Stórir aflandskrónueigendur segja nei takk við Seðlabankann

Einungis tókst að selja evrur fyrir fimm milljarða króna í framhaldsútboði Seðlabankans til aflandskrónueigenda. Ljóst er að stórir bandarískir sjóðir tóku ekki þátt. Þeir eru að kanna grundvöll málsóknar á hendur ríkinu vegna þess aðstæðna sinna.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að síðustu stóru hindruninni hafi verið rutt úr vegi til þess að hægt sé að fara að losa höft á innlenda aðila.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að síðustu stóru hindruninni hafi verið rutt úr vegi til þess að hægt sé að fara að losa höft á innlenda aðila.
Auglýsing

Nán­ast eng­inn þeirra aflandskrónu­eig­enda sem tóku ekki þátt í útboði Seðla­banka Íslands þann 16. júní ákváðu að taka þátt í fram­halds­út­boði þar sem bank­inn bauðst til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjár­hæð sam­þykktra til­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­arðar króna og hækk­aði ein­ungis um fimm millj­arða króna milli útboða. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands sem birt var rétt í þessu. Alls voru 188 millj­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­ar­um­fang aflandskrónu­vand­ans var fyrir það um 319 millj­arðar króna. 

Ljóst er að stærstu eig­endur aflandskróna, nokkrir banda­rískir sjóð­ir, ætla sér ekki að taka þátt í þeim leiðum sem Seðla­bank­inn hefur boðið þeim út úr íslenskum höft­um. Þeir ætla heldur ekki að sætta sig við að eignir þeirra verði settar inn á nær vaxta­lausa reikn­inga í refs­ing­ar­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­unum á því gengi sem Seðla­bank­inn hefur boðið þeim.  Þess í stað hafa sjóð­irnir falið lög­manni sínum að kanna grund­völl fyrir mögu­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­setn­ingar sem sam­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­ar­upp­töku og brot á jafn­ræð­is­reglu.

Stórt skref í átt að losun hafta

Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum vegna nið­ur­stöðu útboðs­ins segir að útboðið hafi verið liður í áætlun rík­is­stjórnar Íslands og bank­ans um losun fjár­magns­hafta og stefnt sé að því að áætlun um losun fjár­magns­hafta á inn­lenda aðila liggi fyrir síðla sum­ars og að frum­vörp sem lúta að næstu skrefum verði lögð fram á þingi þegar það kemur saman í ágúst. „Í fram­hald­inu verður skoðað hvenær og með hvaða hætti losað verður um höft á aflandskrónu­eig­endur sem kusu að taka ekki þátt í útboð­inu. Ljóst er að þátt­takan í útboð­inu mun ein­falda það ferli veru­lega. Eftir standa færri og eins­leit­ari aðilar en áður og útistand­andi fjár­hæð hefur lækkað veru­lega.“

Auglýsing

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segir að með útboð­inu og nýlegum laga­breyt­ingum sé síð­ustu stóru hindr­un­inni rutt úr vegi þess að hægt verði að stíga stór skref til að losa um fjár­magns­höft gagn­vart inn­lendum aðilum án hættu á óstöð­ug­leika. „Aflandskróna­hengjan hefur minnkað úr rúm­lega þriðj­ungi af lands­fram­leiðslu árið 2009 í u.þ.b. 11% af lands­fram­leiðslu að útboði loknu. Þótt ekki hafi verið unnt að taka til­boðum í aflandskróna­eignir að and­virði 105 millj­arða króna auð­veldar það lausn þess vanda sem eftir stendur að eig­endum krafna hefur fækkað mjög. Þá hefur verið búið svo um hnút­ana að aflandskrónur sem eftir standa valdi ekki óstöð­ug­leika á meðan losun fjár­magn­hafta á inn­lenda aðila gengur yfir. Smit­un­ar­á­hrif ættu því að vera hverf­andi og hætta á óstöð­ug­leika lít­il.“

Óhlýðnir áttu að lenda aft­­ast í röð­inni

Frum­varp Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, um með­­­ferð krón­u­­eigna sem háðar eru sér­­­stökum tak­­mörk­un­um, einnig nefnt aflandskrón­u­frum­varp­ið, var sam­­þykkt á Alþingi sunn­u­dag­inn 22. maí. Það var lagt fram eftir lokun mark­aða á föst­u­dag og höf­uð­á­hersla lögð á að frum­varpið yrði að lögum fyrir opn­um mark­aða á mán­u­dag. Þess vegna fékk það mjög hraða með­­­­­ferð í þing­inu og for­­­set­i Ís­lands skrif­aði undir þau aðfara­nótt mán­u­­­dags­ins 23. maí.

Í ein­­­földu máli snú­­ast lögin um að eig­endur „aflandskróna“ myndu fá tvo kost­i. Annar fólst í því að eig­end­­­urnir sam­­­þykki að selja krón­­­urnar sínar á geng­inu 190-220 krónur á hverja evru í útboði sem fór fram 16. júní síð­­ast­lið­inn. Þeir sem myndu ekki sam­­­þykkja að taka þátt í þessu útboð­i myndi bjóð­­ast að fjár­­­­­festa í sér­­­­­stök­um inn­­­­­stæð­u­bréfum útgefnum af Seðla­­­banka Íslands sem bera 0,5 pró­­­sent vexti en vextir á þeim eru end­­­ur­­­skoð­aðir árlega.

Ósam­vinn­u­þýðir aflandskrón­u­eig­end­­­ur, sem myndu neita að taka þátt í aflandskrón­u­út­­­­­boð­inu, áttu reynd­ar fá annað tæki­­­færi til að koma sér út úr íslensku hag­­­kerfi á enn verri kjöru­m frá 1. sept­­­em­ber til 1. nóv­­­em­ber 2016. Þar verður við­mið­un­­­ar­­­gengið 220 krón­­­ur. Stjórn­­völd sögðu að fari þeir ekki út með pen­ing­anna sína þá sé alls óljóst hvenær þeir hafi aftur aðgang að ­eignum sín­­­um. Már Guð­­­munds­­­son seðla­­­banka­­­stjóri sagði við Morg­un­­­blaðið í lok maí að þeir myndu lenda aft­­­ast í röð­inni við losun hafta.

Það vakti umtals­verða athygli að þegar nið­­ur­­stöður útboðs­ins sem fram fór 16. júní voru kynntar þá kom í ljós að stærstu eig­endur aflandskróna höfðu ekki tekið þátt í þeim. Í fram­hald­inu ákvað Seðla­­bank­inn að leggja í fram­halds­­út­­­boð þar sem boð­ist var til að kaupa allar aflandskrón­u­­eignir sem seld­ust ekki á 190 krónur á hverja evr­­u. Nú liggur fyrir að fáir eft­ir­stand­andi eig­endur þeirra höfðu áhuga á að taka þátt.

Telja engar neyð­ar­að­stæður vera uppi í íslensku hag­kerfi

Nálægt 85 pró­­­sent svo­­­kall­aðra aflandsskróna eru í eigu banda­rískra eigna­­­stýr­inga­­­fyr­ir­tækja, sem stýra með­­­al­ ann­­­ars vog­un­­­ar­­­sjóð­­­um. Pétur Örn Sverr­is­­­son hæsta­rétt­­­ar­lög­­­maður og Magnús Árni Skúla­­­son hag­fræð­ingur unnu umsögn um frum­varp stjórn­­­­­valda um losun fjár­­­­­magns­hafta fyrir hönd tveggja sjóða, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­­­tal LP.

Í ein­­­földu máli telja sjóð­irnir að aðgerðir stjórn­­­valda gangi gegn stjórn­­­­­ar­­­skrár­vörðum eigna­rétti sjóð­anna með „bóta­­­skyld­um“ hætti.

Sér­­­­stak­­­­lega var áhersla lögð á það að eng­ar ­neyð­­­­ar­að­­­­stæður séu uppi í hag­­­­kerf­inu þessi mis­­­s­er­in sem rétt­­­­læti ­eigna­­­­upp­­­­­­­töku af sjóð­un­­­­um. Staða efna­hags­­­­mála sé góð og óskuld­­­­settur gjald­eyr­is­­­­forð­i ­Seðla­­­­bank­ans hafi fyrir útboð numið um 400 millj­­­­örðum króna, eða sem nemur um 20 pró­­­­sent af lands­fram­­­­leiðslu. Kvik krón­u­­­­eign sé minni en sem þessu nemur og því ógn­i hröð útganga ekki hag­­­­kerf­inu.

Aflandskrón­u­eig­end­­­urnir telja að ­eigna­skerð­ingin sem frum­varpið feli í sér geti á engan hátt talist í sam­ræmi við jafn­­­ræð­is- og eign­­­ar­rétt­­­ar­á­­­kvæði stjórn­­­­­ar­­­skrá­­­ar­inn­­­ar. Í 72. grein stjórn­­­­­ar­­­skráar Íslands seg­ir: „Eign­­­ar­rétt­­­ur­inn er frið­­­helg­­­ur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenn­ings­þörf krefji. Þarf til þess laga­­­fyr­ir­­­mæli og kom­i ­fullt verð fyr­ir“. Þá sé aug­­­ljós­­­lega sé ver­ið að mis­­­muna þeim á grund­velli þjóð­ernis og búsetu, sem sé líka í and­­stöðu við skuld­bind­ingar Íslands á grund­velli samn­ings­ins um Evr­­ópska efna­hags­­svæðið (EES).

Þrátt fyrir það telja ráða­­­menn þjóð­­­ar­inn­­­ar, og Seðla­­­banki Íslands, að þessi ráða­­­gerð stand­ist eign­­­ar­rétt­­­ar­á­­­kvæði stjórn­­­­­ar­­­skráar Íslands. Davíð Þór Björg­vins­­­­son laga­­­­pró­­­­fess­or tekur undir það, sam­­­kvæmt umsögn hans sem hann skil­aði inn vegna frum­varps­ins sem varð að lokum seint í maí.

Á grund­velli þess­­arra skoð­ana sinna hafa þeir falið lög­­­manni sínum að kanna grund­­völl fyrir máls­höfðun á hendur íslenska rík­­inu.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um þá stöðu sem komin er upp í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None