Vandamál: Of mikil séreignastefna - Lausn: Enn meiri séreignastefna

Guðmundur Guðmundsson
Auglýsing

„Fyrsta fast­eign“ útspil rík­is­stjórn­ar­innar er full­komin stað­fest­ing á að stjórn­völd hafa stein­gleymt ástæð­u­m ­eigna­bólunnar  fyrir hrun.

Stór orsaka­valdur bólunnar var allt of hátt sér­eign­ar­hlut­fall á Íslandi. Og skortur á opin­berum leigu­mark­aði eins og í Skand­in­av­íu.

Í eft­irá­spegli er því ­með ein­dæmum að núver­andi rík­is­stjórn byggði kosn­inga­sigur sinn á risa­út­gjöldum rík­is­ins til að við­halda sömu kerf­is­villu og skap­aði áður­nefnda bólu. Skulda­leið­rétt­ingin var kynnt til sög­unnar sem stórt rétt­læt­is­mál. Þar skiptu mis­jafn­lega skuld­settir eig­endur á milli sín 80 millj­örð­u­m af almanna­fé.  

Auglýsing

Leigj­endur fengu enga sam­svar­andi upp­hæð, þeir máttu náð­ar­sam­leg­ast safna sér fyrir íbúð.

Fyrir 80 millj­arða ­mætti byggja úthverfi á borð við Breið­holt, með þús­undum ódýrra leigu­í­búða. Allt kjör­tíma­bilið hafa aðgerðir til upp­bygg­ingar á opin­berum leigu­mark­aði verið í full­komnu skötu­líki.

Eins og í dæmisög­unni safnar stjórnin nú öllum  eggjum sín­um aftur í sömu (sér­eigna)körf­una.  Bólu­andi áranna fyrir hrun svífur aftur yfir vötn­un­um. Bankar birta reglu­lega grein­ingar á fast­eigna­mark­aði sem er í full­komnu lagi. Fast­eigna­salar taka undir í fjöl­miðl­um. Tveggja stafa árleg pró­sentu­hækkun á fast­eigna­verði telst full­kom­lega eðli­leg. Líka 65 pró­senta hækkun á fimm árum í ein­stökum hverf­um. Hags­muna­að­ilar ráða ferð­inni í op­in­berri um­ræðu.

Þegar verð­hækk­an­irnar fara út úr kort­inu fyrir ungt fólk og almenn­ing beita stjórn­völd aft­ur ­sömu gömlu brell­unni: auka aðgengi að láns­fé. Takið hærri lán. Eins og venju­lega munu þessar aðgerðir að mestu fóðra hækkun á hús­næð­is­verði, frekar en að fjölga nýbygg­ingu. Það er eng­inn hvati í aðgerð­unum sem minnkar skort­inn á hús­næð­is­mark­aði, eins og til dæm­is­ að afmarka  lána­mögu­leik­ana við nýbyggð hús. 

Framan af hömp­uðu fjöl­miðlar skulda­leið­rétt­ing­unni sem vel heppn­aðri aðgerð. Þar til nýlega að tal­naglögg­ur sam­fé­lags­rýnir setti í gang vasa­tölv­una og vann heima­vinn­una sína. Þá kom í ljós að lág­laun­aðir borga sjálfir „leið­rétt­ing­una“ á sirka tveimur árum.

Ísland fjar­lægist æ meira nágranna­löndin í hús­næð­is­mál­um. Stór skref í burtu er salan á Kletti og einka­væð­ingin sem fylgir í kjöl­far­ið. Næsta skref er svo einka­væð­ing á almennum útlána­hluta ÍLS. Þá munu bankar og fjár­fest­ing­ar­fé­lög á borð við Gamma sitja ein að hús­næð­is­mark­aði almenn­ings. Lík­lega verður  besti ÍLS lána­bit­inn seldur á slikk til hand­val­inna kaup­enda. Og ríkið látið sitja uppi með  rest. Op­in­ber leigu­mark­aður fyrir almenn­ing sem vel­ferða­ráð­herra veif­aði á kjör­tíma­bil­inu er í besta falli fjar­lægur draum­ur.

Fróð­legt verður að sjá hversu oft í röð almenn­ingur veðjar á rangan hest í hús­næð­is­mál­um. Sömu töfra­menn, sömu hatt­ar, sömu kan­ínur eru  aft­ur komnir á kreik . Rétt fyrir kosn­ing­ar. 

Fast­eigna­mark­að­ur­inn  og hús­næð­ispólítíkin er komin í hring. 

Vel­komin aft­ur.

Til árs­ins 2007.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None