Allir formenn stjórnarflokkanna tapað umtalsverðu trausti á kjörtímabilinu

Formaður Framsóknar hefur tapað meira trausti það sem af er kjörtímabili en hinir leiðtogar ríkisstjórnarinnar. Vantraust á hann hefur líka aukist meira en í garð hinna formannanna.

Formenn stjórnarflokkanna þriggja kynntu nýjan stjórnarsáttmála í nóvember 2021.
Formenn stjórnarflokkanna þriggja kynntu nýjan stjórnarsáttmála í nóvember 2021.
Auglýsing

Á einu ári hefur traust á Sig­urð Inga Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, fallið um 24 pró­sentu­stig, Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Vinstri grænna, fallið um 18 pró­sentu­stig og á Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um 14,4 pró­sent.

Á sama tíma hefur van­traust á Sig­urð Inga auk­ist um 22,4 pró­sent, á Katrínu um 18,3 pró­sentu­stig og Bjarna um 17,4 pró­sentu­stig. Katrín er samt sem áður sá for­maður stjórn­ar­flokks sem nýtur mest trausts, eða 43,2 pró­sent, og Bjarni sá ráð­herra sem flestir van­treysta, eða 61,5 pró­sent.

Þetta kemur fram í könnun sem Mask­ína birti í vik­unn­i. 

Katrín Jak­obs­dóttur úr 61,2 í 43,2 pró­sent á einu ári

Í nóv­em­ber 2021, skömmu eftir síð­ustu kosn­ing­ar, sögð­ust 61,2 pró­sent kjós­enda treysta Katrínu Jak­obs­dótt­ur. Síðan þá hefur glatað um 30 pró­sent af trausti í sinn garð og nú segj­ast 43,2 pró­sent treysta henn­i. 

Sem stendur mælist traustið aðeins meira hjá konum en körlum og eykst eftir því sem fólk verður eldra. Þannig segj­ast 53,3 pró­sent 60 ára og eldri treysta henni á meðan að það hlut­fall er 32,9 pró­sent hjá ald­urs­hópnum 18 til 29 ára. Menntun virð­ist líka skipta máli þegar kemur að trausti á Katrínu, en það eykst eftir því sem fólk er betur mennt­að. Þá vekur athygli að sá tekju­hópur sem treystir henni best eru tekju­hæstu Íslend­ing­arn­ir, sem eru með 1,2 milljón króna eða meira í tekjur á mán­uði. Þar mælist traust til hennar 55,1 pró­sent á meðan að traustið heilt yfir mælist 43,2 pró­sent. 

Auglýsing
Katrín nýtur mik­ils trausts hjá þeim sem segj­ast ætla að kjósa Vinstri græn næst þegar kosið verð­ur. Eng­inn svar­andi sem sagð­ist styðja Vinstri græn sagð­ist van­treysta henni og 95,6 pró­sent sögð­ust treysta henni annað hvort mjög eða frekar vel. Kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna treysta for­sæt­is­ráð­herra einnig vel, en næstum tveir af hverjum þremur þeirra sem segj­ast styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða Fram­sókn treysta for­sæt­is­ráð­herr­an­um. Það hefur dreg­ist umtals­vert saman hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks frá því sem kom fram i nið­ur­stöðum Mask­ínu í sam­bæri­legri könnun sem gerð var í apr­íl. 

Traust á Katrínu er áfram sem áður mun minna hjá and­stöðu­flokk­un­um. Kjós­endur Pírata og Sós­í­alista­flokks Íslands, þess flokks sem er stað­settur næst Vinstri grænum á hinum hefð­bundna vinstri-hægri kvarða stjórn­mál­anna, eru þeir sem van­treysta henni mest. 

Bjarni Bene­dikts­son úr 37,6 í 23,2 pró­sent á einu ári

Alls segj­ast 23,2 pró­sent lands­manna treysta Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það er tæpum fimm pró­sentu­stigum fleiri en gerðu það í apríl en næstum 40 pró­sent færri en gerðu það í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins í nóv­em­ber í fyrra. 

Karlar treysta fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra betur en konur og traustið á hann eykst eftir því sem svar­endur eru eldri. Þá er bein fylgni milli tekna og þess að bera traust til Bjarna. Alls segj­ast 32 pró­sent þeirra sem eru með 1,2 millj­ónir króna eða meira í heim­il­is­tekjur á mán­uði treysta honum en 14 pró­sent þeirra sem eru með tekjur undir 400 þús­und krónum á mán­uð­i. 

Það kemur vart á óvart á kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks treysta Bjarna mun betur en kjós­endur ann­arra flokka. Alls segj­ast 74 pró­sent þeirra bera mjög eða frekar mikið traust til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Um fjórð­ungur þeirra sem segj­ast kjósa Fram­sókn ef kosið yrði í dag bera traust til Bjarna og aðeins færri, 23 pró­sent, kjós­enda Mið­flokks­ins. 

Auglýsing
Þá segj­ast 21,5 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna treysta honum vel. Það er miklu hærra hlut­fall þeirra en sagð­ist treysta honum í sam­bæri­legri könnun í apr­íl. Þá sagð­ist engin vænt­an­legur kjós­andi Vinstri grænna treysta Bjarna mjög vel og 8,2 pró­sent treysta honum frekar mik­ið. Það var svipað hlut­fall og hjá þeim sem kusu Vinstri græn í síð­ustu kosn­ing­um. 

Í könn­un­inni í apríl sögð­ust 70,7 pró­sent svar­enda van­treysta Bjarna. Eng­inn annar ráð­herra komst nálægt honum í van­trausti á þeim tíma. Van­traustið hefur dreg­ist nokkuð saman síðan þá og mælist nú 61,5 pró­sent. Það er þó enn langt yfir því sem það mæld­ist í nóv­em­ber 2021, þegar 44,1 pró­sent sögð­ust van­treysta Bjarna.

Þar skiptir mestu að dregið hefur veru­lega úr van­trausti á Bjarna hjá vænt­an­legum kjós­endum Vinstri grænna. Í apríl sögð­ust 78,9 pró­sent þeirra sem styðja Vinstri græn treysta Bjarna lít­ið. Nú hefur það hlut­fall fallið niður í 58,2 pró­sent. Van­traust á for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú nán­ast það sama hjá kjós­endum Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Ein­ungis 12,5 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins van­treysta for­manni sínum og og rúm­lega 55 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins. Hjá kjós­endum allra ann­arra flokka er van­traustið mun meira. 

Sig­urður Ingi Jóhanns­son úr 54,4 í 30,4 pró­sent á einu ári

Traust til Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, inn­við­a­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur fallið ansi skarpt á einu ári. Það mæld­ist 54,4 pró­sent í nóv­em­ber í fyrra, 32,5 pró­sent í apríl og nú 30,4 pró­sent. Á sama tíma hefur van­traust á inn­við­a­ráð­herr­ann rúm­lega tvö­fald­ast. Það var 18,1 pró­sent í nóv­em­ber 2021, 38,9 pró­sent í apríl og mælist nú 40,5 pró­sent.

­Sig­urður Ingi nýtur meira trausts hjá körlum en konum og, líkt og hjá hinum for­mönnum stjórn­ar­flokka, þá eykst traustið eftir því sem fólk er eldra. Tæp­lega 22 pró­sent 18 til 29 ára treysta honum en um 39 pró­sent þeirra sem eru yfir sex­tugt. Þá vekur athygli hversu mik­ill munur er á trausti til hans eftir búsetu. Annar hver svar­andi á Aust­ur­landi sagð­ist treysta for­manni Fram­sóknar á meðal að ein­ungis 23,5 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­innar Reykja­víkur gera það. Líkt og hjá Katrínu og Bjarna nýtur Sig­urður Ingi mest trausts hjá tekju­hæsta hópi svar­enda. 

Vænt­an­legir kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru ánægðir með sinn mann og næstum þrír af hverjum fjórum þeirra segj­ast treysta honum mjög eða frekar mik­ið. Rúmur helm­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna er á sama máli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent