Landaður afli 25 prósent minni núna en í mars í fyrra

Landaður afli íslenskra skipa í mars var 118.448 tonn sem er 25% minni afli en í mars 2018. Aflasamdrátturinn skýrist nær eingöngu af minni loðnuafla en engin loðna veiddist í mars samanborið við tæp 82 þúsund tonn í mars 2018.

7DM_0044_raw_2219.JPG
Auglýsing

Land­aður afli íslenskra skipa í mars var 118.448 tonn sem er 25 pró­sent minni afli en í mars 2018. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Aflasam­drátt­ur­inn skýrist nær ein­göngu af minni loðnu­afla en engin loðna veidd­ist í mars sam­an­borið við tæp 82 þús­und tonn í mars 2018.

Rúm­lega þre­földun í kolmunna­afla nær ekki að vega upp afla­brest­inn í loðnu en kolmunna­afli í mars var rúm 64 þús­und tonn. Botn­fisk­afli nam 52 þús­und tonnum í febr­úar og minnk­aði um 2 pró­sent miðað við sama mánuð 2018.

Auglýsing

Afli met­inn á föstu verð­lagi 15,6% minni

Heild­ar­afli á 12 mán­aða tíma­bili frá apríl 2018 til mars 2019 var tæp­lega 1.306 þús­und tonn sem er aukn­ing um 6 pró­sent miðað við sama tíma­bil ári fyrr. Aukn­ingin er vegna meiri botn- og flat­fisk­afla og sam­dráttur í upp­sjáv­ar­afla er minni en vænta má vegna meiri kolmunna­afla.

Afli í mars, met­inn á föstu verð­lagi, var 15,6 pró­sent minni en í mars 2018.

Beðið eftir loðnu í mars

Fram kom í frétt Kjarn­ans í byrjun mars síð­ast­lið­ins að hring­inn í kringum landið hefðu ell­efu fiski­­mjöls­verk­smiðjur og níu hrogna­vinnslur með alls um þús­und starfs­­menn beðið eftir loðnu.

Útflutn­ings­verð­­mæti loðnu nam 17,8 millj­­örðum króna í fyrra. Á þriðja árs­fjórð­ungi síð­­asta árs nam lands­fram­­leiðsla síð­­­ustu fjög­­urra árs­fjórð­unga 2.766 millj­­örðum króna og er því um að ræða um 0,6 pró­­sent af lands­fram­­leiðslu sem þjóð­­ar­­búið verður af, að öllu öðru óbreyttu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent