Heildarvirði Borgunar jókst um 57 prósent á rúmum átta mánuðum

Þegar Landsbankinn seldi hlut sinn í Borgun í nóvember 2014 var fyrirtækið metið á sjö milljarða. Rúmum átta mánuðum síðar var það metið á ellefu milljarða. Í dag er það metið á 19-26 milljarða.

VISA Borgun
Auglýsing

Þegar stjórn­endur Borg­unar seldu tæp­lega 2,8 pró­sent hlut í Borgun í ágúst 2015 var miðað við að heild­ar­virði félags­ins væri ell­efu millj­arðar króna. Það er 57 pró­sent hærra heild­ar­virði en miðað var við þegar Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Borgun í nóv­em­ber 2014, rúmum átta mán­uðum áður. Þetta hefur for­svars­maður Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borg­un­ar, sem keypti hlut stjórn­end­anna í fyr­ir­tæk­inu í ágúst, stað­fest við Kjarn­ann. Engin fyr­ir­vari var gerður í kaup­samn­ingnum um við­bót­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mögu­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc. 

Mikil virð­is­aukn­ing á örfáum mán­uðum

Þegar Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borg­un, seint í nóv­em­ber 2014, var kaup­verðið 2,2 millj­arðar króna. Í við­skipt­unum var því miðað við að heild­ar­virði Borg­unar væri sjö millj­arðar króna. Kaup­and­inn var Eign­ar­halds­fé­lagið Borg­un, sem var og er stýrt af Magn­úsi Magn­ús­syni, sem er skráður með lög­heim­ili á Mölt­u. Þeir sem stóðu að félag­inu ásamt Magn­úsi voru helstu stjórn­endur Borg­unar og ýmsir fjár­sterkir með­fjár­festar sem fengnir voru með í við­skipt­in. Það var ­Magnús sem nálg­að­ist Lands­bank­ann með þá hug­mynd að kaupa hlut bank­ans í Borg­un.

Auglýsing

Síðan hafa átt sér stað ýmis við­skipti með þennan eign­ar­hlut. Tólf stjórn­endur Borg­unar sem tóku þátt í kaup­unum á hlut Lands­bank­ans eiga nú hlut sinn í gegnum félag sem heitir BPS ehf., og hafa raunar átt hann í gegnum það félag frá því seint á árinu 2014. BPS á nú fimm pró­sent hlut í Borgun en Eign­ar­halds­fé­lagið Borg­un, sem ­sam­anstendur af með­fjár­festum þeirra, sem keypti hlut Lands­bank­ans, á 29,38 ­pró­sent hlut.

Eign­ar­halds­fé­lag­ið ­Borgun keypti 36 pró­sent af eign BPS í ágúst síð­ast­liðn­um. Um er að ræða tæp­lega 2,8 pró­senta hlut í Borg­un. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál en Kjarn­inn hefur nú fengið upp­lýs­ingar um að í við­skipt­unum hafi verið miðað við að heild­ar­virði Borg­unar hefði verið ell­efu millj­arðar króna. Það er fjórum millj­örðum krónum meira en heild­ar­virði Borg­unar var metið á þegar Lands­bank­inn ­seldi hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu um átta mán­uðum áður. Þetta stað­festir Magn­ús ­Magn­ús­son, sem fer fyrir Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borg­un, í tölvu­pósti til Kjarn­ans.

Virði Borg­un­ar hækk­aði því um 57 pró­sent frá nóv­em­ber 2014, þegar rík­is­bank­inn Lands­bank­inn ­seldi hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu, og fram í ágúst 2015, þegar BPS ehf. seld­i tæp­lega 2,8 pró­sent af hlut sín­um.

Tóku mið af síð­asta við­skipta­verði

Því fékk BPS, félag ­stjórn­enda Borg­un­ar, rúm­lega 300 millj­ónir króna fyrir þann hlut sem félag­ið ­seldi í ágúst. Það er um meira en 100 millj­ónum krónum meira en félagið greidd­i ­fyrir þann tæp­lega 2,8 pró­sent hlut í nóv­em­ber 2014.

Magnús segir að við­skiptin hafi tekið mið af síð­asta við­skipta­verði með bréf félags­ins.  Það er því ljóst að frek­ari við­skipti áttu sér stað með hluti í Borgun fyrir ágúst 2015, á gengi sem var mun hærra en það sem Lands­bank­inn seldi á í nóv­em­ber 2014. Eng­in ­fyr­ir­vari var gerður um hlut­deild í mögu­legum hagn­aði vegna sölu á Visa Europe í þessum við­skipt­um. Haukur Odds­son, for­stjóri Borg­unar og einn eig­enda BPS, ­segir að það hafi ekki verið gert vegna þess að þeim hafi ekki dottið í hug að val­réttur vegna söl­unnar væri nokk­urs virði á þeim tíma. Þessi hækkun á virði Borg­unar er því ekki bein­tengd við val­rétt­inn, heldur er um við­bót­ar­virð­is­aukn­ingu að ræða.

Í dag er þessi val­réttur sann­kall­aður happa­drætt­is­vinn­ingur sem mun skila Borgun millj­örð­u­m króna. Borgun býst við því að fá 33,9 millj­ónir evra, um 4,8 millj­arða króna, í pen­ingum þegar Visa Inc. greiðir fyrir Visa Europe. Auk þess fær Borg­un, líkt og aðrir leyf­is­hafar innan Visa Europe, afhent for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. að verð­mæti 11,6 millj­ónir evra, eða um 1,7 millj­arðar króna. Til við­bótar mun Visa Inc. greiða leyf­is­höfum afkomu­tengda greiðslu árið 2020 sem mun taka mið af afkomu starf­semi Visa í Evr­ópu á næstu fjórum árum, en hlut­deild Borg­unar af þeirri fjár­hæð mun ráð­ast af við­skiptaum­svifum Borg­unar sem hlut­fall af heild­ar­við­skiptaum­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Því er ljóst að Borgun mun fá um 6,5 millj­arða króna auk afkomu­tengdar greiðslu árið 2020 vegna sölu Visa Europe. 

Virði hluta þeirra sem keyptu orðið gríð­ar­legt

Líkt og áður sagð­i á BPS, félag stjórn­end­anna, enn fimm pró­sent hlut í Borg­un. Eign­ar­halds­fé­lag­ið ­Borgun á 29,38 pró­sent hlut. Sam­kvæmt virð­is­mati sem KPMG vann fyrir stjórn­ ­Borg­un­ar, og Morg­un­blaðið greindi frá fyrr í þessum mán­uði, er virði fyr­ir­tæk­is­ins nú áætlað 19 til 26 millj­arðar króna. Hlutur Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borg­unar er því met­inn á allt að 7,6 millj­arða króna og hlutur BPS, félags stjórn­end­anna, er met­inn á allt að 1,3 millj­arða króna.

Stjórn­end­urn­ir, sem keyptu sinn tæp­lega 7,8 pró­sent hlut á um 540 millj­ónir króna í nóv­em­ber 2014, og ­seldu 36 pró­sent hans á rúm­lega 300 millj­ónir króna í ágúst 2015, hafa upp­lif­að hreina virð­is­aukn­ingu á fjár­fest­ingu sinni upp á allt að rúman einn millj­arð króna á fjórtán mán­uð­um.

BPS skuld­aði 327 millj­ónir króna í lok árs 2014. Ljóst er að salan í ágúst hefur far­ið lang­leið­ina með að greiða upp það skulda­bréf ef vilji var til.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None