Þjóðkirkjan auglýsir eftir samskiptastjóra

Þjóðkirkjan og Biskup Íslands auglýsa nú eftir verkefnisstjóra á sviði samskiptamála. Tæplega þrjú þúsund sögðu sig úr kirkjunni í fyrra.

7DM_4814_raw_1978.JPG
Auglýsing

Þjóð­kirkjan og Biskup Íslands aug­lýsa nú eftir verk­efn­is­stjóra á sviði sam­skipta­mála. Aug­lýs­ing­una má finna á vef­síð­unni storf.­is.

Þar kemur fram að verk­efn­is­stjór­inn beri ábyrgð á fram­kvæmd sam­skipta­stefnu þjóð­kirkj­unn­ar, mótun verk­ferla er verða upp­lýs­inga­miðlun bisk­ups­stofu og á vett­vangi stofn­ana kirkj­unnar svo og upp­bygg­ingu tengsla­nets. „Leitað er eftir ein­stak­lingi er býr yfir fram­úr­skar­andi sam­skipta­færni, ástríðu gagn­vart við­fangs­efn­inu, drif­krafti og ein­urð.“

Auglýsing Biskups ÍslandsStarfs­að­staða verk­efn­is­stjóra verður á bisk­ups­stofu en hann mun sjá um rit­stjórn vefja kirkj­unnar og ann­arra miðla bisk­ups­stofu, sam­skipti og þjón­ustu við fjöl­miðla, frétta­skrif, auk þess að sjá um sam­starf við starfs­fólk og leik­menn í kirkj­unni um efn­is­gerð og miðlun efn­is.

Auglýsing

Umsækj­endur skulu hafa háskóla­menntun sem nýt­ist í starfi eða yfir­grips­mikla reynslu af miðlun upp­lýs­inga. Menntun á sviði guð­fræði eða reynsla úr kirkju­starfi er tal­inn kost­ur.

Tæp­lega fjögur þús­und gengu úr Þjóð­kirkj­unni í fyrra

Síð­ustu ára­tugir hafa reynst kirkj­unni erf­iðir og mik­ill flótti verið frá henni, mikið til vegna hneyksl­is­mála sem henni hafa tengst.

Alls sögðu 2.477 sig úr þjóð­­kirkj­unni á síð­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2017. Á sama tíma­bili gengu 231 í hana. Því gengu 2.246 fleiri lands­­menn úr þjóð­­kirkj­unni en í hana á tíma­bil­inu. Þegar allt árið 2017 er skoðað kemur í ljós að 3.738 sögðu sig úr þjóð­­kirkj­unni, þar af 60 pró­­sent á síð­­­ustu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili gengu 719 manns í kirkj­una. Þegnum hennar fækk­­aði því um 3.019 á síð­­asta ári.

Frá árinu 2009 hefur fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­­kirkj­unni dreg­ist saman á hverju ein­asta ári. Í byrjun árs 2017 voru þeir 236.481 tals­ins, sem þýddi að undir 70 pró­­­sent þjóð­­­ar­innar væri í kirkj­unni.

Nú eru þeir 233.462 og fækk­­aði, líkt og áður sagði, um 3.019 á síð­­asta ári. Alls sögðu 3.738 manns sig úr kirkj­unni á árinu 2017.

Það er næst­­mesti fjöldi sem hefur sagt sig úr kirkj­unni á einu ári. Metið var sett á árinu 2010, þegar ásak­­anir um þöggun þjóð­­kirkj­unnar yfir meintum kyn­­ferð­is­­glæpum Ólafs Skúla­­son­­ar, fyrr­ver­andi bisk­­ups, voru settar fram. Þá fækk­­aði um 4.242 í þjóð­­kirkj­unni á einu ári.

Miðað við mann­­fjölda­­tölur í lok þriðja árs­fjórð­ungs síð­­asta árs eru nú 69 pró­­sent þjóð­­ar­innar í þjóð­­kirkj­unni.

Þeim íslensku rík­­­­­­is­­­­­­borg­­­­­­urum sem kusu að standa utan þjóð­­­­­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­­­­­­­­­ustu ald­­­­­­ar­­­­­­mót. Þeir eru nú yfir eitt hund­rað þús­und. Fjöldi þeirra hefur því rúm­­­lega þre­fald­­­ast.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent