Umboð stjórnarmanna VR í Lífeyrissjóði verslunarmanna afturkallað

Tillaga um nýja stjórnarmenn til bráðabirgða var einnig samþykkt.

Ragnar Þór Ingólfsson
Auglýsing

Á fundi sem hald­inn var í full­trúa­ráði VR í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna nú í kvöld, fimmtu­dag­inn 20. júní 2019, var sam­þykkt að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna og var að auki sam­þykkt til­laga um nýja stjórn­ar­menn til bráða­birgða.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá VR.

Áður hafði stjórn VR lýst yfir trún­að­ar­bresti gagn­vart stjórn­ar­mönnum félags­ins hjá sjóðnum vegna sam­þykktar stjórnar hans um hækkun breyti­legra vaxta verð­tryggðra sjóð­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­lækk­anir í nýgerðum kjara­samn­ing­i. 

Auglýsing

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna sendi frá sér til­kynn­ingu vegna þessa, og mót­mælti þessu mati stjórnar VR. Þá sendi FME einnig frá sér til­kynn­ingu þar sem eft­ir­litið árétt­aði skyldur stjórn­ar­manna sam­kvæmt lögum líf­eyr­is­sjóð­i. 

Til fundar í kvöld var því boðað í þeim til­gangi að bera upp til­lögu um að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR í líf­eyr­is­sjóðnum og að skipa nýja stjórn­ar­menn í þeirra stað til bráða­birgða.

Til­lagan sem borin var upp og sam­þykkt með 20 atkvæðum gegn 2 (2 sátu hjá) var eft­ir­far­andi: „Fundur í full­trúa­ráð VR hjá Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna sam­þykkir að trún­að­ar­brestur hafi orðið milli VR og stjórn­ar­manna VR í Líf­eyr­is­sjóð verzl­un­ar­manna og að umboð aðal- og vara­manna VR í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna er aft­ur­kall­að,“ segir í til­kynn­ingu VR.

Að því búnu var borin upp til­laga um eft­ir­far­andi aðila í stjórn til bráða­birgða:

Aðal­menn

Bjarni Þór Sig­urðs­son

Guð­ríður Svana Bjarna­dóttir

Helga Ing­ólfs­dóttir

Stefán Svein­björns­son

Vara­menn

Björn Krist­jáns­son

Oddur Gunnar Jóns­son

Selma Árna­dóttir

Sig­ríður Lovísa Jóns­dóttir





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent