Nettengingum hjá 365 hefur fækkað á árinu - Síminn með helmings hlutdeild

Síminn er með 60 prósent hlutdeild í netsjónvarpsþjónustu en Vodafone 40 prósent.

365
Auglýsing

Þeim sem voru með­ ­netteng­ingu hjá 365 fækk­aði á fyrri helm­ingi árs­ins 2015. Um síð­ustu ára­mót voru þeir um 15.551 tals­ins en hafði fækkað niður í 14.558 um mitt þetta ár. Um helm­ingur nett­teng­inga á Íslandi eru hjá Sím­an­um. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn sem birt var í gær.

Við­skipta­vinum Hringdu fjölg­aði mikið

Staða Sím­ans og Voda­fone á íslenskum netteng­inga­mark­aði er mjög sterkt, en Nova, sem náð hef­ur ­miklum árangri á far­síma­mark­aði, býður ekki upp á land­línu­teng­ing­ar. Um helm­ingur allra slíkra teng­inga í land­inu er hjá Sím­anum og 29 pró­sent hjá Voda­fo­ne.

Auglýsing

Það fyr­ir­tæki sem bætir hlut­fal­lega flestum teng­inum við sig und­an­farin miss­eri er þó Hringdu. Um mitt ár í fyrra voru við­skipta­vinir þess 4.186 tals­ins en voru í lok júní 2015 orðnir 6.028. Það er aukn­ing um 44 pró­sent á einu ári.

365 miðlar hófu að ­bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti í haustið 2013. Fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Tali var síðan rennt inn í 365 í des­em­ber 2014. 365 er einnig stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Það rekur fjölda ­sjón­varps­stöðva, útvarps­stöðva, næst mest lesna vef­miðil lands­ins og mest lesna dag­blað lands­ins.

365 miðlar leggja ­mikið upp úr því að vöndla saman sölu á neti, heima­síma, GSM og ­sjón­varps­á­skriftum með hag­stæðum til­boð­um. Þessir vöndlar eru síðan aug­lýst­ir af miklum krafti á miðlum fyr­ir­tæk­is­ins. Það virð­ist hins vegar ekki hafa skilað aukn­ingu í seldum inter­netteng­in­um. Þvert á móti fækkar þeim við­skipta­vinum sem eru með teng­ingar hjá 365 á fyrri hluta þessa árs. Um ­síð­ustu ára­mót voru þeir 15.551 en voru 14.558 í lok júní.

Sex af hverjum tíu „box­um“ hjá Sím­anum

Í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar er nú birt í fyrsta sinn yfir­lit yfir heild­ar­fjölda á­skrif­enda með sjón­varp yfir IP-­net. Þ.e. hvernig „sjón­varps­box­in“ skipt­ast á milli­ þeirra aðila sem bjóða við­skipta­vinum sínum upp á að vera með sjón­varp í gegn­um ­netteng­ing­ar. Þeir aðilar eru tveir, Sím­inn og Voda­fone og þeir virð­ast hafa ­skipt mark­aðnum nokkuð bróð­ur­lega á milli sín á und­an­förnum árum. Sím­inn er með­ um 60 pró­sent mark­aðs­hlut­deild en Voda­fone um 40 pró­sent. Og þannig hef­ur ­staðan verið árum sam­an.

Þar skipt­ir ugg­laust miklu máli að ekki er hægt að tengj­ast sjón­varpi Sím­ans í gegn­um ­ljós­leið­ara­net, sem byggst hefur upp á und­an­förnum árum, heldur bara sjón­varpi Voda­fo­ne. Þess í stað býður Sím­inn upp á svo­kallað ljós­net, sem teng­ist inn í heim­ili í gegnum kop­ar­taug. Voda­fone er enda með um 61 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í ljós­leið­ara­teng­ing­um. Þar hefur 365 bætt tölu­vert við sig og er nú með 16 ­pró­sent hlut­deild. Hringdu er síðan með 11,7 pró­sent hlut­deild. Tvær af hverj­u­m ­þremur ADS­L-teng­ingum lands­ins eru hins vegar hjá Sím­an­um.

Meiri harka fær­ist í sjón­varps­mark­að­inn

Ljóst er að mun ­meiri harka er að fær­ast í þennan hluta fjar­skipta­mark­að­ar­ins nú en áður hef­ur ver­ið, enda neyslu­venjur fólks gjör­breyttar frá því sem áður var. Nú er öll á­hersla á hliðrað efni, ekki línu­legt, og þessi rót­grónu fjar­skipta­fyr­ir­tæki eru bæði farin að bjóða upp á mikið magn af efni til kaups í gegn­um ­sjón­varps­við­mót sitt. Þau við­mót hafa til að mynda tekið algjör­lega við hlut­verki mynd­bands­leiga sem áður voru á hverju horni á Íslandi. Nú leigir fólk ­myndir með því að ýta á takka á fjar­stýr­ingu frá Sím­anum eða Voda­fo­ne.

Auk þess á Sím­inn ­sjón­varps­stöð­ina Skjá­Einn. Fyr­ir­tækið steig stórt skref í bar­átt­unni á sjón­varps­mark­aði í byrjun októ­ber þegar línu­leg dag­skrá Skjá­sEins var opn­uð, öflugri (og kostn­að­ar­samri) vetr­ar­dag­skrá var rúllað fram og áskrift að Skjá­Einum gerð að áskrift í gagn­virkni efn­isveitu. Með þessu herj­aði Sím­inn á nú­tíma­sjón­varps­mark­að.

Áhorf á línu­lega ­dag­skrá Skjá­sEins hefur tekið kipp upp á við eftir að þessar breyt­ingar vor­u kynntar og ljóst að sá fríi val­kostur sem frír SkjárEinn er mun hafa tölu­verð á­hrif í bar­átt­unni við 365 miðla um áskrif­end­ur.

Mikil velta en ­tölu­verð fjár­fest­ing

Fjar­skipta­geir­inn á píp­urnar sem mynda grunn­inn að mestu bylt­ingu sem heim­ur­inn hefur upp­lifað frá­ iðn­bylt­ing­unni. Það er bæði arð­samt og kostn­að­ar­samt.

Í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar er birt yfir­lit yfir bæði heild­ar­tekjur af fjar­skipta­starf­sem­i og þá fjár­fest­ingu sem átt hefur sér stað í geir­an­um.

Tekjur af fjar­skipta­starf­semi voru 26.280 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins 2015 og juk­ust um 3,3 pró­sent á milli ára. Hald­ist þessi hlut­falls­lega hækkun út árið verða heild­ar­tekur geirans um 54 millj­arðar króna í ár, eða tæp­lega sex millj­örðum krónum hærri en þær voru árið 2012.

Breyt­ing­arnar sem orðið hafa á und­an­förnum árum hafa hins vegar einnig kallað á mikla fjár­fest­ing­u. Á árunum 2012 til 2014 námu fjár­fest­ingar í fjar­skipta­starf­semi sam­tals rúm­um 20 millj­örðum króna. Á fyrstu sex árum árs­ins í ár námu þær 3,7 millj­örð­u­m króna.

Þetta er seinni hluti umfjöll­unar Kjarn­ans um nýbirta skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn. Fyrri hlut­ann má lesa hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None