Lífeyrissjóðirnir hafa einungis einu sinni lánað meira óverðtryggt innan mánaðar

Lífeyrissjóðir landsins eru að snúa aftur af krafti á húsnæðislánamarkað. Þeir lánuðu fleiri ný útlán í febrúar en þeir hafa gert síðan í nóvember 2020. Hægari vaxtahækkanir og nýjar tegundir óverðtryggðra lána laða viðskiptavini að.

Lífeyrissjóðirnir hafa ekki lánað jafn mörgum síðan í nóvember 2020.
Lífeyrissjóðirnir hafa ekki lánað jafn mörgum síðan í nóvember 2020.
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu alls 5,9 millj­arða króna í ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán til sjóðs­fé­laga, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um, í febr­úar síð­ast­liðn­um. Það er næst hæsta upp­hæð sem þeir hafa lánað í óverð­tryggð hús­næð­is­lán á einum mán­uði. Eina skiptið sem útlánin voru hærri var í októ­ber 2019, þegar líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu sam­tals um 7,1 millj­arð króna í óverð­tryggð hús­næð­is­lán. 

Óverð­tryggðu lánin rúm­lega tvö­föld­uð­ust milli jan­úar og febr­ú­ar­mán­aða.

Á saman tíma heldur nið­ur­greiðsla verð­tryggðra lána líf­eyr­is­sjóða áfram. Alls lækk­aði eign þeirra í slíkum lánum um 2,6 millj­arða króna í febr­ú­ar.

Líf­eyr­is­sjóð­irn­ir, sem bjóða nú margir hverjir upp á betri vaxta­kjör en stóru við­skipta­bank­arn­ir, lán­uðu alls út 500 ný útlán í febr­ú­ar. Það er mesta magn útlána sem þeir hafa lánað frá því í nóv­em­ber 2020. 

Bank­arnir stórjuku mark­aðs­hlut­deild sína í far­aldr­inum

Bank­­arnir tóku yfir íslenska íbúð­­ar­lána­­mark­að­inn eftir að kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn skall á. Það sem gerði þeim það kleift voru aðgerðir Seðla­­banka Íslands, sem lækk­­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­­sent og afnam tíma­bundið hinn svo­­kall­aða sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka, og rík­­is­­stjórn Íslands, sem lækk­­aði banka­skatt þannig að tekjur rík­­is­­sjóðs af honum rýrn­uðu um sex millj­­arða króna á ári. 

Auglýsing
Frá mars 2020 og fram í febr­úar síð­­ast­lið­inn juk­ust hrein ný útlán Lands­­­bank­ans, Íslands­­­­­banka og Arion banka, með veði í íbúð, gríð­ar­lega. Mark­aðs­hlut­­­deild bank­anna í öllum útistand­andi lánum til íbúð­­­ar­­­kaupa hefur vaxið úr 55 í meira en 70 pró­­­sent.

Þessi miklu útlána­vöxtur mynd­aði grunn­inn að gríð­­ar­­legum hagn­aði bank­anna þriggja í fyrra, sem sam­tals var 81,2 millj­­arðar króna. Hann hafði líka mikil ruðn­­ings­á­hrif á hús­næð­is­verð sem hefur hækkað um tugi pró­­senta á skömmum tíma.

Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­­arnir þrír lán­uðu minna í íbúða­lán umfram upp- og umfram­greiðslur í febr­úar 2022 en þeir höfðu gert frá því fyrir far­ald­­ur. Ný útlán voru samt sem áður 9,6 millj­­arðar króna þannig að þeir eru enn að bæta við mark­aðs­hlut­­deild sína. Til sam­an­­burðar voru þeir að lána á fimmta tug millj­­arða króna á mán­uði í ný útlán að frá­­­dregnum upp- og umfram­greiðslum þegar best lét á kór­ón­u­veiru­­tíma­bil­inu.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir snúa aftur

​​Við­­snún­­ingur hefur verið á útlánum líf­eyr­is­­sjóð­anna til sjóðs­fé­laga sinna vegna íbúð­­ar­­kaupa frá því seint á síð­­asta ári. Frá jún­í­mán­uði árið 2020 og út októ­ber í fyrra, alls í 16 mán­uði, þá voru upp- eða umfram­greiðslur lána sjóð­anna meiri en ný útlán. Alls voru greidd upp lán fyrir 66,7 millj­­arða króna umfram ný lán, jafnt verð­tryggð og óverð­tryggð, á tíma­bil­inu. Frá byrjun nóv­­em­ber og út febr­ú­ar­­mánuð lán­uðu líf­eyr­is­­sjóð­irnir hins vegar 8,5 millj­­arð króna meira en upp- og umfram­greiðsl­­ur.

Þar skiptir senn­i­­lega mestu að Líf­eyr­is­­­­sjóður verzl­un­ar­manna, næst stærsti líf­eyr­is­­­­sjóður lands­ins, ákvað í haust að stofna nýjan lána­­­­flokk sjóðs­­­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­­­tryggð lán til íbúð­­­­ar­­­­kaupa með breyt­i­­­­legum vöxt­­­­um. 

Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­­­­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­­­­kaup­endum síð­­­­ast­liðin ár. Vext­irnir eru nú mun betri en þeir bestu sem bank­­­arnir bjóða upp á og þeir hækka ekki jafn skarpt og hjá bönk­­un­um, sem elta hverja til­­kynnta stýri­­vaxta­hækk­­un. Frá því að nýi lána­­flokk­­ur­inn var til­­kynntur í októ­ber í fyrra hafa vextir ein­ungis verið hækk­­aðir einu sinni, og sú hækkun tók gildi í febr­­úar 2022. 

Sem stendur eru vextir á breyt­i­­legum óverð­­tryggðum vöxtum hjá Líf­eyr­is­­sjóði verzl­un­ar­manna 4,13 pró­­sent á grunn­láni á meðan að þeir eru 4,7 pró­­sent hjá Lands­­bank­an­um, sem hefur verið allra banka stór­tæk­astur á íbúða­lána­­mark­aði und­an­farin tvö ár. Breyti­legir óverð­tryggðir vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna munu fara upp í 4,32 pró­sent 1. maí næst­kom­and­i. 

Líf­eyr­is­­­sjóð­irnir njóta þess fram yfir banka að bera engan kostnað vegna fjár­­­­­mögn­un­­­ar. Bankar þurfa að fá lán­aða pen­inga, annað hvort hjá við­­­skipta­vinum sínum í formi inn­­­lána eða frá fjár­­­­­festum með skulda­bréfa­út­­­gáfu, og greiða vexti af því fé. Líf­eyr­is­­­sjóðir eru áskrif­endur að fé almenn­ings sem flæðir inn í hirslur þeirra um hver ára­­­mót án vaxta, þótt krafa sé gerð um að þeir ávaxti það fé. Það gefur sjóð­unum tæki­­­færi á að bjóða upp á betri við­­­skipta­­­kjör.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent