Lögregla fór fram á að komið yrði í veg fyrir myndatökur – Isavia biðst afsökunar

Isavia segir að lögregla hafi sagt starfsmönnum öryggisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli að koma í veg fyrir myndatökur fjölmiðla af aðgerð ríkislögreglustjóra í nótt, þar sem 15 umsækjendur um alþjóðlega vernd voru fluttir úr landi.

Fjögur ökutæki lýsa hér á myndatökumann RÚV, sem var að reyna að ná fréttamyndum af aðgerðum yfirvalda á Keflavíkurflugvelli.
Fjögur ökutæki lýsa hér á myndatökumann RÚV, sem var að reyna að ná fréttamyndum af aðgerðum yfirvalda á Keflavíkurflugvelli.
Auglýsing

Lög­regla fór fram á það við starfs­menn örygg­is­gæslu Isa­via að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur af lög­reglu­að­gerð­inni á Kefla­vík­ur­flug­velli í nótt, er stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra flutti 15 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd úr landi og til Aþenu í Grikk­landi með leiguflugi.

Isa­via seg­ist í yfir­lýs­ingu harma að hafa hindrað störf fjöl­miðla með þessum hætti, en að það sé ekki hlut­verk starfs­fólks örygg­is­gæslu flug­vall­ar­ins að meta lög­mæli fyr­ir­mæla lög­reglu.

„Að mati Isa­via er það ekki hlut­verk örygg­is­gæslu flug­vall­ar­ins að hindra störf fjöl­miðla. Isa­via harmar að það hafi gerst í nótt og biðst afsök­unar á því. Isa­via mun fara yfir þessa fram­kvæmd með lög­reglu,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Isa­via, sem barst laust fyrir hádegi.

Auglýsing

Í frétt á vef RÚV sést hvernig allt að fjögur öku­tæki innan flug­vall­ar­svæð­is­ins beindu köst­urum sínum að mynda­tökuteymi rík­is­fjöl­mið­ils­ins, sem stað­sett var fyrir utan flug­vall­ar­svæð­ið. Það hafði þær afleið­ing­ar, í næt­ur­myrkrinu, að ekki var hægt að sjá hvað fór fram inni á flug­braut­inni.

Ætl­uðu að vísa 28 manns úr landi – fundu ekki 13

Emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu um þennan hóp­brott­flutn­ing umsækj­enda um alþjóð­lega vernd á tólfta tím­anum í dag. Í þeirri til­kynn­ingu kemur fram að alls hafi staðið til að fylgja 28 manns til Grikk­lands í nótt, en að þrettán þeirra hafi ekki fund­ist er þeirra var leit­að.

Brott­flutn­ingur að minnsta kosti hluta þess hóps sem fór úr landi í nótt hefur verið gagn­rýnd­ur, þar sem í hópnum voru ein­stak­lingar sem eru nú að bíða eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála eða dóm­stóla varð­andi end­ur­upp­töku mála sinna.

„Í stað þess að stjórn­­völd bíði eftir nið­­ur­­stöðu kæru­­nefndar [út­­­lend­inga­­mála] sem er vænt­an­­leg á allra næstu dögum að þá er drifið í því, og eytt fjár­­munum og mann­afla í það, að elta uppi og færa úr landi aðila sem mög­u­­lega eiga eftir að fá mál sín end­­ur­­upp­­­tek­in,“ sagði Magn­ús Norð­dahl lög­maður í sam­tali við Kjarn­ann í gær.

Í til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra segir að þegar umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hafi fengið end­an­lega nið­ur­stöðu sinna mála hjá Útlend­inga­stofnum sé þeim tjáð að þeim verði gert að yfir­gefa land­ið.

Útlend­inga­stofnun heldur úti „verk­beiðna­lista“ um brott­flutn­ing úr landi fyrir stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, og segir emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra að ein­stak­lingar séu ekki fjar­lægðir af þeim lista nema fyrir beiðni Útlend­inga­stofn­un­ar.

Hafi fengið hjóla­stól með sér úr landi

Emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra segir í til­kynn­ingu sinni að unnið hafi verið að þeirri aðgerð sem fram­kvæmd var í nótt í tæpan mán­uð, og að allir sem fóru úr landi hafi átt kost á því að yfir­gefa landið á eigin veg­um.

Þá er tekið fram í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins að Hussein Hussein, fatl­aður maður frá Írak, sem þarf að nota hjóla­stól, hafi fengið hjóla­stól með sér á áfanga­stað í Grikk­landi. Einnig er tekið fram að engin börn hafi verið í flug­inu sem fór í morgun og að ekki sé verið að und­ir­búa flutn­ing neinna barna til Grikk­lands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent