Hvar er Hamfarasjóður?

Ari Trausti Guðmundsson, þingamaður Vinstri grænna, spyr hvenær sé að vænta aðgerða í samræmi við ákvörðun fyrrverandi ríkisstjórnar og setja á fót sérstaka stofnun til að sinna verkefnum Hamfarasjóðs?

Auglýsing

Rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti á fundi sínum 16. febr­úar 2016 að stofn­aður yrði sér­stakur sjóð­ur, Ham­fara­sjóð­ur, sem hefði það hlut­verk að sinna for­vörnum og sam­hæf­ingu verk­efna nátt­úru­vár, og um leið verk­efna á sviði for­varna. Ham­fara­sjóður á jafn­framt að hafa umsjón með greiðslu til­tek­ins kostn­aðar opin­berra aðila og bóta í tak­mörk­uðum til­vikum vegna tjóns sem verður af völdum nátt­úru­ham­fara. Gert er ráð fyrir að Ham­fara­sjóður verði deilda­skiptur í for­varna- og bóta­sjóð. Fé til hans í upp­hafi fæst úr Ofan­flóða­sjóði og Bjarg­ráða­sjóði. Umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytið átti að vinna að fram­fylgt til­lagna um stofnun ham­fara­sjóðs­ins á grund­velli ákvörð­unar þess­arar rík­is­stjórn­ar. Með­al­kostn­aður rík­is­sjóðs á ári 2008 til 2016, vegna ham­fara, nam 456 millj. kr., þannig að þetta er greini­lega stórt mál.

Fyr­ir­spurnir á Alþingi

Ég lagði eft­ir­far­andi fyr­ir­spurnir fyrir umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra fyrir skömmu: Hvenær er að vænta aðgerða í sam­ræmi við ákvörðun fyrr­ver­andi rík­is­stjórn­ar? Er gert ráð fyrir að sett verði á lagg­irnar sér­stök stofnun til að sinna verk­efnum Ham­fara­sjóðs eða hvernig verður þeim sinnt að öðrum kosti? Hvernig sér ráð­herra fyrir sér nægt fjár­magn, að það verði tryggt með ein­hverju móti? Allt eru þetta mik­il­vægar spurn­ingar vegna þess að með ein­hverju móti hefur farið svo að frá því í febr­úar 2016 hefur mjög litlum fregnum farið af Ham­fara­sjóði.

Blikur á lofti?

Umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra svar­aði því til að unnið væri að frum­varpi sem koma muni fram á þessu ári. Ekki var ljóst af svörum ráð­herra hvernig þessum sjóði verði stýrt eða hvar hann skuli vistað­ur. Hann mun inni­halda millj­arða króna og ekki ákveðið enn hvernig að frek­ari fjár­mögnun hans verði stað­ið. 

Auglýsing

Varla þarf að fjöl­yrða um eld­virkni og jarð­skjálftavá á Íslandi eða um snjó­flóð, og jök­ul­hlaup eins og í Skaftá, með til­heyr­andi land­skemmd­um, og þaðan af síður um Bárð­ar­bungu, Heklu, Kötlu eða Grím­svötn. Næg til­efni eru til þess að ljúka sem allra fyrst við þennan þátt í við­brögðum við nátt­úru­vá. 

Höf­undur er þing­maður VG í Suð­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None