Jóhannes búinn að ræða við héraðssaksóknara

Embætti héraðssaksóknara mun taka efni Kveiks-þáttar kvöldsins, um meintar mútugreiðslur Samherja í Namibíu, til skoðunar. Allt að fimm ára fangelsi liggur við því að múta fulltrúum erlends ríkis.

Jóhannes Stefánsson uppljóstrari.
Jóhannes Stefánsson uppljóstrari.
Auglýsing

„Við munum taka efni þessa þáttar til skoð­unar og metum það sem þarna kemur fram ásamt öðrum gögnum sem emb­ættið hefur aflað sér til þess að taka afstöðu til þess sem verður gert í fram­hald­in­u.“ 

Þetta segir Ólafur Þór Hauks­son hér­aðs­sak­sókn­ari í sam­tali við Kjarn­ann aðspurður um hvort að emb­ættið sé með meintar mút­ur­greiðslur og ýmis önnur meint lög­brot, eins pen­inga­þvætti og skattsvik, Sam­herja í Namibíu og Nor­egi til skoð­un­ar. 

Heim­ildir Kjarn­ans herma að Jóhannes Stef­áns­son, sem var verk­efna­stjóri Sam­herja í Namibíu fram til árs­ins 2016, og steig fram í Kveik-þætti kvölds­ins, hafi rætt við starfs­menn hér­aðs­sak­sókn­ara í dag. 

Í þætti Kveiks kom meðal ann­ars fram að vís­bend­ingar séu um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inn­i­heldur meðal ann­­ars tvo ráð­herra í Namib­­íu, séu mút­u­greiðslur og að við­­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­ík­u­land­inu séu skýr dæmi um spill­ing­u. Um­fjöll­unin var unnin í sam­starfi KveiksStund­ar­innar, Al Jazeera og Wiki­leaks.

Auglýsing
Sam­kvæmt íslenskum lögum varðar það allt að fimm ára fang­elsi ef íslenskur rík­­is­­borg­­ari mútar eða gerir til­­raunir til að múta full­­trúa erlends ríkis eða ein­hverjum sem seg­ist geta haft áhrif á slíkan full­­trú­a. 

Jóhannes gegst við því í þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a. 

Jóhannes var sér­­stak­­lega nefndur á nafn í yfir­­lýs­ingu sem Sam­herji sendi frá sér í gær vegna yfir­­vof­andi umfjöll­unar um starfs­hætti fyr­ir­tæk­is­ins og sagt að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Sam­herja árið 2016 vegna „óá­­­sætt­an­­legrar fram­­göngu hans og hegð­un­­ar“. Það hafi gerst í kjöl­far þess að Sam­herji hefði orðið „þess áskynja í árs­­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namib­­íu“ og sent íslenskan fyrr­ver­andi rann­­sókn­­ar­lög­­reglu­­mann til lands­ins til að rann­saka mál­ið.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent