Incurvatus in se

Örn Bárður Jónsson skrifar um að vera kengboginn inn í sjálfan sig.

Auglýsing

Fyr­ir­sögnin er lat­neskt orð­tak og merkir að vera keng­bog­inn inn í sjálfan sig. Ágústínus kirkju­faðir (354-430 e.Kr.) bjó til þessa hug­taka­þrennu og skil­greindi mann­inn, karl og konu, sem keng­bog­inn inn í sjálfan sig í stað þess að vera úthverfur og beina sjónum sínum að Guði og náung­an­um. Mart­einn Lúther not­aði þetta sama orð­tak um mann­inn, mann­eskj­una. Mað­ur­inn er keng­bog­inn inn í sjálfan sig. Og í þessu sam­bandi tal­aði hann um hinn synd­uga mann. 

Hver er synd­ug­ur?

Svarið er: All­ir! Við erum öll því marki brennd að líf okkar er skrykkj­ótt og ein­kenn­ist af mis­tökum og ófull­kom­leika. Þannig er líf okkar mann­fólks­ins á þess­ari jörð. Við erum mis­tæk, í okkur er brota­löm, geigun sem er lauk­rétt merk­ing orðs­ins synd í Nýja testa­ment­inu, sem ritað var upp­haf­lega á grísku.

Auglýsing
Orðið þar er ham­artia, geig­un. Kylfing­ur­inn slæsar og húkkar eins og það heitir á golf­máli og hann miss­ir pútt og honum er refsað í leikn­um. Honum eða henni mis­tekst í lífs­leikn­um. Fólk klúðrar mjög mörgu. Það er syndin í sinni grunn­mynd skv. skil­grein­ingu kristn­innar á mann­eskj­unni sem er í senn frá­bær og mis­tæk. Enga betri skil­grein­ingu á eðli mann­eskj­unnar hef ég fundið á lífsævi minni. Enga.

Við missum marks

Þetta er saga okk­ar, þín og mín. Við geig­um, lendum upp á kant við hvert ann­að, móðgumst út af mis­skiln­ingi, förum í fýlu, verðum orð­ljót, sjáum ekki aðal­at­riðin fyrir smælki sem trufl­ar, tökum rangar ákvarð­an­ir, sumir verða að segja af sér sem emb­ætt­is­menn vegna klaufa­skaps og for­dóma, allt of margir opin­berir starfs­menn standa vörð um sér­hags­muni og svindl án þess að blikna, menn ærast af auði, við ökum öll út af lífs­veg­inum fyrir ein­skæran klaufa­skap og lendum úti í skurði. En við komumst ávalt uppá veg­inn aftur og finnum fótum okkar for­ráð um stund. En við erum og verðum áfram inc­ur­vatus in se því það ástand hverfur aldrei meðan þessi jörð snýst og sólin sendir geisla sína yfir heim­inn - skepnu Guðs.

Sumum kann að þykja þessi mann­skiln­ingur dimmur og drunga­legur en hann er í raun­inni til­raun til að finna jafn­vægi milli tveggja and­stæðra póla og því má segja að krist­inn mann­skiln­ingur sé þessi: 

Mað­ur­inn (karl og kona) er kór­óna sköp­un­ar­verks­ins, frá­bær, fal­legur og flinkur, en -og það er stórt EN - hann er um leið mis­tæk­ur, klaufskur og hættir til að hugsa fremur um eigin hag en ann­arra.

Næsti pist­ill minn mun fjalla um þau sem eru hvað bogn­ust inn í heim tækn­inn­ar.

Höf­undur er fyrr­ver­andi sókn­­ar­­prest­­ur.

Hér er hægt að hlusta á upp­lestur á grein­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar