Breytt viðmið um Venesúelabúa kalli ekki nauðsynlega á lagabreytingar

Til stendur að breyta því með einhverjum hætti hvernig íslensk stjórnvöld nálgast umsóknir frá ríkisborgurum Venesúela um alþjóðlega vernd. Fyrri tilraun til þess sama gekk ekki. Dómsmálaráðuneytið segir ekki endilega þörf á lagabreytingum.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
Auglýsing

Dóms­mála­ráðu­neytið telur að breyt­ingar á við­miðum um það á hvaða grund­velli flótta­fólki frá Venes­ú­ela sé veitt vernd hér á landi kalli ekki nauð­syn­lega á laga­breyt­ing­ar, heldur geti þær birst sem reglu­gerð­ar­breyt­ingar eða til­mæli ráðu­neyt­is­ins til Útlend­inga­stofn­un­ar.

Þetta kemur fram í svari sem ráðu­neytið veitti Kjarn­an­um, vegna fyr­ir­spurnar sem lögð var fram í til­efni orða Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra á þingi fyrr í þess­ari viku.

Ráð­herra sagði þar, í orða­skiptum við Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­mann Mið­flokks­ins, að unnið væri að því að breyta þeim við­miðum sem væru til staðar um veit­ingu verndar til íbúa Venes­ú­ela og koma í veg fyrir að Ísland væri með „um­fram­­seg­ul í sínu kerfi“ miðað við önnur Evr­ópu­ríki.

Orð­rétt sagði ráð­herra að Ísland væri „að glíma við óvenju­hátt hlut­fall fólks frá Venes­ú­ela á grund­velli nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála“ og að verið væri að „bregð­ast við því með að reyna að breyta okkar við­mið­unum um það á hvaða grund­velli við veitum þeim vernd“.

„Ég held að það muni færa okkur til jafns við það sem ger­ist og gengur hjá öðrum Evr­ópu­þjóðum og þá verði ekki Ísland með þennan umfram­segul í sínu kerfi sem dregur hingað til lands,“ sagði Jón.

Búið að reyna að breyta fram­kvæmd – stóðst ekki að mati kæru­nefndar

Íslensk stjórn­völd tóku ákvörðun um það árið 2018 að umsækj­endum um alþjóð­lega vernd frá Venes­ú­ela yrði veitt við­bót­ar­vernd hér á landi, með vísan til almennra aðstæðna í rík­inu en óháð ein­stak­lings­bundnum aðstæðum hvers umsækj­anda. Fjöldi venes­ú­el­skra rík­is­borg­ara sem hingað leitar hefur auk­ist síðan þá, og undir lok síð­asta árs til­kynnti Útlend­inga­stofnun að breyta ætti fram­kvæmd­inni hvað þennan hóp varðar og leggja ein­stak­lings­bundið mat á umsóknir fólks­ins um vernd á Íslandi.

Auglýsing

Í kjöl­farið var mörg­hund­ruð manns frá Venes­ú­ela synjað um vernd á Íslandi með ákvörð­unum Útlend­inga­stofn­un­ar, en í sumar komst kæru­nefnd útlend­inga­mála að ekki hefði verið sýnt fram á að ástandið í Venes­ú­ela hefði lag­­ast frá því að íslenskt stjórn­völd tóku ákvörðun um að veita rík­is­borg­urum Venes­ú­ela við­bót­ar­vernd hér­lendis á grund­velli stöð­unnar í heima­ríki þeirra.

Fram kom í úrskurð­inum að ástandið í land­inu hefði raunar farið versn­andi „og að umfang og alvar­­leiki glæpa gegn mann­kyni hafi auk­ist.“ Bætt ástand í Venes­ú­ela gæti því ekki verið rök­­stuðn­­ingur fyrir því að synja umsækj­endum um við­­bót­­ar­vernd hér á land­i.

Síðan þá hafa hund­ruð rík­is­borg­ara Venes­ú­ela, sem Útlend­inga­stofnun hugð­ist synja um vernd á grund­velli þeirrar breyttu fram­kvæmdar sem kynnt var undir lok síð­asta árs, fengið vernd á Íslandi.

Þrátt fyrir að fyrri til­raun hafi ekki gengið upp seg­ist dóms­mála­ráðu­neytið telja, sem áður seg­ir, að hægt verði að breyta fram­kvæmd­inni í vernd­ar­málum sem snerta rík­is­borg­ara Venes­ú­ela með reglu­gerð­ar­breyt­ingum eða til­mælum til Útlend­inga­stofn­un­ar.

Ekki í boði að fá gögn

Hvað ráðu­neytið hyggst gera er þó óljóst. Kjarn­inn kall­aði eftir því að fá afhent öll gögn sem ráðu­neytið hefði í fórum sínum og tengd­ust und­ir­bún­ingi þeirra breyt­inga sem ráð­herra hefur boð­að, en beiðn­inni var synj­að.

Svör ráðu­neyt­is­ins voru þau um væri að ræða vinnu­gögn sem und­an­þegin eru upp­lýs­inga­rétti. Sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum má þó veita rík­ari aðgang að gögnum en því bein­línis er skylt sam­kvæmt lög­un­um. Ráðu­neytið tók afstöðu til þess hvort það gæti veitt auk­inn aðgang að þeim gögnum sem liggja fyr­ir, en taldi sér ekki fært að veita hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent