Umboðsmaður átti að birta bréfin til Hönnu Birnu og á að fá meira fé

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er einhuga um að sú forgangsröðun sem umboðsmaður Alþingis sýndi í lekamálinu, og forystumenn ríkisstjórnarinnar hnýttu í, hafi verið eðlilegt verklag. Nefndin vill að embættið fái aukafjárveitingu upp á 15 milljónir.

Frá fundi umboðsmanns Alþingis með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í janúar, þegar hann kynnti niðurstöðu frumkvæðisathugunar sinnar á lekamálinu.
Frá fundi umboðsmanns Alþingis með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í janúar, þegar hann kynnti niðurstöðu frumkvæðisathugunar sinnar á lekamálinu.
Auglýsing

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd telur það grund­vall­ar­at­riði að umboðs­manni Alþingis verði gert kleift að starfa fag­lega og að emb­ættið fái nægi­legt fjár­magn til að sinna lög­bundnum verk­efnum sín­um ­með þeim hætti sem hann telur full­nægj­and­i. 

Nefndin telur einnig að sú ­for­gangs­röðun sem umboðs­maður sýndi í leka­mál­inu, og opin­ber birt­ing á bréf­um til ráð­herra, sem for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar hnýttu í við með­ferð máls­ins, hafi verið eðli­legt verk­lag. Hún telur það vera grund­vall­ar­at­riði að umboðs­mann­i verði tryggð 15 millj­óna króna auka­fjár­veit­ing til að geta ráð­ist í frum­kvæð­is­mál sem séu „mik­il­væg­ur þáttur í starfi umboðs­manns og því hlut­verki sem hann gegnir í að auka réttar­ör­yggi borg­ar­anna.“

Þetta kem­ur fram í áliti stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar um skýrslu umboðs­manns Alþing­is ­fyrir árið 2014, sem birt var í dag. Athygli vekur að ein­hugur er í nefnd­inn­i. Allir nefnd­ar­menn, sem koma úr öllum flokkum sem sæti eiga á Alþingi, skrif­a undir álit­ið. Líka þeir sem til­heyra stjórn­ar­flokk­unum tveim­ur.

Auglýsing

Stendur til að skera niður en nefndin vill auka fram­lög

Sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi breyt­ing­ar­til­lögu á fjár­laga­frum­varpi næsta árs verða fram­lög til emb­ætt­is­ins skorin niður um 13 millj­ón­ir króna frá upp­runa­legu fjár­laga­frum­varpi, og er það rök­stutt með því að hús­næð­is­kostn­að­ur­ emb­ætt­is­ins muni lækka. Sú til­laga var lögð fram í byrjun des­em­ber.

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþing­is, mætti hins vegar fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í nóv­em­ber, áður en breyt­ing­ar­til­lagan var lögð fram, til að gefa skýrslu um starf­sem­i emb­ætt­is­ins á árinu 2014. Þar kom m.a. fram að frum­kvæð­is­málum hefði fækk­að veru­lega hjá emb­ætt­inu und­an­farin ár vegna auk­ins mála­fjölda og álags. Nokk­ur frum­kvæð­is­mál bíða afgreiðslu en  ekk­ert slíkt mál hefur form­lega ver­ið ­tekið fyrir á þessu ári en verið er að ljúka einu máli. Í áliti nefnd­ar­inn­ar ­seg­ir: „ Um­boðs­maður lagði á fund­inum áherslu á að það er Alþingis að á­kveða hvaða umfang sé á starf­semi umboðs­manns og að ef vilji er til þess að unnt sé að sinna frum­kvæð­is­málum þurfi að auka fjár­magn til umboðs­manns með 15 millj. króna auka­fjár­veit­ingu. Nefndin telur í ljósi þess hve frum­kvæð­is­mál eru ­mik­il­vægur þáttur í starfi umboðs­manns og því hlut­verki sem hann gegnir í að auka réttar­ör­yggi borg­ar­anna sé það grund­vall­ar­at­riði að emb­ættið fái fjár­veit­ingu til að geta sinnt þessu mik­il­væga verk­efni.

For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar gagn­rýndu umboðs­mann harð­lega

Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi  inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­mað­ur­ ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýndi vinnu­brögð umboðs­manns Alþingis harð­lega í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í ágúst 2014, nokkrum mán­uðum áður en hún­ ­sagði af sér emb­ætti vegna leka­máls­ins. Í yfir­lýs­ingu hennar sagði meðal ann­ar­s að bréf sem umboðs­maður hafði sent henni dag­inn áður vegna leka­máls­ins, og hann birti dag­inn eftir opin­ber­lega, væri fullt af aðdróttn­unum og teng­ingum sem hafi bent til þess að Tryggvi hefði þegar mótað sér skoðun í mál­inu.

