Metsala á rósavíni og viftum í rauðri hitaviðvörun

Líkur eru á að hitamet verði slegin í Bretlandi eftir helgina en þar hefur verið gefin út rauð veðurviðvörun vegna hita í fyrsta sinn. Nú þegar er farið að hitna þar í landi og kauphegðun Breta tekur mið af því.

Þessi maður gekk um Westminister með viftu á öxlinni fyrr í vikunni og er því væntanlega ekki einn af þeim fjölmörgu sem hafa keypt viftur í netverslun Aldi. Sala fyrirtækisins á viftum hefur rúmlega fimmtíufaldast í aðdraganda hitabylgjunnar í Bretlandi.
Þessi maður gekk um Westminister með viftu á öxlinni fyrr í vikunni og er því væntanlega ekki einn af þeim fjölmörgu sem hafa keypt viftur í netverslun Aldi. Sala fyrirtækisins á viftum hefur rúmlega fimmtíufaldast í aðdraganda hitabylgjunnar í Bretlandi.
Auglýsing

Sala á rósa­víni, grill­mat, viftum og ís hefur tekið kipp í vik­unni í Bret­landi en nú þegar mik­ill hiti er í veð­ur­kort­un­um. Spár gera ráð fyrir að hita­met gætu verið slegin eftir helg­ina og hafa stjórn­völd gefið út rauða veð­ur­við­vörun vegna hita í fyrsta sinn. Veð­ur­við­var­anir eru í gildi fyrir mánu­dag og þriðju­dag á nær öllu Englandi og nær rauða við­vörun til stórs svæðis í mið- og vest­ur­hluta Eng­lands, allt frá London í Suðri til Manchester og York í norðri.

Svo virð­ist sem Bretar kjósi frekar að drekka rósa­vín í stað hvít- eða rauð­víns í miklum hita en sala á rósa­víni hefur auk­ist um 50 pró­sent í þess­ari viku sam­an­borið við síð­ustu viku í stærstu versl­ana­keðju lands­ins sem höndlar með vín, Majestic Wine. Versl­ana­keðjan Aldi gerir einnig ráð fyrir auk­inni sölu á rósa­víni en sala á ljós­bleiku vín­inu hefur ekki verið jafn mikil í versl­unum Aldi síð­asta árið.

Frá þessu er greint á vef the Guar­dian en í frétt mið­ils­ins er fjallað um hvaða áhrif hit­inn hefur haft á kaup­hegðun Breta. Til að mynda varð um 150 pró­sent sölu­aukn­ing á ís í síð­ustu viku sam­an­borið við sömu viku í fyrra.

Líkur á að hita­met verði slegin

Gert er ráð fyrir því að við­skipta­vinir versl­un­ar­keðj­unnar Tesco muni gæða sér á um níu milljón frost­pinnum í vik­unni sem er nýtt met og það sama er uppi á ten­ingnum í versl­unum Sains­bury’s. Þar er gert ráð fyrir að sala á ís muni marg­fald­ast um helg­ina en í síð­ustu viku seldi versl­un­ar­keðjan rúm­lega fimm­fald­að­ist í síð­ustu viku sam­an­borið við vik­una á und­an.

Auglýsing

Alls kyns vörur rata í rík­ari mæli í versl­un­ar­körfur Breta vegna kom­andi hita­bylgju. Til­búnir kok­teil­ar, grill­mat­ur, sól­ar­vörn og svita­lykt­areyðir selj­ast nú sem aldrei fyrr og í net­verslun Aldi hefur sala á raf­magn­s­viftum rúm­lega fimm­tíu­fald­ast.

Í umfjöllun BBC um hita­bylgj­una er haft eftir tals­manni bresku veð­ur­stof­unnar að líkur væri á að hita­met yrðu slegin í Bret­landi. Nú væru um helm­ings­líkur á að hit­inn fari yfir 40 gráður í hita­bylgj­unni. Núver­andi hita­met í Bret­landi er frá því árið 2019 þegar 38,7 gráðu hiti mæld­ist í Cambridge.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent