Clinton fylltist viðbjóði þegar Trump elti hana í kappræðunum

„Back off, you creep“ eru orðin sem Clinton hefði viljað segja við Donald Trump í kappræðunum.

Auglýsing
Það þótti skrýtið þegar Donald Trump elti Hillary Clinton um sviðið í öðrum kappræðum þeirra í fyrra. Clinton lýsir tilfinningum sínum í nýrri bók.
Það þótti skrýtið þegar Donald Trump elti Hillary Clinton um sviðið í öðrum kappræðum þeirra í fyrra. Clinton lýsir tilfinningum sínum í nýrri bók.

Hill­ary Clint­on, fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi demókrata í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í fyrra, seg­ist hafa fyllst við­bjóði þegar Don­ald Trump stillti sér ítrekað upp fyrir aftan hana þegar hún svar­aði spurn­ingum í kapp­ræðum þeirra á milli í októ­ber í fyrra.

Hún greinir frá þessu í nýrri bók sem kemur út í næsta mán­uði. Í bók­inni, sem kall­ast What Happ­ened, fjallar Clinton um kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum gegn and­stæð­ingi sínum Don­ald Trump. Clinton tap­aði kosn­ing­unum jafn­vel þó hún hafi fengið fleiri atkvæði, en Trump hlaut fleiri kjör­menn.

Hljóð­brot úr bók­inni hafa verið birt á vef NBC-frétta­stof­unn­ar.

Í kapp­ræð­unum sátu fram­bjóð­endur fyrir svörum frá almenn­ingi úr sal. Um mun frjáls­ara fyr­ir­komu­lag var að ræða en í hinum kapp­ræð­unum sem þau Clinton og Trump háðu, og fram­bjóð­end­urnir gengu um sviðið og ávörp­uðu fyr­ir­spyrj­end­ur. Nokkrum sinnum á meðan Clinton hafði orðið virt­ist sem Trump elti hana og stillti sér óþægi­lega nálægt fyrir aftan hana. Clinton seg­ist hafa velt fyrir sér eftir á hvort hún hafi átt að snúa sér við og segja hon­um: „back up, you creep“.

Þetta voru aðrar kapp­ræður þeirra af þremur í kosn­inga­bar­átt­unni og Clinton mæld­ist með ágætt for­skot í skoð­ana­könn­un­um. Umræddar kapp­ræður fóru fram í Mis­so­uri 9. októ­ber í fyrra, aðeins tveimur dögum eftir að hljóð­upp­taka var gerð opin­ber þar sem Trump heyr­ist grobba sig af kyn­ferð­is­áreiti.

Auglýsing

„Þetta er ekki í lagi, hugs­aði ég,“ skrifar Clinton í bók­inni. „Þetta voru aðrar kapp­ræð­urnar og Don­ald Trump vofði yfir mér. Þetta var lítið svið og hvert sem ég gekk um það elti hann mig, starði á mig og gretti sig. Það var mjög óþægi­legt. Hann and­aði bók­staf­lega ofan í háls­málið á mér. Ég fyllt­ist við­bjóð­i,“ skrifar Clint­on.

„Þetta var þess konar augna­blik þar sem þú óskaðir þess að geta stöðvað sýn­ing­una og spurt alla sem horfðu: „Jæja, hvað myndir þú ger­a?“ Myndir þú halda ró þinni, halda áfram að brosa og sinna þínu eins og ef hann væri ekki ítrekað að ráð­ast að þínu per­sónu­lega rými? Eða myndir þú snúa þér við, horfast í haugi við hann og segja hátt og skýrt: Færðu þig, ógeð. Farðu í burtu frá mér. Ég veit að þú hefur gaman af því að kúga konur en þú kúgar mig ekki.“

Clinton seg­ist hafa valið fyrsta kost­inn. „Ég hélt ró minni, studd­ist þar við langa reynslu af því að eiga við erf­iða karla sem kapp­kosta við að koma mér úr jafn­væg­i,“ segir hún en veltir þó fyrir sér hvort hún hafi átt að velja seinni kost­inn. „Það hefði sann­ar­lega gert betra sjón­varp. Kannski treysti ég of mikið á reynslu mína af því að halda ró minni, bíta í tung­una og grafa negl­urnar í lóf­ana – á sama tíma brosa, stað­ráðin í að halda stilltu and­liti gagn­vart heim­in­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent