Kínverskum fjárfestingum í Bandaríkjunum fækkar um 88 prósent á tveimur árum

Fækkun fjárfestinganna hefur áhrif á sprotafyrirtæki og fasteignamarkaðinn í Bandaríkjunum. Bretland, Kanada, Japan og Þýskaland fjárfesta meira í Bandaríkjunum en Kína.

Trump og Xi
Auglýsing

Kín­verskum fjár­fest­ingum í Banda­ríkj­unum hefur fækkað um 90 pró­sent frá því að Trump tók við sem for­seti Banda­ríkj­anna. Fjár­fest­ing­unum hefur fækkað vegna strang­ari skil­yrða í Banda­ríkj­unum gagn­vart kín­verskum fjár­fest­ingum ásamt því að kín­versk stjórn­völd hafa tak­markað eyðslu erlend­is. Þetta kemur fram í frétt The New York Times. 

Kína og Banda­ríkin hafa í rúm­lega eitt ár átt í við­skipta­stríði þar sem strang­ari skil­yrðum og tollum er komið á beggja vegna. Nú er við­skipta­stríðið byrjað að hafa veru­leg áhrif á beinar fjár­fest­ingar í Banda­ríkj­un­um. Sam­kvæmt frétt­inni hefur fækkun kín­verskra fjár­fest­inga til að mynda áhrif á sprota­fyr­ir­tæki í Kís­ildalnum og fast­eigna­mark­að­inn í Man­hatt­an. Kín­verskir fjár­festar eru þó enn stærstu erlendu kaup­endur banda­rískra fast­eigna. 

Auglýsing
Bein erlend fjár­fest­ing frá Kína í Banda­ríkj­unum fór úr 46,5 millj­örðum doll­ara árið 2016 í 5,4 millj­arða doll­ara árið 2018 sem er 88 pró­senta minnk­un. Fækkun kín­verskra fjár­fest­inga munu þó lík­lega ekki setja hag­kerfi Banda­ríkj­anna út af spor­inu þar sem þær eru enn ein­ungis hluti heild­ar­fjár­fest­inga. Bret­land, Kana­da, Japan og Þýska­land fjár­festa til að mynda meira í Banda­ríkj­unum en Kína. 

Ein­angr­un­ar­hyggja hægir á heims­hag­kerf­inu

Ein­angr­un­­ar­hyggja í við­­skiptum og auk­inn efna­hags­­legur óstöð­ug­­leiki hægðu á hag­­kerfi heims­ins árið 2018. Vöru­við­­skipta­vöxtur var 3 pró­­sent 2018 sam­an­­borið við 4,6 pró­­sent árið 2017. Búist er við að sú þróun haldi áfram árið 2019, þar sem áætl­­aður vöru­við­­skipta­vöxtur er 2,6 pró­­sent. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóða­við­­skipta­­stofn­un­­ar­innar (e. WTO).

Á meðan Banda­­ríkin halda sinni ein­angr­un­­ar­­stefnu til streitu er búist við enn frek­­ari við­­skipta­hindr­­unum á Vest­­ur­löndum þegar Bretar segja sig úr Evr­­ópu­­sam­­band­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent