Eignir Skúla í Subway kyrrsettar

Lögmaður Skúla og félags hans mótmælir kyrrsetningunni kröftuglega og segir að málinu verði vísað fyrir dóm.

Hæstiréttur
Auglýsing

Eignir í eigu Skúla Gunn­ars Sig­fús­son­ar, sem oft­ast er kenndur við Subway, hafa verið frystar sam­kvæmt ákvörðun Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar um, frá 19. júlí síð­ast­liðn­um. Þetta sést á gögnum um mál­ið, sem eru end­ur­rit úr gerð­ar­bók, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um. Lög­maður Skúla og félags hans, Sjö­stjörn­unn­ar, stað­festi að kyrr­setn­ingin hefði átt sér stað.

Kyrr­setn­ingin er gerð í fjórum fast­eign­um, á Sel­fossi, Sel­tjarn­ar­nesi og tveimur í Ölf­usi.

Það var Sveinn Andri Sveins­son hrl. skipta­stjóri í þrota­búi EK 1923, sem áður hét Egg­ert Krist­jáns­son hf. heild­verzl­un, sem gerði kröfu um kyrr­setn­ingu eign­anna.

Auglýsing

Erlendur Gísla­son hrl. lög­maður Skúla og félags hans, sem kyrr­setn­ingin bein­ist að, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í morgun að kyrr­setn­ing­unni verði mót­mælt fyrir dómi. Hann segir að það sé hans mat, og umbjóð­anda hans, að engin rök séu fyrir þeim ásök­unum sem kyrr­setn­ingin byggir á, og að um málið verði tek­ist fyrir dómi.

Sveinn Andri hefur þegar kært Skúla og Guð­mund Hjalta­son, fram­kvæmda­stjóra Sjö­stjörn­unnar ehf., til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir auðg­un­ar­brot. „Brot kærðu lýsa sér í því að þeir hafi með ólög­­mæt­um hætti til­­einkað sér fyr­ir hönd Sjö­­stjörn­unn­ar kr. 21.316.582 með því að láta starfs­­mann Íslands­­­banka þann 15. mars 2016 milli­­­færa þá fjár­­hæð af bund­inni banka­­bók í eigu EK yfir á reikn­ing Sjö­­stjörn­unn­­ar,“ seg­ir m.a. í kær­unni frá því í jan­ú­ar.

Sam­kvæmt end­ur­rit­inu úr gerð­ar­bók, er meðal ann­ars tek­ist á um hversu mikið eignir eru skuld­sett­ar, miðað við veð­hlut­fallsút­reikn­inga, en sam­kvæmt bók­færðu virði eigna og skulda, þá nemur veð­hlut­fallið 91 pró­sent á til­teknum eignum sem nefndar eru í kyrr­setn­ing­ar­beiðni. Lands­bank­inn er helsti lán­veit­and­inn, sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum sem koma fram í end­ur­rit­inu.

Guð­mundur mót­mælir því að þetta sé hið rétta hlut­fall, og segir mark­aðsvirði eigna vera 3,3 millj­arðar en ekki 1,8, eins bók­fært virði, sam­kvæmt sam­an­teknum árs­reikn­ingi fyrir síð­asta ár, ber með sér. 

Deilur vegna gjald­þrots EK 1923 hafa verið við­var­andi alveg frá því félagið var tekið til gjald­þrota­skipta á síð­asta ári, en Sveinn Andri skipta­stjóri telur að Skúli og félag hans hafi gætt sinna hags­muna á kostnað ann­arra kröfu­hafa, en því hefur verið mót­mælt kröft­ug­lega, eins og áður seg­ir. Ekki sér fyrir end­ann á þessum deil­um.

End­ur­rit úr gerð­ar­bók má sjá hér með­fylgj­andi, en þar eru helstu atriði þess­ara deilna rakin í nokkrum smá­at­rið­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent