Internetið hefði aldrei átt að verða til (að minnsta kosti í núverandi mynd)

Kjartan Sveinn Guðmundsson fjallar um það hvernig upplýsingar sem séu mannskemmandi standi fólki til boða vegna tilveru internetsins.

Auglýsing

Ég meina það. Ef inter­netið hefði ekki farið út fyrir veggi banda­ríska hers­ins og háskóla væri heim­ur­inn betri stað­ur. Ég væri betri mann­eskja. Haus­kúpan sem öll til­vist mín fer fram í væri tölu­vert verð­mæt­ari fast­eign. En atburðir hafa átt sér stað sem gera mér ókleift að sofa, nema ef ég kem þeim frá mér. Með tár í auga og verk í mag­an­um, biðst ég inni­legrar afsök­unar til þín kæri les­andi.

Árið er 2007 og alvar­lega ein­hverfur maður að nafni Christ­ian semur eró­tíska mynda­sögu um ímynd­aðan vin sinn/alt­er-egó að nafni Son­ichu, blöndu Sonic the Hed­gehog (blár brodd­göltur sem var vin­sæll í spila­kössum sinnar tíð­ar) og Pikachu (gult dýr úr Poké­mon sam­tím­ans). Sagan er svo léleg og mað­ur­inn sem semur þær svo aumk­un­ar­verður að hann verður að stór­stjörnu á 4Chan, sem er núna aðal­lega tengd við hat­urs­glæpa­menn og Trump, þar sem hún er mið­stöð hvítra öfga­manna á net­inu.

Því fylgir stans­laus árás á Chris, sem sér ekki mun á vinum og aðilum undir fölsku flaggi. Tugir nekt­ar­mynd­banda þessa and­lega skerta ein­stak­lings er lekið ásamt heim­il­is­fangi og per­sónu­upp­lýs­ing­um, sem hann gefur fús­lega til þeirra sem hann heldur að séu vinir sín­ir. Það eina sem veitir honum huggun eru teikni­mynd­irnar sem hann semur og móðir hans. Sumt á ekki að vera til og þessi saga (sem er sönn) er ein þeirra hluta.

Ár líða og Christ­ian gefur Son­ichu upp á bát­inn. Hann hefur verið sann­færður með aðstoð vina sinna að hann getur flakkað um vídd­ir, hann hefur ráð­ist á starfs­fólk versl­ana vegna lit­ar­skekkju á fígúru sem var til sölu, kveikt í sínu eigin heim­ili og tekið upp eró­tísk skrif (um vin­konur sín­ar). Lengi skal mann­inn kvelja, en árið 2014 verður Christ­ian að Christine, sem telur sig vera gyðju og að Son­ichu (Sonic og Pikachu, úr tölvu­leikjum fyrir börn)  sé hún sjálf og að heim­arnir sem hún skap­aði í mynda­sögu og hennar eigin munu bland­ast sam­an.

Auglýsing
Christine hefur ekki átt sjö dag­anna sæla og ásamt and­legum vand­ræðum bæt­ast nú við fjár­hags­legir erf­ið­leik­ar. Christine neitar að fá sér vinnu, þar sem hún er oft­ast nær and­setin hinum og þessum per­sónum úr sjón­varps­þáttum og teikni­myndum í allt að heilt ár í senn. Margir aðdá­endur og áhorf­endur Christine hætta að fylgj­ast með henni, enda er ekk­ert að frétta nema hvað móðir henn­ar, átt­ræð kona með alzheimers, fer sífellt hrörn­andi.

Áhugi inter­nets­ins er hins­vegar end­ur­upp­vak­inn þessa dag­anna, því Christine hefur játað að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á móður sinni og sætir núna ákær­um.

Þessar upp­lýs­ingar eru ein­ungis til vegna inter­nets­ins, ég veit þetta ein­ungis vegna inter­nets­ins og þú veist þetta núna vegna inter­nets­ins. Ég átti gott sum­ar. Ég var ham­ingju­sam­ur. Ég er brotin mann­vera og held að það sé aðal­lega vegna offram­boðs gagns­lausra og mann­skað­andi upp­lýs­inga sem gera mér ekk­ert nema lífið leitt. Inter­netið má alveg hverfa mín vegna, ég ætla að verða ein­búi í afdölum hvort sem er.

Höf­undur er nemi við Mennta­­­skól­ann á Akur­eyri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar