Segja skattrannsóknarstjóra misskilja frumvarp sem færir rannsóknir frá embættinu

Embætti skattrannsóknarstjóra telur að frumvarp sem færir rannsókn á meiriháttar skattrannsóknum til héraðssaksóknara muni valda meiri skaða en gagni.. Fjármála- og efnahagsráðuneytið segir embættið misskilja frumvarpið.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði frumvarpið um breytingar á skattrannsóknum fram.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði frumvarpið um breytingar á skattrannsóknum fram.
Auglýsing

Emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra telur að frum­varp sem færir rann­sókn á meiri­háttar skatt­rann­sóknum til hér­aðs­sak­sókn­ara muni valda meiri skaða en gagni. Hætta sé á að sér­fræði­þekk­ing tap­ist. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið segir emb­ættið mis­skilja frum­varp­ið.

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið tekur ekki undir athuga­semdir emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra um breyt­ingar á núver­andi skipan skatt­rann­sókna og telur þær byggðar á mis­skiln­ingi. Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem ráðu­neytið hefur skilað inn til efna­hags- og við­skipta­nefndar sem hefur frum­varp um breyt­ing­arnar til með­ferð­ar.

Kjarn­inn greindi frá því 21. mars að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefði í athuga­semd um frum­varpið sagt að áform um að breyta núver­andi skipan skatt­rann­­sókna á þann hátt að færa rann­­sókn á þeim brotum sem telj­­ast meiri­háttar til emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­ar gangi gegn til­­­gangi frum­varps til laga sem eigi að koma í veg fyrir tvö­­falda refs­ingu og tvö­­falda máls­­með­­­ferð. 

Verði frum­varpið að lögum leggst emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra rík­­is­ins af sem sjálf­­stæð stofnun en verður þess í stað ein­ing innan Skatts­ins sem ætlað verður að fara með rann­­sókn þeirra skatta­laga­brota sem ætla má að ljúka megi innan skatt­­kerf­is­ins.

Auglýsing
Í athuga­­semd­inni segir að verði það að lög­­um, og hér­­aðs­sak­­sókn­­ari eigi að rann­saka öll skatta­laga­brot sem telj­­ast meiri­háttar fyrir eigin mann­afla, muni reyn­­ast nauð­­syn­­legt að koma hjá því emb­ætti upp við­­bót­­ar­­starfs­liði með næga sér­­þekk­ingu til að valda rann­­sókn stórra og flók­inna skatt­brota­­mála. „Mun þá þurfa að starf­rækja í tveimur stofn­unum slíkar sér­­hæfðar ein­ingar sem vart þjónar æski­­legri hag­ræð­ingu og skil­­virkni í rík­­is­­rekstri. Að auki mun slíkt fyr­ir­komu­lag óhjá­­kvæmi­­lega að ein­hverju marki hafa í för með sér að sömu mál muni sæta end­­ur­­teknum rann­­sóknum er þau byrja annað hvort sem minni eða meiri háttar mál reyn­­ast við nán­­ari skoðun ekki eiga heima í byrj­­un­­ar­­flokki sínum heldur hinum meg­in. Virð­ist það geta farið í bága við bann við tvö­­faldri máls­­með­­­ferð, sbr. hins vegar til­gang­inn að baki ákvæða frum­varps­ins.“

Meiri­hluti efna­hags- og við­­skipta­­nefnd­­ar, sem sam­anstendur af þing­­mönnum stjórn­­­ar­­flokk­anna þriggja, hefur þegar afgreitt frum­varpið til ann­­arrar umræðu með nefnd­­ar­á­liti. Þar er ekki tekið til­­lit til athuga­­semda skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra og lagt til að lögin öðlist gildi 1. maí næst­kom­andi.

Gert ráð fyrir sam­starfi stofn­ana

Þessu er fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið ósam­mála, en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði frum­varpið fram. 

Í minn­is­blaðið ráðu­neyt­is­ins, sem er dag­sett 22. mars, segir að ávallt hafi verið gert ráð fyrir sam­starfi stofn­ana í frum­varp­inu og í því skyni gert ráð fyrir að rík­is­sak­sókn­ari gefi nán­ari fyr­ir­mæli um hvaða málum skuli vísað til rann­sóknar lög­reglu. í grein­ar­gerð­inni eru sett við­mið fyrir rík­is­sak­sókn­ara um til hvers eigi að líta við gerð fyr­ir­mæl­anna. Með frum­varp­inu er lagt til að lög­festar verði sekt­ar­heim­ildir skatt­rann­sókn­ar­stjóra og þær auknar veru­lega. Mark­miðið er að koma í veg fyrir tvö­falda refs­ingu innan skatt­kerf­is­ins og telur ráðu­neytið að skurð­punkt­ur­inn um hvaða mál­fari í refsi­með­ferð hjá lög­reglu eða hljóti með­ferð innan skatt­kerf­is­ins sé skýr. Þungi mála mun liggja hjá Skatt­in­um, verði frum­varpið að lög­um, en stærstu og alvar­leg­ustu málin hjá hér­aðs­sak­sókn­ara.“

Ráðu­neytið tekur undir með því sem fram kemur í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar um frum­varpið að eðli­legt sé að breyt­ingar taki tíma en með ríkri sam­vinnu megi leysa úr þeim vand­kvæðum sem upp kunni að koma. „ Þá er það mat ráðu­neyt­is­ins að verði frum­varpið sam­þykkt leiði það til auk­inna tæki­færa til sam­þætt­ingar á nýt­ingu upp­lýs­inga innan skatt­kerf­is­ins.“

Ekki tekið fyrir tvö­­falda refs­ingu í dómi

For­­saga frum­varps­ins er sú að þann 18. maí 2017  komst Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll Evr­­­ópu að þeirra nið­­­ur­­­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jóns­­­syni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­­­ur.

Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls­ins á þeim for­­­­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­­­ur­á­kvörðun skatta af yfir­­­­skatta­­­­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­­­­­vegis fyrir sama brot­ið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­­­­­lendis að þeir sem sviku stór­­­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­­­goldnu skatta sem þeir skyldu end­­­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi auk þess sem við­kom­andi þarf að að greiða sekt.

Þegar Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll­inn hafði kom­ist að nið­­­ur­­­stöðu þá þurfti að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­­­bæri­­­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­­­ur­­­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­­­kvæmd.

dómur féll í lok sept­­em­ber 2017. 

Í dómi Hæsta­réttar var því ekki tekið fyrir tvö­­falda refs­ingu. Þar var hins veg­­ar, með vísun í dóm Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins í norsku máli sem féll um ári áður og í mál Jóns Ásgeirs og Tryggva, sagt að sýna þyrfti fram á að sak­­ar­efni sem sé til með­­­ferðar hjá bæði skatt­yf­­ir­völdum og í saka­­mála­rann­­sókn séu þannig tengd að þau myndi eina sam­þætta heild að efni til. „Þetta feli ekki ein­­göngu í sér að mark­miðin sem að er stefnt og aðferð­­irnar til að ná þeim séu til fyll­ingar heldur jafn­­framt að afleið­ingar þess lög­­bundna fyr­ir­komu­lags feli það í sér að rekstur tveggja mála sé fyr­ir­­sjá­an­­legur og að gætt sé með­­al­hófs,“ segir í dómi Hæsta­rétt­­ar.

Kjarn­inn greindi frá því að í lok árs 2017 að emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara hafi þurft að fella niður 66 mál vegna þess að rann­­sókn þeirra féll ekki innan þess tímara­mma sem dóm­­ur­inn sagði til um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent