Tilboð tryggingafélaga til neytenda ekki í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti

Fjármálaeftirlitið framkvæmdi athugun á því hvernig tryggingafélögin sundurliðuðu tilboð til viðskiptavina sinna og hvort að þær upplýsingar væru skýrar og skiljanlegar. Niðurstaðan var sú að svo er ekki.

Á meðal þess sem Fjármálaeftirlitið kannaði var tilboðsgerð vegna ökutækjatrygginga, sem eru lögbundnar.
Á meðal þess sem Fjármálaeftirlitið kannaði var tilboðsgerð vegna ökutækjatrygginga, sem eru lögbundnar.
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur birt nið­ur­stöðu athug­unar sinnar á sund­ur­liðun á kostn­aði við til­boðs­gerð hjá vátrygg­inga­fé­lög­unum fjórum, Sjó­vá, TM, VÍS og Verði. Athug­unin hófst í júlí 2019 með því að eft­ir­litið kann­aði hvernig félögin fjögur sund­ur­lið­uðu kostnað og afslætti vátrygg­inga við til­boðs­gerð til ein­stak­linga vegna öku­tækja­trygg­inga og eigna­trygg­inga. Nið­ur­stöður lágu fyrir í nóv­em­ber 2019.

Mark­mið athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var að kanna hvort sund­ur­liðun kostn­aðar við til­boðs­gerð væri í sam­ræmi við reglur um eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti vátrygg­inga­fé­laga. Þær reglur segja til um að upp­lýs­ingar um vöru og þjón­ustu, þar með talin allan kostn­að, skuli veittar á skýran og skilj­an­legan hátt, áður en við­skipti fara fram og meðan á við­skipta­sam­bandi stend­ur. 

Eft­ir­litið skoð­aði meðal ann­ars hvernig til­boðs­gerð fór fram hjá trygg­inga­fé­lög­un­um, hvaða for­sendur voru lagðar til grund­vallar og hvernig upp­setn­ing til­boða til við­skipta­vina var.  Í gagn­sæ­istil­kynn­ingu sem Fjár­mála­eft­ir­litið birti í dag segir að í þeim til­gangi hafi verið óskað eftir afriti af verð­skrám félag­anna, upp­lýs­ingum um hvernig til­boðs­gerð til við­skipta­vina færi fram og afriti af þremur fyrstu til­boðum fyrstu tveggja árs­fjórð­unga árs­ins 2019. 

Nið­ur­staða athug­unar eft­ir­lits­ins var sú að öll trygg­inga­fé­lögin fjögur fram­kvæmdu ofan­greint á hátt sem var ekki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði.

Við­skipta­vinir gátu síður tekið upp­lýsta ákvörðun

Í til­felli Sjóvar kom í ljós að í til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja­trygg­inga var ekki að finna sund­ur­liðun kostn­aðar niður á ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tæk­is, slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda og bíl­rúðu­trygg­ingu. „Eft­ir­litið taldi að fram­setn­ing kostn­aðar með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­inga­taka...að leið­ar­ljósi.“ Við­skipta­vinir ættu síður kost á að taka upp­lýsta ákvörðun um vátrygg­ingar ef kostn­aður vegna þeirra væri ekki sund­ur­lið­að­ur. í gagn­sæ­istil­kynn­ing­unni sem birt var í dag segir að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi þv athuga­semd við að Sjóvá birti ekki sund­ur­liðun á kostn­aði við ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tæk­is, slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda og bíl­rúðu­trygg­ing­u.“

Auglýsing
Við athugun á starf­semi TM komst Fjár­mála­eft­ir­litið að þeirri nið­ur­stöðu að til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja­trygg­inga var ekki að finna sund­ur­liðun kostn­aðar niður á ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda. Eft­ir­litið taldi að fram­setn­ing kostn­aðar með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­ing­ar­taka að leið­ar­ljósi. 

Við­skipta­vinir ættu síður kost á að taka upp­lýsta ákvörðun um vátrygg­ingar ef kostn­aður vegna þeirra er ekki sund­ur­lið­að­ur. Fjár­mála­eft­ir­litið gerði því athuga­semd við að félagið birti ekki sund­ur­liðun á kostn­aði við ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda.

Vant­aði sund­ur­liðun á afsláttum

Hjá VÍS var það sama uppi á ten­ingn­um. Athugun eft­ir­lits­ins leiddi í ljós að í til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja­trygg­inga var ekki að finna sund­ur­liðun kostn­aðar niður á ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og slysa­trygg­ingu öku­manns og eig­anda. Þar var heldur ekki að finna sund­ur­liðun á afsláttum niður á fyrr­nefndar trygg­ing­ar, bíl­rúðu­trygg­ingu og kaskó­trygg­ingu félags­ins. 

Eft­ir­litið taldi því að fram­setn­ing kostn­aðar og afslátta með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­ing­ar­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­ing­ar­taka að leið­ar­ljósi. 

Við­skipta­vinir eiga síður kost á að taka upp­lýsta ákvörðun um vátrygg­ingar ef kostn­aður vegna þeirra er ekki sund­ur­lið­að­ur. Fjár­mála­eft­ir­litið gerði því athuga­semd við að félagið birti ekki sund­ur­liðun á kostn­aði við ábyrgð­ar­trygg­ingu öku­tækis og við að veittur afsláttur væri ekki sund­ur­lið­aður niður á ein­staka trygg­ingar öku­tækja. 

Í athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Verði kom í ljós að í til­boðum félags­ins til vátrygg­ing­ar­taka vegna öku­tækja- og eigna­trygg­inga væri loka­verð gefið upp sem „Sam­tals með afslætti“ en þó væru engir sund­ur­lið­aðir afslættir niður á ein­staka trygg­ing­ar. „Eft­ir­litið taldi að fram­setn­ing heild­ar­verðs með þessum hætti væri hvorki í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti á vátrygg­inga­mark­aði né gæti talist fram­kvæmd sem miði að því að hafa hags­muni vátrygg­inga­taka að leið­ar­ljósi.“ Fjár­mála­eft­ir­litið gerði því athuga­semd við að félagið birti loka­verð sem „Sam­tals með afslætti“ en sýndi samt sem áður enga sund­ur­lið­aða afslætti niður á ein­staka trygg­ingar í til­boðs­gerð öku­tækja- og eigna­trygg­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent