Stundin hagnaðist um 7,2 milljónir í fyrra en hefði skilað tapi án ríkisstyrks

Í ársreikningi Stundarinnar kemur fram að kórónuveirufaraldurinn hafi þegar haft neikvæð áhrif á rekstur útgáfufélagsins og að óvissa ríki um forsendur hans. Tekjur Stundarinnar jukust samt umtalsvert í fyrra og félagið skilaði hagnaði.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson eru ritstjórar Stundarinnar og á meðal eigenda útgáfufélagsins.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson eru ritstjórar Stundarinnar og á meðal eigenda útgáfufélagsins.
Auglýsing

Útgáfu­fé­lagið Stund­in, sem gefur út áskrift­ar­blaðið Stund­ina og heldur úti sam­nefndum vef, hagn­að­ist um 7,2 millj­ónir króna í fyrra. Það er umtals­verður við­snún­ingur á rekstri þess milli ára en félagið tap­aði 12,9 millj­ónum króna árið 2019. Tekjur Stund­ar­innar juk­ust um 38,8 millj­ónir króna á milli ára og voru í heild 224,7 millj­ónir króna.

Í skýrslu stjórnar í árs­reikn­ingi Stund­ar­inn­ar, sem skilað var inn til árs­reikn­inga­skrár 1. ágúst síð­ast­lið­inn, kemur fram að þann fyr­ir­vara verði að setja við árs­reikn­ing­inn að rík­is­styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla, sem höfðu verið boð­aðir fyrir árið 2019 með frum­varpi og kynn­ingu mennta­mála­ráð­herra, voru greiddir út árið 2020 en komu til vegna kostn­aðar árs­ins 2019.

Auglýsing
Stundin fékk 17,8 millj­ónir króna í sér­stakan rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði vegna COVID-19 sem greiddur var til einka­rek­inna fjöl­miðla á síð­asta ári. Án hans hefði tap félags­ins numið 10,6 millj­ónum króna. 

Far­ald­ur­inn þegar haft nei­kvæð áhrif á rekst­ur­inn

Í skýrslu stjórnar segir að vegna þessa birt­ast bók­halds­legar sveiflur í árs­reikn­ing­um. „Sjálf­bær rekstur er for­senda óháðs fjöl­mið­ils. Helstu sam­keppn­is­að­ilar á fjöl­miðla­mark­aði hafa verið reknir með halla í áraraðir sem greiddur er upp af fjár­sterkum eig­endum hverju sinni. Tæp 83% af tekjum Stund­ar­innar koma hins vegar beint frá almenn­ingi í gegnum áskrifta­kaup, styrki eða lausa­sölu. Stundin stefnir á að við­halda sér­stöðu sinni sem óháður og sjálf­stæður frétta­mið­ill.“

Í skýrsl­unni segir enn fremur að COVID-19 far­ald­ur­inn hafi haft nei­kvæð áhrif á rekstur félags­ins, þar sem almennur sam­dráttur í hag­kerf­inu hafi valdið nið­ur­skurði í einka­út­gjöldum með þeim lík­legu afleið­ingum að áskrif­endum fækki, en áskrift­ar­tekjur eru meg­in­tekju­stofn félags­ins. „Fé­lagið naut rík­is­styrks á árinu 2020 sem vóg upp á móti tapi sem félagið hefði ann­ars skilað á árinu. Félagið hefur sótt um rík­is­styrk árið 2021 vegna rekstrar árið 2020, en áfram ríkir óvissa um end­an­lega upp­hæð þegar kemur að félag­in­u.“

Í frek­ari skýr­ingum á þessu í árs­reikn­ingnum segir að stjórn Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar fylgist sér­stak­lega með áhrifum COVID-19 á afkomu og stöðu félags­ins. „Far­ald­ur­inn hefur nú þegar haft nei­kvæð áhrif á rekstur félags­ins eins og fram kemur í skýrslu stjórnar og ríkir óvissa um for­sendur rekstr­ar­ins. Félagið hefur sótt um rekstr­ar­stuðn­ing fyrir einka­rekin fjöl­miðla­fyr­ir­tæki og taka áætl­anir stjórn­enda mið að því að félagið verði áfram rekstr­ar­hæft.“

Alls voru tíu stöðu­gildi hjá Stund­inni í fyrra. Hlut­hafar í félag­inu voru 15 tals­ins og eng­inn einn á meira en 12,2 pró­sent eign­ar­hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent