Einkavæðing aftan frá

Guðmundur Ólafsson, lektor í hagfræði, varar við því að almenningi verði gefin hlutur í bönkum og bendir á sambærilega tilraun Rússa máli sínu til stuðnings.

Auglýsing

Nú hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boðað almanna­væð­ingu bank­anna, að öllum lands­lýð verði gefin hluta­bréf í bönk­unum „til að tryggja dreifða eign­ar­að­ild“. Þetta ger­ist auð­vitað í fram­haldi af því að ofur­trúin á einka­væð­ingu og nýfrjáls­hyggju Dav­íðs Odds­sonar (13,7%) og Hann­esar Hólm­steins er þrotin innan flokks­ins og fjár­mála­ráð­herr­ann þorir ekki að gefa Eng­eyj­a­rætt­inni bank­ana beint . Skemmst er að minn­ast einka­væð­ingu Síld­ar­verk­smiðja Rík­is­ins, Bank­anna og Sím­ans. Fræg er sagan um einka­væð­ingu Áburð­ar­verk­smiðju rík­is­ins, en sagt er að tryggir flokks­menn hafi boðið 300 millj­ónir í aðstöð­una og verk­smiðju, þegar kunnur athafna­maður bauð 800 millj­ónir króna. Flokks­dyndl­arnir buðu þá 500 millj­ónir kr og fengu. Einn dindl­anna hringdi á í athafna­mann­inn og sagði dimmum rómi: “Þú ert búin að vera okkur dýr“.

Auð­vitað er langt síðan allir máls­met­andi menn gerðu sér grein fyrir svika­myllu Einka­væð­ing­ar­inn­ar, sem snýst fyrst og fremst um að féfletta almenn­ing og rík­is­sjóð en ekki hag­kvæmni. Meira að segja höf­undur ósýni­legu hand­ar­inn­ar, Adam Smith, segir í sinni bók um auð­legð þjóð­anna, að menn í við­skipta­líf­inu séu ekki mikið fyrir félags­líf en þegar þeir hitt­ist, sé stutt í að sam­tal þeirra snú­ist upp í sam­særi gegn almenn­ingi. Eftir að Ron­ald Coase rit­aði sína grein um Eðli Fyr­ir­tækja 1937, þar sem hann skil­greinir við­skipta­kostn­að, hélt maður að fagn­að­ar­er­indið um full­komna eða frjálsa sam­keppni væri búið að vera, ekki síst eftir að hann fékk Nóbels­verð­laun 1992. Villi­mann­leg skað­semi frjáls­hyggj­unnar hefur kostað okkur Íslend­inga tals­vert og ekki virð­ist endir á, jafn­vel þó svo enn einn hag­fræð­ing­ur­inn sem ekki er í frjáls­hyggjukórnum skulu nú á Nóbels­verð­laun 2016.

Auglýsing

Í Rúss­landi var þessi aðferð reynd 1992-4undir stjórn einka­væð­ing­ar­ráð­herr­ans Anatolií Tsju­bais, Öllum almenn­ingi voru gefin hluta­bréf í öllum rík­is­fyr­ir­tækj­u­m. Afleið­ingin var sú að hákarl­arnir og flokks­menn í Komm­ún­ista­flokknum keyptu hluta­bréfin (vouchera) af félitlum almenn­ingi fyrir slikk. Þannig urðu til svo­nefndir olig­ar­k­ar, fákeppn­is­risar sem eiga nú bróð­ur­part­inn af því sem sam­fé­lagið átti sam­eig­in­lega. Allt var þetta gert í nafni frelsis og lýð­ræðis undir stjórn og ráð­gjöf hjarða af amer­ískum hag­fræði­pró­fess­or­um.

Sama er nú í ráði hér sam­kvæmt ráða­gerð Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem er lík­ari flokki Pútíns , Rúss­neskri Ein­ingu, en allir aðrir stjórn­mála­flokkar á Vest­ur­lönd­um. Í nafni dreifðrar eign­ar­að­ild­ar, frelsis og lýð­ræðis ætla þessir menn að gefa öllum hluta­bréf í bönk­un­um, þannig að auð­velt verður fyrir íslenska olig­arka að ná meiri­hluta­valdi í íslenskum bönkum fyrir slikk. Þannig er komið aftan að kjós­end­um, það er kölluð almanna­væð­ing sem er í raun einka­væð­ing aftan frá.

Höf­undur er lektor í hag­fræði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None