Móðurfélag Norðuráls dregur verulega úr framleiðslu í Bandaríkjunum

Century Aluminum hefur þegar lokað einu álveri af fjórum í Bandaríkjunum og minnkað framleiðslu í öðru. Nú varar félagið við lokun þriðja versins og minni framleiðslu þess fjórða.

Álverð hefur lækkað verulega undanfarið, og forstjóri Century segir framleiðslu Kínverja og niðurgreiðslur hafa mikið að segja.
Álverð hefur lækkað verulega undanfarið, og forstjóri Century segir framleiðslu Kínverja og niðurgreiðslur hafa mikið að segja.
Auglýsing

Ál­ver Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga verður að óbreyttu eina álver Cent­ury Alu­m­inum í fullri fram­leiðslu á áli, frá og með ára­mót­u­m. ­Fyr­ir­tækið hefur á síð­ustu dögum sent frá sér við­var­anir um að álveri í Mt. Holly í Suð­ur­-Kar­ólínu verði lokað um ára­mót og að fram­leiðsla álvers fyr­ir­tæk­is­ins í Sebree í Kent­ucy verð­i minnkuð um þriðj­ung.

Í júní á þessu ári hafði verið til­kynnt að álveri í Ra­venswood í Vest­ur­-Virg­iníu yrði end­an­lega lok­að, en fram­leiðslu þar var hætt árið 2009. Skömmu síðar var til­kynnt að vinnsla í álver­inu í Hawes­ville í Kent­ucy yrði lækkuð í um 40 pró­sent af afkasta­get­unni.

Sam­kvæmt Cent­ury er lokun álvers­ins í Mt. Holly fyrst og fremst vegna þess að núver­andi samn­ingur um orku til álvers­ins rennur út um ára­mót­in. Búið er að gera nýjan samn­ing um orku til álvers­ins, en ekki hefur tek­ist að semja um flutn­ing á orkunni, að sögn Mich­ael Bless, for­stjóra Cent­ury Alu­m­inum. Hann segir fyr­ir­tæk­ið hafa boð­ist til að borga fullt verð fyrir flutn­ing á orkunni, en það hafi ekki dugað til. Þetta segir hann óásætt­an­legt og að barist verði fyrir fram­tíð álvers­ins næstu mán­uði.

Auglýsing

Mik­ið tap á þriðja árs­fjórð­ungi

Cent­ury skil­aði fyrir helgi árs­fjórð­ungs­upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung 2015, þar sem fram kemur að tap félags­ins var ­rúm­lega 56 millj­ónir Banda­ríkja­dala á tíma­bil­inu. Búið var að ­gefa út við­vör­un­ina vegna álvers­ins í Mt. Holly fyrir upp­gjörið, en ekki um álverið í Sebree í Kent­ucy. Það var gert degi eft­ir að upp­gjörið birt­ist.

Bless hefur verið tíð­rætt um álf­ram­leiðslu Kín­verja sem stóra á­stæðu fyrir vand­ræðum fyr­ir­tæk­is­ins, og það kemur einnig fram í ummælum hans í tengslum við árs­fjórð­ungs­upp­gjör­ið. Hann telur að það sé ein­fald­lega ekki hægt að keppa við ­út­flutn­ing Kín­verja á áli, vegna þess að iðn­að­ur­inn þar sé ­nið­ur­greiddur á ósann­gjarnan hátt. „Það verður að grípa til aðgerða strax vegna þess­arar ósann­gjörnu hegð­unar og við erum að vinna með geir­anum og banda­rískum stjórn­völdum til að ­gera það.“

Hann ­sagði að teknar hafi verið erf­iðar ákvarð­anir og rekst­ur­inn hafi verið end­ur­skipu­lagð­ur, til dæmis með lok­unum og fram­leiðslu­minnk­un. Fyr­ir­tækið muni þannig standa af sér það ­sem gæti orðið erfitt umhverfi um langt skeið.

Hluta­bréfa­verð Cent­ury hefur lækkað veru­lega eftir miklar hækk­anir nán­ast allt árið 2014. Verð á hlut fór hæst í um 31 doll­ara í lok nóv­em­ber í fyrra en við lokun mark­aða í gær var það 4,23 doll­arar á hlut.

Mynd: Birgir Þór

Spáðu miklum þreng­ingum og jafn­vel gjald­þroti

Áð­ur­ en árs­fjórð­ungs­upp­gjörið var birt hafði grein­ing­ar­vef­síð­an ­Seek­ing Alpha spáð því að hluta­bréfa­verð myndi falla um allt að 50% og mögu­lega væri gjald­þrot framundan hjá félag­inu, eins og Kjarn­inn greindi frá.

Í ­grein­ing­unni eru færð rök fyrir því að Cent­ury hafi grætt á frá­viki sem varð á Mid­west álag­inu ofan á álverð árið 2014, ­sem hafi aukið tekjur fyr­ir­tæk­is­ins veru­lega í fyrra og á fyrri helm­ingi árs­ins í ár. Mid­west álagið (MWP) er álagið sem á­kvarðar sölu­verð á áli í Banda­ríkj­un­um. Nú hefur þessi ­staða hins vegar gjör­breyst og álagið hríð­lækk­að. Lækk­un­in hefur hins vegar ekki enn komið almenni­lega fram í töl­u­m ­fyr­ir­tæk­is­ins og hluta­bréfa­verði þess, að mati grein­ar­höf­und­ar hjá Seek­ing Alpha. Hluta­bréfa­lækkun sem vissu­lega hefur orð­ið und­an­farið hafi að megn­inu til stafað af almennum áhyggjum af efna­hags­á­standi og veik­ara álverði.

Þessi gríð­ar­lega hækkun á álag­inu varð til þess að EBITDA hagn­aður Cent­ury fór úr 11 millj­ónum Banda­ríkja­dala árið 2013 í 217 millj­ónir dala árið 2014. Næstum öll hækk­unin var vegna hærra álags, þar sem álverð á álmark­aði London Metal Exchange (LME) hélst nán­ast það sama, en það fer nú lækk­andi eins og kunn­ugt er. Breyt­ing á álag­inu um 22 doll­ara á tonn jafn­gildir fimmtán millj­óna dala breyt­ingum á EBIDTA hjá fyr­ir­tæk­inu, svo að jafn­vel þótt álagið hald­ist þar sem það er nú muni EBIDTA hagn­aður Cent­ury Alu­m­inum lækka um 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Grein­ing­ar­að­ilar spá því að minni eft­ir­spurn á alþjóða­vísu, og offram­boð af áli, muni halda áfram að ýta verði á áli niður á við á næstu tveimur árum. Spár sem Seek­ing Alpha taka með í reikn­ing­inn gera ráð fyrir því að verðið lækki um tíu pró­sent á næsta ári til við­bótar við þá lækkun sem orðið hefur á þessu ári.

„Í bjart­sýnni sviðs­mynd þar sem LME verð hald­ast flöt á núver­andi verð­inu 1.550 dalir á tonn mun EBITDA félags­ins lækka um 270 millj­ónir dala. Ef mark­að­ur­inn hefur rétt fyrir sér og verðin lækka um tíu pró­sent, lækkar EBITDA um 50 millj­ónir dala til við­bót­ar,“ segir í grein­ing­unni á Seek­ing Alpha.

Samn­inga­við­ræð­ur­ við Lands­virkjun hafnar

Álver­ið á Grund­ar­tanga kaupir orku af Lands­virkj­un, Orku­veitu Reykja­vík­ur­ og HS Orku. Sam­kvæmt grein­ingum á raf­orku­verði til álvera á Ís­landi, sem Ket­ill Sig­ur­jóns­son hefur gert, greiðir Norð­ur­ál lægsta raf­orku­verð allra álvera til Lands­virkj­un­ar. Samn­ing­ur Norð­ur­áls og Lands­virkj­unar rennur hins vegar út árið 2019 og ­samn­inga­við­ræður um fram­leng­ingu eru hafn­ar. Mich­ael Bless hef­ur ­sagt að sam­kvæmt samn­ingnum eigi að ganga frá fram­leng­ing­unni á þessu ári.

Lands­virkj­un hefur und­an­farin ár gert allt öðru­vísi samn­inga en tíðk­að­ist þegar núver­andi samn­ingur var gerð­ur, og því er ljóst að verðið sem Norð­ur­áli mun bjóð­ast verður hærra en nú er. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None