Hlutfall fyrirtækja sem segjast skorta starfsfólk einungis einu sinni mælst hærra

Skýrar vísbendingar eru um spennu í íslenska þjóðarbúinu. Heimilin eru að eyða miklu meira í neyslu en reiknað var með og ferðaþjónustan tekið við sér hraðar. Atvinnuleysi er hverfandi og víða er skortur á starfsfólki.

Ferðamenn flykktust til landsins strax og takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins var aflétt.
Ferðamenn flykktust til landsins strax og takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins var aflétt.
Auglýsing

Störfum á Íslandi fjölg­aði hratt á öðrum árs­fjórð­ungi og með­al­vinnu­stundum fjölg­aði í fyrsta sinn frá árinu 2019. Heild­ar­vinnu­stundum fjölg­aði um 9,1 pró­sent milli ára sem er mesta fjölgun frá upp­hafi vinnu­mark­aðs­könn­unar Hag­stofu Íslands. 

Atvinnu­leysi hefur dreg­ist skarpt saman sam­hliða auknum efna­hags­sumsvifum – það var 12,8 pró­sent í jan­úar í fyrra en 3,2 pró­sent í lok júlí – og hlut­fall fyr­ir­tækja sem segj­ast skorta starfs­fólk hefur ein­ungis einu sinni mælst hærra. ­Gert er ráð fyrir að atvinnu­leysi verði um 3,8 pró­sent að með­al­tali í ár en þok­ist upp í lið­lega fjögur pró­sent þegar líður á spá­tím­ann sem er það atvinnu­leysi sem talið er sam­ræm­ast verð­stöð­ug­leika.

Þetta kemur fram í nýj­ustu útgáfu rits­ins Pen­inga­mál sem Seðla­banki Íslands birti í síð­ustu viku. 

Auglýsing
Þar segir að sam­kvæmt árs­tíð­ar­leið­réttum nið­ur­stöðum sum­ar­könn­unar Gallup töldu 54 pró­sent stjórn­enda fyr­ir­tækja skort vera á starfs­fólki. Í eina skiptið sem hlut­fallið hefur verið hærra töldu lið­lega 60 pró­sent stjórn­enda fyr­ir­tæki sitt eiga erfitt með að mæta óvæntri eft­ir­spurn. „NF-­vísi­talan, sem tekur saman fjölda vís­bend­inga um nýt­ingu fram­leiðslu­þátta, hækk­aði því nokkuð milli fjórð­unga og hefur ekki verið hærri síðan um mitt ár 2007. Skýrar vís­bend­ingar eru því um að spenna sé tekin að mynd­ast í þjóð­ar­bú­inu. Talið er að fram­leiðslu­spennan nái hámarki í um 1,5 pró­sent af fram­leiðslu­getu í ár sem er meiri spenna en gert var ráð fyrir í maí­spá bank­ans.“

Heim­ilin að eyða miklu meira en Seðla­bank­inn reikn­aði með

Spennan sem er að skap­ast er til­komin vegna auk­ins hag­vaxt­ar. ​​Seðla­­banki Íslands býst nú við því að hag­vöxtur verði 5,9 pró­­sent í ár, sem er 1,3 pró­­sent­u­­stigi meiri hag­vöxtur en bank­inn spáði í maí. Breyt­ingin er að mestu til­­komin vegna þess að heim­ili lands­ins hafa eytt meira í neyslu síðan þá en Seðla­­bank­inn hafði reiknað með. Neyslu­út­­­gjöld heim­ila juk­ust um 8,8 pró­­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, en Seðla­­bank­inn hafði spáð því að þau myndu ein­ungis aukast um 3,8 pró­­sent. Þar munar heilum fimm pró­­sent­u­­stig­­um. 

Það kallar á fleiri störf til að fram­leiða, eða flytja inn, þær vörur og þjón­ustur sem heim­ilin eru að kaupa. Vís­bend­ingar eru einnig um að einka­­neysla hafi áfram verið kröftug á öðrum árs­fjórð­ungi, og talið er að hún hafi auk­ist um 14 pró­­sent milli ára á þeim fjórð­ungi.

Mikil aukn­ing ferða­manna kallar á fleira starfs­fólk

Hin stóra ástæða þess að hag­vöxtur verður að öllum lík­­indum meiri en reiknað var með er fjölgun ferða­­manna. Seðla­­bank­inn spáir því nú að tæp­­lega 1,7 millj­­ónir ferða­­manna komi til Íslands á þessu ári. Það eru umtals­vert fleiri en bank­inn bjóst við að myndu koma hingað þegar hann spáði því í maí að fjöld­inn yrði 1,3 millj­­ón­­ir.

Þá hefur bank­inn breytt spá sinni um komu ferða­­manna á næsta ári á þann veg að hann býst nú við 1,9 milljón ferða­­manna árið 2023, sem er um 200 þús­und fleiri en hann spáði í vor. 

Fjöldi ferða­­manna sem heim­­sóttu Ísland náði hámarki árið 2018 þegar rúm­­lega 2,3 millj­­ónir slíkra komu hingað til lands. Erlendir far­þegar voru um tvær millj­­ónir árið 2019 en fjöldi þeirra hrundi með kór­ón­u­veiru­far­aldr­inum og árið 2020 náðu þeir ekki hálfri millj­­ón. Fara þarft aftur til árs­ins 2012 til að finna ár sem jafn fáir erlendir ferða­­menn heim­­sóttu Ísland. Í fyrra voru þeir svo um 700 þús­und alls, enda far­ald­­ur­inn enn á fullu gasi með til­­heyr­andi ferða­tak­­mörk­un­­um. 

Þessi hraða við­spyrna ferða­þjón­ustu kallar á gríð­ar­lega marga nýja starfs­menn í geir­anum en erf­ið­lega hefur gengið að manna þau öll.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent