Lífeyrissjóðir hækka flestir vexti á íbúðalánum líkt og bankarnir höfðu þegar gert

Allir stóru bankarnir þrír hækkuðu vexti á íbúðalánum í kjölfar þess að Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,75 prósentustig í síðasta mánuði. Nokkrir lífeyrissjóðir, sem eru stórtækir á íbúðalánamarkaði, hafa fylgt í kjölfarið.

Húsnæðislán hafa hækkað umtalsverð í verði á síðustu vikum.
Húsnæðislán hafa hækkað umtalsverð í verði á síðustu vikum.
Auglýsing

Stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildi, þriðja stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, ákvað á fundi sínum í síð­ustu viku að hækka breyti­lega óverð­tryggða vexti á íbúða­lánum frá og með 5. apríl næst­kom­andi um 0,45 pró­sentu­stig. Eftir það verða vextir á óverð­tryggðum grunn­lánum hjá Gildi 4,5 pró­sent og við­bót­ar­lánum 5,25 pró­sent. 

Sjóð­ur­inn til­kynnti á sama tíma um lækkun á verð­tryggðum vöxt­um. Frá deg­inum í dag eru þeir 1,6 pró­sent á grunn­lán og 2,35 pró­sent á við­bót­ar­lán. Í ljósi þess að verð­bólga er sem stendur 6,2 pró­sent eru raun­vextir á verð­tryggðum lánum þó mun hærri en á óverð­tryggðum lán­um, en verð­bætur leggj­ast ofan á höf­uð­stól verð­tryggðra lána. 

Þar með hafa tveir af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins hækkað íbúða­lána­vexti sína eftir að Seðla­banki Íslands ákvað að hækka stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig í síð­asta mán­uði upp í 2,75 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) gerði það 17. febr­úar síð­ast­lið­inn þegar fastir vextir óverð­tryggðra sjóðs­fé­laga­lána voru hækk­aðir um 0,4 pró­sentu­stig. Sá munur er þó á að LSR, sem er stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, býður ekki upp á breyti­lega vexti á óverð­tryggðum lánum heldur ein­ungis fasta til þriggja ára.

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna er því sá eini af þremur stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins sem, enn sem komið er, hefur ekki breytt sínum vöxtum eftir að ákvörðun Seðla­bank­ans var kunn­gjörð. Saman eiga þessir þrír líf­eyr­is­sjóðir yfir helm­ing allra hreinna eigna íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. 

Auglýsing
Nokkrir minni sjóðir hafa líka þegar hækkað óverð­tryggða vexti. Þannig hækk­aði Birta líf­eyr­is­sjóður breyti­lega óverð­tryggða vexti úr 4,1 í 4,85 pró­sent frá og með 1. mars síð­ast­liðnum og Brú líf­eyr­is­sjóður hækk­aði óverð­tryggða breyti­lega vexti á grunn­lánum í 4,5 pró­sent og á við­bót­ar­lánum í 5,5 pró­sent frá sama tíma.

Áður hafði Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda hækkað vexti óverð­tryggðra lána í 5,19 pró­sent frá 16. febr­ú­ar, sem var hækkun um 0,4 pró­sentu­stig. 

Allir stóru bank­arnir búnir að hækka

Bank­arnir hafa líka allir hækkað vexti breyti­legra óverð­tryggðra íbúða­lána frá því að greint var frá stýri­vaxta­hækk­un­inni. Lands­bank­inn reið á vaðið og hækk­aði þá um 0,5 pró­sentu­stig upp í 4,7 pró­sent. 

Íslands­banki fylgdi í kjöl­farið og hækk­aði vexti á breyti­legum óverð­tyggðum grunn­lánum um 0,5 pró­sentu­stig upp í 4,65 pró­sent og Arion banki fylgdi í sömu fót­spor skömmu síðar og hækk­aði sína grunn­vexti upp í 4,79 pró­sent. 

Bank­arnir þrír hafa nýtt sér síð­ustu tvö ár til að stór­auka hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­aði. Hlut­­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­­­sent en var 55 pró­­­­sent í byrjun árs 2020.

Þessi þró­un, mik­ill vöxtur á útlána­safni, spil­aði stóra rullu í því að þeir högn­uð­ust sam­tals um 81,2 millj­arða króna í fyrra, sem var 170 pró­sent meiri hagn­aður en þeir skil­uðu árið 2020. 

Vaxta­munur bank­anna þriggja var á bil­inu 2,3-2,8 pró­­­sent á síð­­asta ári, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 pró­­­sent að með­­­al­tali. Mestur var hann hjá Arion banka en minnstur hjá Lands­­bank­an­­um. Til sam­an­­­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­­­sent á árinu 2020. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­­­senti, sam­­­kvæmt því sem fram kemur í síð­asta birta árs­­­riti Sam­­­taka fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent