Samfylkingin með 19 prósent fylgi og bætir við sig 4,6 prósentustigum milli mánaða

Tveir stjórnarandstöðuflokkar, Samfylking og Píratar, hafa samtals bætt við sig næstum 14 prósentustigum af fylgi á kjörtímabilinu. Á sama tíma hafa stjórnarflokkarnir tapað 10,7 prósentustigum. Rúmur helmingur fylgistaps þeirra er hjá Vinstri grænum.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Sam­fylk­ingin mælst nú með 19 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu könnun Mask­ínu. Það er 4,6 pró­sentu­stigum meira fylgi en flokk­ur­inn mæld­ist með í októ­ber og næstum tvisvar sinnum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2021, þegar hann fékk 9,9 pró­sent atkvæða. Sam­fylk­ingin er einn af tveimur flokkum sem bæta við sig fylgi milli mán­aða. Hinn er Flokkur fólks­ins sem bætir þó ein­ungis við sig 0,4 pró­sentu­stig­um. Hinir sjö flokk­arnir sem eru mældir af Mask­ínu tapa fylg­i. 

Helsta breyt­ingin sem orðið hefur á högum Sam­fylk­ing­ar­innar síðan að síð­asta könnun var gerð er kosn­ing Kristrúnar Frosta­dóttur sem for­manns flokks­ins, en það gerð­ist 28. októ­ber síð­ast­lið­inn. 

Píratar mæl­ast með 13,4 pró­sent fylgi sem er 4,8 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu upp úr kjör­köss­unum í fyrra­haust en tæpu pró­sentu­stigi minna en þeir mæld­ust með í októ­ber. 

Sam­an­lagt hafa þessir tveir flokk­ar, sem hafa bætt lang­mestu við sig af fylgi það sem af er ári, tekið til sín 13,9 pró­sentu­stig af nýju fylgi á fyrsta ári kjör­tíma­bils­ins.

Nálg­ast Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Litlu munar nú á Sam­fylk­ing­unni og Sjálf­stæð­is­flokki, stærsta flokki lands­ins, sem tapar pró­sentu­stigi milli mán­aða og mælist með 21,8 pró­sent. Það ger­ist þrátt fyrir að flokk­ur­inn hafi haldið gríð­ar­lega fjöl­mennan lands­fund, þann fyrsta frá árinu 2018, þar sem Bjarni Bene­dikts­son var end­ur­kjör­inn for­maður hans eftir að hafa verið skor­aður á hólm af Guð­laugi Þór Þórð­ar­syni. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks er nú 2,6 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi.

Auglýsing
Framsóknarflokkurinn siglir nokkuð lygnan sjó með 14,8 pró­sent fylgi sem er svipað og fyrir mán­uði síðan en 2,5 pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra­haust. 

Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist nú með 7,1 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur alls tapað 5,5 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ing­um, eða meiri en nokkur annar flokk­ur. Sem stendur eru ein­ungis þrír flokk­ar, sem mæl­ast allir með í kringum fimm pró­sent fylgi, minni en Vinstri græn sam­kvæmt könnun Mask­ín­u. 

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 43,7 pró­sent og dalar um 1,8 pró­sentu­stig milli mán­aða. Það fylgi myndi ekki duga fyrir meiri­hluta á þingi. Flokk­arnir þrír fengu 54,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021 og því hafa þeir tapað 10,7 pró­sentu­stigum af fylgi á fyrsta ári kjör­tíma­bils­ins. 

Þrír við fimm pró­sent markið

Við­reisn dalar lít­il­lega milli mán­aða og mælist með níu pró­sent fylgi, sem er þó enn 0,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2021. 

Flokk­arnir þrír sem mæl­ast við fimm pró­sent þrösk­uld­inn, sem þarf að kom­ast yfir til að fá upp­bót­ar­þing­mann kjör­inn, eru Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokk­ur­inn með sitt hvor sléttu fimm pró­sentin og Mið­flokk­ur­inn með 4,9 pró­sent. 

Könn­unin fór fram dag­ana 4. til 22. nóv­em­ber 2022 og voru 2.483 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent