Stjórn Bankasýslunnar segir að söluþóknun verði ekki greidd ef ágallar komi fram

Þriggja manna stjórn Bankasýslu ríkisins segist vera að skoða lagalega stöðu sína gagnvart þeim fyrirtækjum sem höfðu milligöngu um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Umsamdar þóknanir verði að óbreyttu ekki greiddar ef ágallar opinberist.

Lárus L. Blöndal er stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins.
Lárus L. Blöndal er stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins.
Auglýsing

Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins seg­ist vera að skoða laga­lega stöðu sína gagn­vart þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem önn­uð­ust sölu á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka í lok­aða útboð­inu sem fram fór 22. mars. Stjórnin segir að ef ágallar komi í ljós muni Banka­sýslan „að óbreyttu ekki greiða umsamda sölu­þókn­um“ til fyr­ir­tækj­anna í slíkum til­vik­um.

Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins skipa þau Lárus L. Blön­dal stjórn­ar­for­maður auk Mar­grétar Krist­manns­dóttur og Vil­hjálms Bjarna­son­ar.

Í athuga­semd frá stjórn­inni, sem birt er á vef Banka­sýsl­unnar í dag, er rakið að upp hafi komið „vafi um hvort kröfum um hæfi fjár­festar hafi verið fylgt eftir af þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem sáu um sölu á hlut rík­is­ins“ í útboð­inu og að mögu­legir hags­muna­á­rekstrar ein­stakra sölu­að­ila við kaup starfs­manna eða tengdra aðila á hlutum í bank­anum séu einnig til athug­un­ar, en slík skoðun er í höndum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Auglýsing

Stjórn Banka­sýsl­unnar minnir á að stofn­unin hafi engar heim­ildir til eft­ir­grennslan eða athug­unar á þessum atrið­um. „Fjár­mála­eft­ir­litið hefur aftur á móti slíkar heim­ildir skv. lögum og hefur það nú hafið athugun á áður­nefndum þáttum tengdum útboð­inu og mun skila nið­ur­stöðu innan fárra vikna. Banka­sýsla rík­is­ins fagnar þeirri athug­un,“ segir í athuga­semd stjórn­ar­inn­ar.

Þar segir einnig að fjár­mála­eft­ir­litið skoði meðal ann­ars hæfi þeirra fag­fjár­festa sem fengu að kaupa, en stjórnin minnir á að það hafi verið hlut­verk sölu­að­ila að meta það enn ekki Banka­sýslu rík­is­ins.

„Komi í ljós að ein­hverjir sölu­að­ilar hafi ekki staðið undir því trausti sem Banka­sýslan gerði til þeirra mun það hafa áhrif á sölu­þókn­anir til þeirra. Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins skoðar nú laga­lega stöðu sína gagn­vart sölu­að­ilum og mun að óbreyttu ekki greiða umsamda sölu­þóknum í til­vikum þar sem ágallar voru við sölu á 22,5% hlut rík­is­ins til hæfra fag­fjár­festa,“ segir í athuga­semd stjórnar Banka­sýsl­unn­ar, stofn­un­ar­innar sem rík­is­stjórnin boðar nú að leggja skuli niður með laga­breyt­ingum við fyrsta tæki­færi.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent