Formaður stjórnar: Illa vegið að mér og öðrum stjórnarmönnum

VR ákvað í kvöld að afturkalla umboð stjórnarmanna VR hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna.

VR - Kröfuganga 1. maí 2018
Auglýsing

„Ég und­ir­rit­aður Ólafur Reimar Gunn­ars­son stjórn­ar­maður í VR og nú frá­far­andi stjórn­ar­for­maður í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna (LV) til­nefndur af VR ­segi hér með af mér sem stjórn­ar­maður í VR og um leið segi ég mig frá öllum þeim trún­að­ar­störfum sem ég hef gegnt fyrir félagið und­an­farin ár.“

Svona hefst til­kynn­ingu frá frá­far­andi stjórn­ar­for­manni Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, Ólafi Reim­ari Gunn­ars­syni, en eins og greint var frá fyrr í kvöld, sam­þykkti full­trúa­ráð VR að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna.

Í til­kynn­ingu sinni segir Ólafur Reimar að illa sé vegið að honum og öðrum stjórn­ar­mönn­um, sem þurfi að gæta hags­muna allra sjóð­fé­laga í störfum sín­um. 

Auglýsing

„Ég hef í störfum mínum fyrir VR lagt mig fram um að sinna þeim af kost­gæfni og alúð og lagt mig fram um að starfa fyrir alla félags­menn og alla sjóð­fé­laga í LV.

Ég hef meðal ann­ars að fullu tekið þátt í því mikla verk­efni LV að draga veru­lega úr fjár­magns­kostn­aði heim­il­anna á und­an­förnum árum með því að sjóð­ur­inn hefur boðið sjóð­fé­lögum lán á sam­keppn­is­hæfum kjör­um. Þar hefur sjóð­ur­inn haft for­göngu um lækkun vaxta sem síð­ustu miss­erin hefur einkum komið fram á verð­tryggðum lánum með breyti­legum vöxt­um. Eins og auð­veld­lega má sjá á vef sjóðs­ins báru þessi lán 3,99% vexti í upp­hafi árs 2015, þeir hafa jafnt og þétt lækkað og eru nú 2,06%. Þetta er og hefur verið afar mik­il­væg kjara­bót fyrir félags­menn VR og sjóð­fé­laga í LV.

Á sama tíma hefur stjórn LV gætt þeirrar afdrátt­ar­lausu laga­legu og sið­ferð­is­legu skyldu sinnar að gæta hags­muna allra sjóð­fé­laga.

Á liðnum vetri var orðið ljóst, að það við­mið sem stjórn sjóðs­ins hafði á árum áður ákveðið að binda vexti þess­ara lána við var ekki lengur not­hæft og varð að finna nýtt sem upp­fyllti þau skil­yrði að vera almennt, end­ur­spegla vaxtaum­hverfi á mark­aði hér og vera tengt við áreið­an­leg við­mið á mark­aði þannig að ekki væri hætta á að vaxta­á­kvarð­anir tækju mið af ann­ar­legum sjón­ar­miðum eða hags­munum af neinu tagi. Þessi breyt­ing hafði í för með sér að breyti­legu vext­irnir hækka sem nemur 0,2 pró­sentu­stigum og eru eftir sem áður með lægstu vöxtum á íslenskum lána­mark­aði. Sé allt með talið, líka skil­yrði sem lán­takar þurfa að upp­fylla, hika ég ekki við að full­yrða að eftir þessa vaxta­breyt­ingu eru verð­tryggð lán LV með breyti­legum vöxtum eftir sem áður þau hag­stæð­ustu sem almenn­ingur á Íslandi á kost á að taka.

Í öllu þessu hefur stjórn LV unnið af fullum heil­indum og með hag allra sjóð­fé­laga að leið­ar­ljósi.

Ég tel því illa að mér og öðrum stjórn­ar­mönnum sjóðs­ins vegið að væna okkur um óheil­indi og bregð­ast við með svo harka­legum og ómál­efna­legum hætti sem for­maður VR og stjórn félags­ins hafa gert, og nú síð­ast full­trúa­ráð félags­ins í LV. Vinnu­brögð for­manns og meiri­hluta stjórnar hafa verið for­kast­an­leg og get ég ekki hugsað mér að starfa lengur í þessum félags­skap og segi því hér með skilið við hann,“ segir Ólafur Reimar í til­kynn­ingu sinn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent