Marta íhugar að berjast við Hildi um fyrsta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum

Sitjandi borgarfulltrúi íhugar að sækjast eftir oddvitasætinu hjá Sjálfstæðisflokknum í höfuðborginni. Hún myndi þá etja kappi við Hildi Björnsdóttur um sætið. Enn er ójóst hvernig valið verður á lista hjá flokknum en það skýrist væntanlega í lok viku.

Marta Guðjónsdóttir.
Marta Guðjónsdóttir.
Auglýsing

Marta Guð­jóns­dótt­ir, borg­­ar­­full­­trúi Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, íhugar að bjóða sig fram gegn Hildi Björns­dóttur verði af boð­uðu leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag

Þar er haft eftir Mörtu að margir hafi hvatt hana til að gefa kost á sér til að leiða list­ann og fyrir það sé hún þakk­lát „Ég vil taka málið til gaum­­gæfi­­legr­ar at­hug­un­ar og þá í sam­ráði við mína fjöl­­skyldu og mitt bak­land, þar sem þetta er stór ákvörðun sem maður tek­ur ekki einn.“

Miðað við boðuð áform um leið til að velja á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík mun Marta etja kappi við Hildi Björns­dóttur um fyrsta sæt­ið, en hún er sú eina sem form­lega hefur til­kynnt að hún sæk­ist eftir því. Þær hafa boðað afar ólíkar áherslur í ýmsum lyk­il­málum í borg­inni, sér­stak­lega þegar kemur að skipu­lags­­þróun Reykja­víkur og höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins alls.

Eyþór Arn­alds, sitj­andi odd­viti, til­kynnti nokkrum dögum fyrir jól í fyrra að hann myndi ekki gefa kost á sér til áfram­hald­andi for­ystu og að hann ætl­aði yfir­gefa stjórn­mál­in. Áður hafði hann lýst yfir þeirri ætlan að sækj­ast áfram eftir sæti odd­vita. 

Auglýsing
Kjarninn hefur rætt við fólk sem tók þátt í könnun í des­em­ber þar sem spurt var hvort því hugn­að­ist frekar að Eyþór eða Hildur leiddu lista Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík. Eyþór hefur neitað því að slík könnun hafi haft áhrif á ákvörðun hans. 

Leiðin skýrist í vik­unni

Á fundi Varð­ar, full­trúa­ráðs sjálf­stæð­is­fé­laga í Reykja­vík, snemma í des­em­ber var ákveðið að efna til leið­toga­próf­kjörs fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík. Það er sama leið og var farin fyrir kosn­ing­arnar 2018.

Full­­­trú­a­ráð Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins þarf að sam­­­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­­­leika með 2/3 hluta atkvæða.­Gangi það eftir verður kosið í kjör­­­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­­­um.

Full­trúa­ráð­ið, sem átti upp­haf­lega að funda um málið 4. jan­ú­ar, hefur hins vegar ekki haldið fund til að greiða atkvæði um stöð­una. Búist er við því að hann fari fram næst­kom­andi fimmtu­dag, mán­uði eftir að hann átti upp­haf­lega að vera hald­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent