Opna vefsvæði þar sem hægt er að tilkynna um lögbrot á fjármálamarkaði

Fjármálaeftirlitið hefur opnað vefsvæði þar sem starfsmenn banka og annarra fjármálafyrirtækja geta tilkynnt um möguleg lögbrot sem þeir verða varir við í starfi sínu.

Ríkir
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur opnað vef­svæði þar sem hægt er að til­kynna stofn­un­inni um brot, mögu­leg brot eða til­raunar til brota á fjár­mála­mark­aði. Þeir sem starfa eða hafa starfað hjá eða fyrir eft­ir­lits­skylda aðila, t.d. stjórn­ar­menn, starfs­menn, end­ur­skoð­endur og ráð­gjaf­ar, og hafa vit­neskju um brot, mögu­leg brot og til­raunir til brota á lögum og stjórn­valds­fyr­ir­mælum eru hvattir til að senda Fjár­mála­eft­ir­lit­inu til­kynn­ingu. Æski­legt þykir að til­kynn­ing inni­haldi heiti þess fyr­ir­tækis sem hið meinta brot átti sér stað í, nöfn stjórn­ar­manna þess, starfs­manna og ann­arra sem eiga hlut að máli. Þá eiga gögn sem styðja við að brot hafi verið framin að fylgja með, séu þau til stað­ar.

Þeir sem til­kynna um meint brot munu njóta nafn­leyndar en að það gæti haft áhrif á trú­verð­ug­leika til­kynn­ingar og eft­ir­fylgni hennar ef ekki verður unnt að fá frek­ari upp­lýs­ingar og skýr­ingar frá þeim sem til­kynnti. Þetta kemur fram í frétt á vef eft­ir­lits­ins.

Þar segir enn fremur að allar til­kynn­ingar sem ber­ist Fjár­mála­eft­ir­lit­inu verði metnar og skoð­aðar með til­liti til þess hvort að til­efni sé til að fylgja þeim eftir með frek­ari athug­un. „Ákvörðun um hvort til­kynn­ingar leiði til frek­ari athug­unar er ávallt í hendi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þar sem Fjár­mála­eft­ir­litið er bundið ríkri þagn­ar­skyldu um sam­skipti sín við eft­ir­lits­skylda aðila eiga þeir sem til­kynna ekki rétt á upp­lýs­ingum um hvort stofn­unin hafi eða muni taka til­kynn­ing­una til frek­ari athug­un­ar.“

Auglýsing

Sam­kvæmt gild­andi lögum eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki að hafa ferla til að taka við og fylgja eftir til­kynn­ingum starfs­manna þeirra um brot, mögu­leg brot og til­raunir til brota á lögum og stjórn­valds­fyr­ir­mælum sem gilda um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins.

Starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja geta því valið milli þess að senda til­kynn­ingu beint til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eða til­kynnt um málið innan þess fjár­mála­fyr­ir­tækis sem þeir starfa hjá. Það fyr­ir­tæki á síðan að senda til­kynnt mál áfram til frek­ari rann­sóknar til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins ef til­efni er til.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent