krafa Lands­bank­ans sé ekki skil­greind í stefn­unni. Þar komi hins vegar fram að bank­inn meti að hann hafi orðið af hagn­aði upp á 1.930 millj­ónir króna með því að selja hlut sinn í Borg­un. Um er að ræða 31,2 pró­sent þess hluta af 6,2 millj­örðum króna sem Borgun fékk í sinn hlut vegna söl­unnar á Visa Europe.

Millj­arða­tap bank­ans á söl­unni

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að ef Lands­bank­inn hefði haldið 31,2 pró­sent eign­ar­hlut sínum í Borg­un, í stað þess að selja hann haustið 2014, væri virði hlut­ar­ins að minnsta kosti um 5,9 millj­arða króna virði, sam­kvæmt síð­asta verð­mati sem gert var á hlutn­um. Auk þess hefði bank­inn fengið rúm­lega 2,4 millj­arða króna greidda í arð. Sam­an­lagt hefði hlut­ur­inn því getað skilað bank­anum að minnsta kosti 8,3 millj­örðum króna ef hann hefði verið seldur nú og Lands­bank­inn notið síð­ustu þriggja arð­greiðslna sem greiddar hafa verið út úr Borg­un.

Þess í stað var hlut­ur­inn seldur á 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None