Enn leiðréttir Hagstofan tölur sínar um hagvöxt

Hagstofa Íslands misreiknaði hagvöxt fyrir bæði fyrsta og annan ársfjórðung ársins 2019. Stofnunin segir að henni þyki þetta miður og muni reyna að láta mistökin ekki endurtaka sig. Hagvöxtur á fyrri helmingi árs var 0,9 prósent, ekki 0,3 prósent.

Hagvöxtur í ár hefur verið meiri en áður var haldið fram.
Hagvöxtur í ár hefur verið meiri en áður var haldið fram.
Auglýsing

Hag­stofa Íslands hefur leið­rétt tölur um hag­vöxt á öðrum árs­fjórð­ungi sem hún birti upp­haf­lega síð­ast­lið­inn föstu­dag. Í ljós hefur komið að hag­vöxtur á árs­fjórð­ungnum var 2,7 pró­sent en ekki 1,4 pró­sent líkt og sagði í til­kynn­ingu hennar síð­ast­lið­inn föstu­dag. 

Þegar sú til­kynn­ingin var birt voru fyrri nið­ur­stöður um hag­vöxt á fyrsta árs­fjórð­ungi einnig leið­rétt­ar. Í end­ur­skoð­aðri nið­ur­stöðu Hag­stof­unnar kom í ljós að hag­vöxtur á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins hafi verið nei­kvæður um 0,9 pró­sent en ekki jákvæður um 1,7 pró­sent líkt og fyrri nið­ur­stöður hafi sagt til um. Því liggur fyrir að Hag­stofa Íslands hefur reiknað út rangan hag­vöxt fyrir báða þá árs­fjórð­unga sem liðnir eru á þessu ári. 

Í frétt á vef stofn­un­ar­innar seg­ir: „Hag­stofu Íslands þykir miður að mis­tök hafi orðið og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt end­ur­taki sig.“

Auglýsing

Að teknu til­liti til breyt­ing­anna liggur fyrir að hag­vöxtur á fyrri hluta árs var ekki 0,3 pró­sent líkt og fyrri birtar nið­ur­stöður höfðu sagt til um, heldur 0,9 pró­sent.  

Ólíkar skekkjur

Skekkjan í útreikn­ingum stofn­un­ar­innar vegna fyrsta árs­fjórð­ungs, sem var upp á 2,6 pró­sentu­stig, var vegna þess að „gögn inn­i­halda upp­­lýs­ingar um umfang og fram­vindu bygg­ing­­ar­fram­­kvæmda sem náðu yfir lengra tíma­bil en sam­svarar við­mið­un­­ar­­tíma­bili þjóð­hags­­reikn­inga. Hefur það nú verið leið­rétt á grund­velli nýrra gagna. Sam­­kvæmt end­­ur­­skoðun mæld­ist vöxtur íbúða­fjár­­­fest­ingar á 1. árs­fjórð­ungi 22,2 pró­­sent borið saman við 58,4 pró­­sent sam­­kvæmt áður útgefnum töl­u­m.“

Skekkjan í útreikn­ingum á hag­vexti á öðrum árs­fjórð­ungi á rætur sínar að rekja til „mistaka sem urðu til þess að fjár­muna­myndun tíma­bils­ins reynd­ist van­metin um sem nemur 9,1 millj­arði króna á verð­lagi árs­ins. Áhrifin koma fram í tveimur und­ir­liðum fjár­muna­mynd­un­ar, fjár­muna­myndun hins opin­bera og í atvinnu­vega­fjár­fest­ingu, nánar til­tekið í fjár­muna­myndun í skipum og flug­vél­um. Eftir leið­rétt­ingu mælist 16,6 pró­sent vöxtur í fjár­muna­myndun hins opin­bera og 26,5 pró­sent sam­dráttur í atvinnu­vega­fjár­fest­ingu. Sam­dráttur í heild­ar­fjár­muna­myndun mælist 9,2 pró­sent, borið saman við 14,2 pró­sent sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöð­um. Eftir leið­rétt­ingu mælist vöxtur lands­fram­leiðsl­unnar 2,7 pró­sent að raun­gildi á 2. árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við 1,4 pró­sent sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöð­um. Lands­fram­leiðslan á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 jókst um 0,9 pró­sent borið saman við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2018 en sam­kvæmt áður birtum nið­ur­stöðum mæld­ist breyt­ing lands­fram­leiðsl­unnar 0,3 pró­sent á tíma­bil­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent