Starfandi fólki í fjölmiðlum á Íslandi hefur fækkað um helming á tveimur árum

Nýjar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að starfandi fjölmiðlafólki hefur fækkað gríðarlega hratt á þessu kjörtímabili. Frá árinu 2018 og til síðustu áramót fækkaði þeim sem störfuðu í fjölmiðlum um 731.

Samhliða því að þeim sem starfa í fjölmiðlum fækkar hefur launasumma geirans dregist verulega saman.
Samhliða því að þeim sem starfa í fjölmiðlum fækkar hefur launasumma geirans dregist verulega saman.
Auglýsing

Árið 2013 störf­uðu 2.238 manns í fjöl­miðlun á Íslandi. Í fyrra voru þeir tæp­lega 876 tals­ins. Fækk­unin hefur ágerst hratt á síð­ustu árum. Frá árinu 2018 og fram að síð­ustu ára­mótum fækk­aði starf­andi fólki í fjöl­miðlum 45 pró­sent, eða 731  manns. 

Þetta kemur fram í nýbirtum Menn­ing­ar­vísum Hag­stofu Íslands. Tekið er sér­stak­lega fram að starf­andi telj­ist þeir sem starfa í aðal- og auka­starfi í grein­inni en að þekja sjálf­stætt starf­andi sé ekki full­komin í töl­un­um. 

Sam­hliða fækkun starfs­manna fjöl­miðla hefur launa­sum­ma, árleg summa stað­greiðslu­skyldra launa­greiðslna launa­fólks,  einnig dreg­ist saman meðal rekstr­ar­að­ila í fjöl­miðl­un. Árið 2018 var launa­summan 8,1 millj­arður króna. Í fyrra var hún hins vegar komin niður í 5,3 millj­arða króna og hafði því dreg­ist saman um 35 pró­sent á tveimur árum. 

Mikil umræða en litlar aðgerðir

Bág rekstr­ar­staða fjöl­miðla hefur verið til umræðu hér­lendis árum sam­an. Árið 2016 var skipuð nefnd til að fjalla um vand­ann, svo var rituð skýrsla sem skilað var rúmum tveimur árum síðar með sjö til­lögum til úrbóta, þá var unnið úr til­lögum hennar og loks smíðuð frum­vörp. 

Auglýsing
Einungis ein þeirra til­lagna, styrkja­kerfið fyrir einka­rekna fjöl­miðla þar sem 400 millj­ónum króna er útdeilt til þeirra, hefur náð í gegn. Ekk­ert hefur verið gert með til­lögur um að breyta stöðu RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði, lækka virð­is­auka­skatt á tekjur þeirra enn frekar, heim­ila aug­lýs­ingar sem hafa verið bann­aðar hér­lendis en eru leyfi­legar í flestum öðrum lönd­um. Þá lagði nefndin til að settar yrðu skýrar reglur um gagn­sæi í aug­lýs­inga­kaupum hins opin­bera þannig að opin­berum aðilum beri að birta sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um kaup á aug­lýs­ing­um. 

Til við­bótar við ofan­greint hefur það haft mikil áhrif á rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla að aug­lýs­inga­tekjur hafa flætt frá hefð­bundnum íslenskum miðlum til alþjóð­legra sam­fé­lags­miðla- og net­fyr­ir­tækja sem greiða ekki skatta af þeim tekjum hér­lend­is. 

Styrkja­frum­varpið svo­kall­aða var sam­þykkt í síð­asta mán­uði og úrræðið gildir í tvö ár. Þær breyt­ingar voru gerðar á frum­varp­inu í með­förum þing­manna að upp­hæðin sem hvert fjöl­miðla­fyr­ir­tæki getur fengið var tvö­föld­uð, úr 50 í 100 millj­ónir króna, án þess að heild­ar­upp­hæðin sem er til úthlut­unar hafi hækkað sam­hliða. Fyrir vikið færð­ust yfir 100 millj­ónir króna frá yfir 20 minni fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum til þriggja fjöl­miðla­fyr­ir­tækja: Árvak­urs, Sýnar og Torgs, sem gefur út Frétta­blað­ið. Þessi þrjú fyr­ir­tæki fá tvær af hverjum þremur krónum sem úthlutað er.

Fjöl­miðla­frelsi á Íslandi dregst hratt saman

Stuðn­ingur við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla er umtals­verður á hinum Norð­ur­lönd­un­um.

Í vísi­tölu sam­tak­anna Blaða­manna án landamæra raða þau sér í efstu sætin yfir þau lönd þar sem ríkir mest fjöl­miðla­frelsi. Nor­egur er í fyrsta sæti, Finn­land er í öðru sæti, Dan­­mörk í þriðja sæti og Sví­­þjóð í fjórða sæti.

Ísland situr hins vegar í 16. sæti á lista sam­tak­anna og féll um eitt sæti á milli ára. 

Mestur er stuðn­ing­ur­inn í Nor­egi, því landi þar sem fjöl­miðla­frelsi mælist mest í heim­in­um. Þar er enn fremur vilji til að auka við opin­bera styrki frekar en að draga úr þeim enda hefur reynslan af þeim verið jákvæð. Hinn 7. mars 2017 skil­aði nefnd sem skipuð var af norskum stjórn­völdum hvít­bók sem inni­hélt til­lögur til að efla fjöl­miðla þar í landi. Meðal þeirra til­lagna sem settar voru fram í hvít­bók­inni var að auka styrk­veit­ingar til smærri fjöl­miðla, ein­falda umsókn­ar­ferlið og gæta jafn­ræðis milli fjöl­miðla óháð því hvernig efni er miðl­að. 

Til­lög­urnar eru enn til með­ferðar hjá norskum stjórn­völd­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent