Framsókn tapar mestu milli mánaða og fylgistap ríkisstjórnarflokkanna eykst

Stjórnarflokkarnir hafa tapað næstum níu prósentustigum af fylgi frá síðustu kosningum. Á sama tíma hafa þrír stjórnarandstöðuflokkar bætt samanlagt við sig 10,5 prósentustigum.

Vinsældir Framsóknarflokksins dala milli mánaða.
Vinsældir Framsóknarflokksins dala milli mánaða.
Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 15,4 pró­sent fylgi í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup og hefur ekki mælst með svo lítið fylgi í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins síðan fyrir kosn­ing­arnar í fyrra­haust. Flokk­ur­inn tapar 2,1 pró­sentu­stigi milli mán­aða, meira en nokkur ann­ar, og er sem stendur 1,9 pró­sentu­stigi undir kjör­fylg­i. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar einnig lít­il­lega milli mán­aða og mælist með 22,1 pró­sent fylgi. Það er 2,3 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Minnsti stjórn­ar­flokk­ur­inn, Vinstri græn, hress­ast aðeins milli mán­aða og mæl­ast með 8,6 pró­sent stuðn­ing. Flokk­ur­inn mæld­ist með 7,2 pró­sent í júní sem var lægsta fylgi sem hann hafði nokkru sinni mælst með í könnun Gallup. Vinstri græn eru enn tölu­vert frá kjör­fylgi, sem var 12,6 pró­sent. Eng­inn flokkur á þingi hefur tapað jafn miklu fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­i. 

Auglýsing
Samanlagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er því 46,1 pró­sent, en þeir hafa allir tapað fylgi á fyrstu mán­uðum kjör­tíma­bils­ins. Þeir fengu sam­tals 54,3 pró­sent þegar talið var upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber í fyrra. 

RÚV greindi frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar fyrr í kvöld.

Þrír stærstu and­stöðu­flokk­arnir bætt við sig fylgi

Þrír flokkar á þingi hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Píratar tapa aðeins milli mán­aða en mæl­ast samt með 15 pró­sent fylgi, sem er 6,4 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu kosn­ing­um. 

Sam­fylk­ingin stendur í stað frá því í júní með 13,7 pró­sent fylgi, eða 3,8 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í fyrra­haust. Við­reisn bætir vel við sig milli mán­aða og nýtur nú stuðn­ings 8,6 pró­sent kjós­enda, sem er 0,3 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylg­i. 

Sam­an­lagt mælist fylgi þess­ara þriggja flokka 37,3 pró­sent, eða 10,5 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu síð­ast þegar var kos­ið. Í ljósi þess að fylg­is­aukn­ing Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar er meiri en fylgis­tap stjórn­ar­flokk­anna, sem er 8,2 pró­sent, er ljóst að þeir hafa sótt fylgi til ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka að auki. 

Sós­í­alistar stærri en Mið­flokkur

Flokkur fólks­ins mælist nú með 6,6 pró­sent fylgi, sem er svipað og fyrir mán­uði en tölu­vert undir þeim 8,8 pró­sentu­stigum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Mið­flokk­ur­inn hefur ekki mælst með yfir fimm pró­sent fylgi það sem af er kjör­tíma­bili og það varð engin breyt­ing þar á í síð­asta mán­uði. Þá sögð­ust alls 4,4 pró­sent styðja flokk­inn sem er einu pró­sentu­stigi undir kjör­fylg­i. 

Sós­í­alista­flokkur Íslands bauð fram til þings í fyrsta sinn haustið 2021, en náði ekki inn. Hann fékk 4,1 pró­sent atkvæða. Fram að júlí­mán­uði hafði flokk­ur­inn ein­ungis einu sinni mælst með meira en fimm pró­sent fylgi en hann bætir ágæt­lega við sig nú og er með 5,3 pró­sent.

Auglýsing

Rétt tæpur helm­ingur aðspurðra, eða 49 pró­sent, sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina. Það er sama hlut­fall og í jún­í. 

Gallup fram­kvæmdi könn­un­ina dag­ana 1. júlí til 1. ágúst. Könn­unin var net­könnun og með handa­hófs­kenndu úrtaki úr Við­horfa­hópi Gallup upp á 9.705 manns. Þátt­töku­hlut­fall var 49 pró­sent og vik­mörk á fylgi ein­stakra flokka eru á bil­inu 0,6-1,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent