Kæri tölvunarfræðinýnemi

Kristófer Guðmundsson skrifar um tölvunarfræði og hvetur nýja nemendur til að láta sígjammandi gaura sem þykjast allt vita ekki hafa áhrif á sig og telja sig ekki eiga erindi í námið.

Auglýsing

Kæri tölv­un­ar­fræðiný­nemi. Til ham­ingju með að hefja þennan áfanga í líf­inu þínu. Þetta er vissu­lega stórt skref inn í fram­tíð­ina, líkt og ófáar eldri frænkur hafa sagt þér. Sú sem stýrir tölvum stýrir fram­tíð­inni. Í tímunum með þér verða þónokkrir for­rit­un­ar­guðir (í minni reynslu eru þeir yfir­leitt strák­ar) sem munu líta út fyrir að vera hálfir menn og hálfar tölv­ur. Í því sam­bandi vil ég leggja þér eitt ráð: Láttu ekki blekkja þig. Ekki halda að vegna þess að sígjamm­andi gaur­inn fyrir aftan þig „hefur sko alveg kóðað ser­vera“ þá eigir þú ekki erindi í þetta nám.

Dreif­ingin í tölv­un­ar­fræði er víð, til er fólk sem hefur for­ritað frá því þau voru börn en lang­flest­ir, þ.m.t. ég, höfðu varla komið í snert­ingu við neinn bak­enda fyrir fyrsta fyr­ir­lest­ur­inn. Það eru um 250 manns með þér í til­teknum áfanga. Að öllu gefnu eru 20 strákar sem kunna að for­rita afskap­lega vel. Þeir eru hávær­ir, spyrja leið­in­legra spurn­inga og passa að allir taki eftir sér. Ekki pæla neitt í þeim. Bók­staf­lega tugir ann­arra eru með þér í tíma sem vita minna en þú. Lang­flestir eru á pari við þig en þú tekur ekki eftir því, því fæstir þora að tjá sig í tíma eða spyrja spurn­inga af ótta. Öllum finnst þau vera verst í bekkn­um, að falla, vita ekk­ert, eiga að hætta. Eina sem þú átt að hætta er að hugsa þannig. Háskóla­nám er til þess að læra af, eng­inn myndi gera ráð fyrir að þú gætir fram­kvæmt hjarta­þræð­ingu á fyrsta degi í lækn­is­fræði. Mættu á fyr­ir­lestra, veittu náms­efn­inu athygli, skil­aðu verk­efnum og gerðu þitt besta. Þrjú ár líða hratt og áður en þú veist af verður þú Senior Software Engineer í risa­fyr­ir­tæki eða jafn­vel búin að stofna þitt eigið fyr­ir­tæki og sigra heim­inn. Ekki láta nokkra gaura koma í veg fyrir það.

Hug­ur­inn ber þig aðeins hálfa leið, rass­inn rest­ina. Sestu, kóð­aðu og taktu fram úr þessum sígjamm­andi gaur­um.

Auglýsing

Höf­undur er 2. árs nemi í hug­bún­að­ar­verk­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar