Hvaða gjaldmiðill slær krónunni við á þessu ári? Bitcoin

Óhætt er að segja að árið 2016 hafi verið gott ár fyrir fjárfesta sem keyptu Bitcoin.

Bitcoin
Auglýsing

Íslenska krónan hefur styrkst mikið gagn­vart öllum helstu við­skipta­myntum heims­ins á árinu 2016. Gagn­vart evru nemur styrk­ingin um 16 pró­sentum og gagn­vart Banda­ríkja­dal er hún nú um 13 pró­sent, en eftir vaxta­hækkun Seðla­banka Banda­ríkj­anna síð­ast­liðin mið­viku­dag þá hækk­aði gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart krón­unni um tvö pró­sent. Fram að því hafði styrk­ing krón­unnar gagn­vart dalnum verið við­varð­andi og stöðug allt árið. Banda­ríkja­dalur kost­aði 136 krónur fyrir rúmu ári en kostar nú 114 krón­ur.

Krónan er þó ekki sú mynt sem hefur sýnt mesta styrk­ingu á mörk­uðum þetta árið. Raf­myntin Bitcoin slær öllum öðrum við, sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg. Á þessu ári nemur styrk­ing Bitcoin - eða ávöxt­unin eins og frekar á við - um 79 pró­sent. Sam­kvæmt reglu­verki fjár­mála­mark­aða í Banda­ríkj­unum eru við­skipti með raf­mynt­ina skil­greind eins og hrá­vöru­við­skipti fremur en gjald­miðla­við­skipt­i. 

Ein ein­ing af Bitcoin jafn­gildir nú 793 Banda­ríkja­döl­um, eða sem nemur ríf­lega 90 þús­und krón­um.

Auglýsing

Bloomberg segir ástæð­urnar fyrir vel­gengni Bitcoin meðal ann­ars vera vax­andi notkun fjár­magns­hafta í ein­hverri mynd á mörk­uð­um, sem hefur aukið við­skipti með Bitcoin. Þá hafa ýmsar aðrar nýjar regl­ur, sem eiga að draga úr áhættu í við­skiptum með gjald­miðla, leitt til þess að áhættu­sæknir fjár­festar hafa fært fjár­muni yfir í Bitcoin. Aðgerðir yfir­valda gegn ólög­legri starf­semi, og pen­inga­þvætti sem henni teng­ist, virð­ast einnig hafa leitt til auk­innar fjár­fest­ingar í Bitcoin.

Eftir mikla og hraða sveiflu, upp og niður, hefur Bitcoin verið á uppleið undanfarna mánuði.Allt frá stofnun árið 2008 hefur til­trúin á Bitcoin verið ein helsta hindr­unin fyrir því að þessi nýja vara, sem segja má að raf­myntin sé, nái að skjóta rótum á fjár­mála­mörk­uð­um. Árið 2016 hefur verið mik­il­vægt ár fyrir Bitcoin og unga sögu raf­mynta. 

Í við­tali við Bloomberg segir fjár­festir­inn Tim Dra­per, sem hefur stundað við­skipti með Bitcoin árum sam­an, að hann búist við því að verð­mið­inn á Bitcoin muni vaxa enn meira og jafn­vel marg­falt. Ástæðan er sú að hug­myndin um raf­mynt­ina hafi heppn­ast og nú séu fjár­festar sífellt betur að átta sig á mögu­leikum henn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None