Auglýsing

Kór­óna­vírus­inn í Kína hefur kallað fram umfangs­mestu opin­beru aðgerðir í ára­tugi, þegar kemur að ferða­banni fólks. Tug­millj­óna borgum hefur verið lok­að, útgöngu­banni komið á og flug­sam­göngur – til og frá Kína og fleiri svæða – felldar nið­ur. Umfangið er gríð­ar­legt.

Upp­lýs­ing­arnar frá Kína hafa ekki svarað öllum mik­il­vægum spurn­ing­um, en það eitt er vitað að vírus­inn hefur breiðst hratt út, og yfir­völd í Kína reyna nú allt til að ná að hefta útbreiðsl­una – og hafa kallað eftir víð­tæku sam­starfi við þjóðir heims­ins. 

Þjóðir eins og Banda­rík­in, Frakk­land og fleiri, hafa beint því til borg­ara sinna að koma sér frá Kína og öðrum svæð­um, þar sem útbreiðslan hefur verið hröð­ust. Víð­tækt sam­starf ríkja hefur verið virkj­að.

Auglýsing

Í máli Jer­ome Powell, seðla­banka­stjóra Banda­ríkj­anna, á fundi bank­ans í gær, var miklu púðri eytt í vírusinn, og hann sagður vera ein mesta óvissan þegar kæmi að horfum efna­hags­mála í heim­inum þessi miss­er­in. Seðla­bank­inn fylgist grannt með, enda verk­efni hans marg­slung­ið, með yfir 60 pró­sent af gjald­eyr­is­forða heims­ins í Banda­ríkja­dal.



Í For­eign Policy hefur komið fram, að mörgum spurn­ingum sé ósvar­að, en meðal þess sem almenn­ingur víða um heim hefur séð, í gegnum frétta­mynd­ir, er skelfi­legur aðbún­aður á mörgum mat­ar­mörk­uðum í Asíu. 

Hrein­læti, öryggi og ábyrgð í fram­leiðslu, er ekki það sem kemur upp í hug­ann, þegar þessar myndir koma fyrir aug­un.

Fyrir lítið eyríki eins og Ísland - sem á allt sitt undir góðu aðgengi að mark­aðs­svæðum heims­ins, og ekki síst stöð­ugum og góðum flug­sam­göngum – þá er hætta á ferð­u­m. 

Til skamms tíma geta áhrifin verið þó nokkur á við­skipti almennt, en til lengdar ætti Ísland og íslensk fyr­ir­tæki, að hafa tæki­færi og mikið fram að færa.

Lík­legt verður að teljast, að enn meiri kröfur verði gerðar til mat­væla­fram­leiðslu, vegna Kór­óna­víruss­ins, og þeirra gríð­ar­legu áhrifa sem hann hefur nú þegar haft, og mun hafa áfram.

Ísland hefur mun meira fram að færa, þegar að þessum kem­ur, en margar aðrar þjóð­ir, og það getur einnig unnið með okkur að vera eyríki - að vissu leyti ein­angrað frá umheim­in­um. 

Auð­velt er að draga fram hvernig fram­leiðsla hefur farið fram og heil­brigð­is- og örygg­is­kröfur á Íslandi eru mun meiri en gengur og ger­ist á mörgum öðrum mark­aðs­svæð­um, meðal ann­ars í Asíu og mun víð­ar.

Von­andi tekst alþjóða­sam­fé­lag­inu að bregð­ast við af nægi­lega miklum krafti, til að hefta útbreiðslu veik­inda, sem hafa nú þegar leitt til margra dauðs­falla. Eitt af því sem Ísland getur lagt til, er þekk­ing á upp­bygg­ingu inn­viða við mat­væla­fram­leiðslu sem tryggja betur heil­brigði og öryggi. Mikil þörf er á alheims­átaki á þessu sviði, eins og skelfi­leg birt­ing­ar­mynd þessi miss­erin sýn­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari