Flugvöllur í Vatnsmýri eins og „ef ég reyndi að troða mér í fermingarfötin“

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir næsta víst að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni fyrr eða síðar. Þegar það gerist þurfi að vera búið að gera áætlanir.

Logi Már Einarsson tók sæti á Alþingi eftir kosningarnar í haust. Hann hefur áður tekið þátt í bæjarmálum á Akureyri og starfað sem arkitekt.
Logi Már Einarsson tók sæti á Alþingi eftir kosningarnar í haust. Hann hefur áður tekið þátt í bæjarmálum á Akureyri og starfað sem arkitekt.
Auglýsing

Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Akur­eyr­ingur og arki­tekt, segir næsta víst að flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri muni hverfa þaðan fyrr eða síðar og að gera þurfi áætl­anir um hvernig hann eigi að fara. Ekki sé hægt að leyfa byggð­inni að þrýsta flug­vell­inum út án þess að búið sé að und­ir­búa fram­hald­ið.

Um­ræðan um flug­vall­ar­málin hefur á und­an­förnu færst frá því að snú­ast ein­göngu um veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri og yfir í aðrar hugs­an­legar lausnir við þeim vanda sem við blas­ir. Logi seg­ist hafa sjálfur tekið eftir þess­ari breyt­ingu á umræð­unni.

„Ég geng svo langt að segja að þeir sem vilja ekki neitt nema Vatns­mýr­ina eða dauða, þeir beri á end­anum ábyrgð á því þegar þessi þjón­usta skerð­is­t,“ segir Logi Már. „Vegna þess að ef að flug­völl­ur­inn fer til Kefla­víkur – vegna þess að hann fer fyrr eða síðar – án þess að það sé búið að gera ein­hverjar úrbætur á sam­göngum þar á milli þá erum við í hrylli­legri stöðu. Þá gætu sam­göngur með inn­an­lands­flugi lagst af.“

Auglýsing

Logi Már var gestur Aðfar­ar­inn­ar, þátts um skipu­lags­mál í Hlað­varpi Kjarn­ans í gær. Hann ræddi skipu­lags­mál á Akur­eyri og umræð­una um skipu­lags­mál og lands­byggð­ina í þætt­inum í til­efni þess að skipu­lags­yf­ir­völd á Akur­eyri lögðu fram nýtt aðal­skipu­lag á dög­unum þar sem áhersla er lögð á aukna þétt­ingu byggðar í bæn­um. Hægt er að hlusta á þátt­inn hér á vefn­um.

Logi Már hefur ára­langa reynslu í skipu­lags­­málum á Akur­eyri og bendir á að þrátt fyrir smæð sína, þarf höf­uð­­staður Norð­­ur­lands að fást við sömu áskor­­anir um sam­­göngur og þétt­ingu byggðar eins og flestar aðrar borgir í dag.

„Það er enn þá þannig,“ segir Logi Már þegar hann er spurður hvort Akur­eyr­ingar séu ekki flestir mót­fallnir því að Reykja­vík­ur­flug­völlur hverfi úr Vatns­mýr­inni.

Um flug­vall­ar­málið seg­ist hann vilja fá það besta fyrir lands­byggð­ina og Reykja­vík. Þeir hags­munir liggi ekki með flug­velli í Vatns­mýr­inni. „Ég er þeirrar skoð­unar að það verði að horfa til beggja aðila. Við getum fundið lausn sem er bæði betri fyrir lands­byggð­ar­fólk og höf­uð­borg­ina, það er að segja að borgin fái að byggj­ast upp á skyn­sam­legan hátt en að við á lands­byggð­inni höfum líka góðan og greiðan aðgang inn á höf­uð­borg­ar­svæð­ið.“

Logi Már bendir á að hér sé um tækni­lega lausn að ræða. „Stjórn­mála­menn eiga að skil­greina aðgengi, tíðni, verð og ann­að. Svo geta skipu­lags­fræð­ingar og verk­fræð­ingar og arki­tektar fundið lausn­ina. Þannig að ég held að það yrði betra fyrir okkur að fá flug­völl, kannski Hafn­ar­firði – í Hvassa­hraun­inu – sem gæti þá tengst milli­landa­flug­inu líka. Þá fengjum við fleiri ferða­menn norður líka þannig.“

„Það hafa allir aðilar í þessu máli sömu hags­muni og þeir liggja, held ég, ein­hvers staðar í mjög skömmu nágrenni við Reykja­vík. Flug­vellir – eins og aðrir hlutir – breyt­ast og stækka og þurfa meira pláss. Þetta svæði þarna verður á end­anum eins og ef ég færi að reyna að troða mér í ferm­ing­ar­föt­in.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None