Bjarn­i Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­mað­ur­ Fram­sókn­ar­flokks­ins, deildu einnig á umboðs­mann fyrir að birta umrætt bréf op­in­ber­lega, en í því var að finna afhjúp­andi frá­sögn Stef­áns Eiríks­son­ar, þá­ver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, af ítrek­uðum afskiptum og ­þrýst­ingi sem Hanna Birna beitti hann vegna lög­reglu­rann­sóknar á leka­mál­in­u. ­Bjarni gerði „al­var­legar athuga­semd­ir“ við birt­ingu bréfs­ins.

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd ræðir í áliti sínu um ­sam­hengi fjár­veit­inga til umboðs­manns Alþingis og stöðu fram­kvæmd­ar­valds­ins í tengslum við frum­kvæð­is­at­hug­un á leka­mál­inu svo­kall­aða sem hafði grund­valla­r­á­hrif í stjórn­sýsl­unni. Í álit­i hennar segir að við með­ferð máls­ins „hnýttu for­ustu­menn rík­is­stjórn­ar­innar í for­gangs­röð ­um­boðs­manns og opin­bera birt­ingu á bréfum til ráð­herra en það var litið til­ ann­arra emb­ætta á Norð­ur­löndum við það verk­lag. Nefndin telur það eðli­leg­t verk­lag sér­stak­lega þegar litið er til þess að umboðs­maður hefur eng­in þving­unar­úr­ræði heldur er gengið út frá því að fram­kæmd­ar­valds­hafar og ­stjórn­sýslan öll veiti umboðs­manni þær upp­lýs­ingar sem hann óskar eft­ir. ­Nefndin tekur því fram að það er grund­vall­ar­at­riði að umboðs­maður fái nægi­leg­t fjár­magn til að sinna lög­bundnum verk­efnum sínum með þeim hætti sem hann tel­ur ­full­nægj­andi.

Því er ljóst að ­nefndin lýsir sig ósam­mála þeirri gagn­rýni sem sett var fram á umboðs­mann Alþing­is af for­ystu­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar í ágúst 2014.

Ein­hugur þvert á flokka

Í jan­úar birti umboðs­maður nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birn­u Krist­jáns­dótt­ur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stef­áns Eiríks­son­ar, ­fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna rann­sóknar leka­máls­ins svo­kall­aða. Þar segir hann að ráð­herrann, sem þá hafði þegar sagt af sér­ emb­ætt­ið, hafi gengið langt út fyrir vald­svið sitt í mál­inu. Hún hafi haft ít­rekuð og mikil afskipti af rann­sókn leka­máls­ins, sem snérist um leka þá­ver­andi aðstoð­ar­manns henn­ar, Gísla Freys Val­dórs­son­ar, á upp­lýs­ingum um um hæl­is­leit­endur til val­inna fjöl­miðla. Gísli Freyr hlaut átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir lek­ann í nóv­em­ber 2014.

Tryggvi kom fyr­ir­ ­stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd í kjöl­farið til að fara yfir leka­mál­ið, ­nið­ur­stöðu sína og svara spurn­ingum nefnd­ar­manna. Þar sagði hann m.a.: „Kerf­ið ­virk­aði, þetta mál sýnir það.“

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi umboðsmann Alþingis fyrir birtingu bréfsins.Karl Garð­ars­son, ­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sat á þessum tíma í nefnd­inni, en gerir það ekki ­leng­ur. Hann gagn­rýndi umboðs­mann Alþingis fyrir að birta opin­ber­lega bréf sitt til Hönnu Birnu, þar sem sam­skipti hennar við Stefán Eiríks­son voru rak­in, og ­sagði: „Þarna varstu far­inn að reka málið í fjöl­miðlum“. Tryggvi svar­aði því til að það væru upp­lýs­inga­lög í gildi í land­inu sem segðu til um að almenn­ingur hefði rétt á því að vita af þessum sam­skiptum og sjá hvern­ig þeim væri hátt­að.

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd tekur öll undir þessi sjón­ar­mið Tryggva í áliti sínu í sem birt var í dag. Að álit­inu standa Ögmundur Jón­as­son, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Vinstri grænna, Brynjar Níels­son og Birgir Ármanns­son úr Sjálf­stæð­is­flokki, Hösk­uld­ur Þór Þór­halls­son, Willum Þór Þórs­son og Elsa Lára Arn­ar­dóttir úr Fram­sókn­ar­flokknumFram­sókn­ar­flokkn­um, ­Sam­fylk­ing­ar­menn­irnir Árni Páll Árna­son og Helgi Hjörvar og Birgitta Jóns­dótt­ir frá Píröt­um. Auk þess er sér­stak­lega tekið fram að Bryn­hildur Pét­urs­dótt­ir, á­heyrn­ar­full­trúi Bjartrar fram­tíð­ar, sé sam­þykk álit­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None