Hægagangur áfram í hagkerfinu en stoðirnar sterkar

Eftir kröftugt hagvaxtarskeið er nú allt annað uppi á teningnum á Íslandi. Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka kemur fram að hagvöxtur verði hóflegur á næstu árum, raunverð fasteigna muni að mestu standa í stað og að atvinnuleysi muni aukast nokkuð.

Áhorfandi á Austurvelli
Auglýsing

Þjóð­hags­spá Íslands­banka gerir ráð fyrir að hag­vöxtur verði 1,4 pró­sent  þessu ári, og að hann verði 2 til 2,4 pró­sent næstu tvö ár á eft­ir. 

Spáin gerir ráð fyrir áfram­hald­andi hæga­gangi, ef svo má segja, og að atvinnu­leysi muni aukast  frá því sem nú er, áður en það fer aftur minnk­and­i. 

Það er nú rúm­lega 4 pró­sent, og hefur auk­ist nokkuð eftir fall WOW air og sam­drátt því sam­hliða í ferða­þjón­ustu. Spáin gerir ráð fyrir að atvinnu­leysi fari í 4,4 pró­sent á þessu ári, en verði svo komið í 3,8 pró­sent á næsta ári. 

Auglýsing

Í spánni segir að þrátt fyrir að atvinnu­leysi sé að aukast, þá séu stoðir hag­kerf­is­ins á flesta mæli­kvarða sterk­ar. Þannig hafi hag­kerfið í raun náð meiri styrk en var fyrir hendi fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, haustið 2008. 

Úr þjóðhagspá Íslandsbanka.

„Helsta skýr­ing þessa er að þriðja auð­lind­in, þ.e. sér­staða Íslands og ís­­lenskr­ar nátt­úru, bætt­ist við fiski­miðin og end­­ur­nýj­an­­lega orku sem meg­in­und­ir­­staða út­­flutn­ings­tekna. Auk þess tókst far­­sæl­­lega til við úr­­lausn mála tengdra banka­hrun­inu og ár­ang­­ur­s­­rík hag­­stjórn hef­ur einnig lagt lóð á vog­­ar­­skál­­arn­­ar,“ segir í spánn­i. 

Spá Íslands­banka gerir ráð fyrir að hús­næð­is­verð hækki lítið sem ekk­ert næstu árin. Raun­verð fast­eigna, það er verð­þróun að teknu til­liti til verð­bólgu, hækk­aði um 0,4 pró­sent í fyrra - sem er minnsta hækkun frá árinu 2012 - en spá Íslands­banka gerir ráð fyrir að raun­verð hækki um 0,6 pró­sent á ári næstu tvö árin. „Það sem styður þessa skoðun okkar er einna helst aukið fram­boð íbúða, hæg­ari kaup­mátt­ar­aukn­ing, aukið atvinnu­leysi ásamt hæg­ari fólks­fjölg­un. Hag­stæð kjör á íbúða­lánum auk stuðn­ings hins opin­bera við kaup­endur styðja hins vegar áfram­við­verð­ið. Má segja að þessi þróun á íbúða­mark­aðnum sé að mörgu leyti kær­kom­in. Meiri ró hefur færst yfir mark­að­inn eftir ólgu­tíma­bil síð­ustu ár,“ segir í spánni.

Óhætt er að segja að þetta sé mikil breyt­ing frá því sem var á árunum 2012 og fram á síð­asta ár. Mest mæld­ist árs­hækkun hús­næðis 23,5 pró­sent, vorið 2017.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent