Kristrún boðar til fundar– Telur að Samfylkingin geti náð aftur vopnum sínum

Kristrún Frostadóttir mun tilkynna um framboð sitt til formann Samfylkingarinnar á fundi í dag. Þar ætlar hún að segja frá því hvernig hún telur að endurvekja megi „von og trú fólks á að það sé hægt að breyta og reka samfélagið okkar betur.“

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar til­kynna um fram­boð til for­manns flokks­ins á opnum fundi sem hún hefur boðað til í Iðnó og hefst klukkan 16 síð­degis í dag. 

Kristrún hefur verið orðuð við fram­boð til for­manns nán­ast frá því að hún til­kynnti um stjórn­mála­þátt­töku í fyrra, en hún var kjörin á þing í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Hún hefur legið undir feldi í sumar og sagst vera íhuga for­manns­fram­boð og að tíð­inda yrði að vænta í ágúst. 

Í til­kynn­ingu sem Kristrún sendi út í morgun kom fram að hún hafi notað sum­arið í íhugun og sam­töl um stöð­una í stjórn­mál­un­um. „Nú vil ég segja frá hvernig ég tel að megi end­ur­vekja von og trú fólks á að það sé hægt að breyta og reka sam­fé­lagið okkar bet­ur. Og hvernig ég tel að Sam­fylk­ingin geti náð aftur vopnum sínum með því að leggja ofurá­herslu á kjarna­málin og með því að ná aftur virk­ari teng­ingu við fólkið í land­in­u.“

Þar er haft eftir Kristrúnu að frá því að hún var kjörin á Alþingi hafi hún haldið alls 37 fundi með fólki í heima­byggð þess undir yfir­skrift­inni „Sam­ræða um fram­tíð­ina“. „Ég vil sækja mér efni­við og inn­blástur beint til fólks­ins sem ég starfa fyr­ir. Það er ekki gert úr ræðu­stól heldur með sam­tölum í augn­hæð.“

Auglýsing
Frá því að Logi Ein­ars­son, núver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, til­kynnti að hann ætl­aði ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í byrjun sum­ars hafa ein­ungis tveir verið orð­aðir af ein­hverri alvöru við for­manns­fram­boð: Kristrún og, Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík. 

Kjarn­inn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 8. júlí að nær engar líkur væru á því að Dagur ætl­aði sér að taka slag­inn og hann stað­festi það opin­ber­lega í gær í við­tali við Frétta­blað­ið. Þar sagði hann meðal ann­ars: „Ég hef auð­vitað skynjað mik­inn stuðn­­ing. Fólk hefur kallað eftir nýrri rík­­is­­stjórn sem yrði mynduð frá vinstri yfir á miðj­una svipað og í Reykja­vík. En ég er að hefja nýtt kjör­­tíma­bil í borg­inni og á ekki sæti á þingi. Þess vegna var lang­­sótt að ég byði mig fram til for­­mennsku í flokkn­­um.“ 

Verður yngsti for­­maður flokks­ins frá upp­­hafi

Kristrún er 34 ára hag­fræð­ingur og hóf fyrst stjórn­­­mála­þátt­­töku í fyrra, þegar hún ákvað að gefa kost á sér til að leiða annað Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæmið fyrir Sam­­fylk­ing­una í þing­­kosn­­ing­unum í sept­­em­ber. Áður hafði hún starfað í fjár­­­mála­­geir­an­­um.

Kristrún hefur sér­­stak­­lega vakið athygli und­an­farið ár fyrir að gefa jafn­­að­­ar­­manna­­stefn­unni dýpt í umræðum um efna­hags­­mál. 

Raunar var byrjað að tala Kristrúnu upp sem næsta for­­­mann Sam­­­fylk­ing­­­ar­innar nán­­­ast sam­­­stundis og hún gekk í flokk­inn til að bjóða fram fyrir hann í Reykja­vík í aðdrag­anda kosn­­­ing­anna í fyrra. Meðal ann­­­ars vegna þessa þrýst­ings fór Kristrún ein í hring­­­ferð um landið fyrr á þessu ári og hélt opna fundi með fólki í þeirra heima­­­byggð, á sama tíma og aðrir þing­­­menn nýttu kjör­­­dæma­daga til að ferð­­­ast saman um landið til að hitta kjós­­­end­­­ur. 

Verði Kristrún næsti for­­­maður Sam­­­fylk­ing­­­ar­innar verður hún lang yngst til að gegna því emb­ætti. Það met átti Árni Páll Árna­­­son áður, en hann var 46 ára við emb­ætt­is­­­töku (Mar­grét Frí­­­manns­dótt­ir, sem var tals­­­maður flokks­ins í árdaga hans var reyndar yngri, 44 ára).

Í síð­­­ustu könnun Gallup á fylgi stjórn­­­mála­­flokka mæld­ist Sam­­­fylk­ingin með 13,7 pró­­­sent fylgi, eða 3,8 pró­­­sent­u­­­stigum meira en flokk­­­ur­inn fékk í fyrra­haust. Það myndi þýða að flokkur yrði fjórði stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag á eftir Sjálf­­stæð­is­­flokki, Fram­­sókn­­ar­­flokki og Píröt­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent