Sænska ríkisstjórnin í kröppum dansi

Ráðherrar innan sænsku ríkisstjórnarinnar hafa sætt harðri gagnrýni vegna aðgerðarleysi þrátt fyrir vitneskju um alvarleg brot á persónuverndarlögum.

Auglýsing
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.

Sam­göngu­stofa Sví­þjóðar hefur gerst sek um alvar­legt mis­ferli á per­sónu­upp­lýs­ingum og sænska rík­is­stjórnin sætir gagn­rýni fyrir aðgerð­ar­leysi þegar upp komst um brot­in. Í frétt SVT í gær er atburð­ar­rás hneyksl­is­máls­ins rak­in, en ljóst er að ráð­herrar innan rík­is­stjórn­ar­innar hafi vitað af brot­inu í rúmt ár án þess að við­haf­ast neitt.

Öku­skír­teini og far­ar­tæki hers­ins

Sam­kvæmt frétt­inni byrj­aði Sam­göngu­stofa Sví­þjóðar að bjóða út tölvu­þjón­ustu til banda­ríska tölvurisans IBM í byrjun árs 2015 undir stjórn þáver­andi fram­kvæmda­stjóra, Maria Ågren. Með útboð­inu komust verk­takar IBM yfir ýmsar per­sónu­rekj­an­legar upp­lýs­ing­ar, meðal ann­ars allar sænskar öku­skír­tein­is­myndir sem og upp­lýs­ingar um far­ar­tæki sænska hers­ins.

Enn fremur segir sænska frétta­stofan að Ågren hafi þannig vís­vit­andi brotið fern lög (per­sónu­vernd­ar­lög, þjóðar­ör­ygg­is­lög, lög um opin­bera stjórn­sýslu og kröf­ur ­rík­is­stjórn­ar­inn­ar um upp­lýs­inga­vernd)  með ákvörðun sinni árið 2015, þrátt fyrir athuga­semdir innri end­ur­skoð­enda um lög­mæti henn­ar.

Aðgerð­ar­leysi eða þögg­un?

Seinna árið 2015 ráð­lagði sænsku örygg­is­lög­regl­unnar (Säpo) að útboð Sam­göngu­stof­unnar yrði hætt, en ferlið hélt áfram óhindr­að. Í kjöl­farið hóf lög­reglan rann­sókn á útboð­inu snemma árs 2016.

Ári seinna, í jan­úar 2017, sagði Maria Ågren upp hjá Sam­göngu­stofu, en að hennar sögn var það vegna ágrein­ings milli hennar og rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Fyrir þremur vikum síðan kom það hins vegar í ljós að Ågren hefur verið dæmd fyrir van­rækslu í starfi, en örygg­is­ráð Sví­þjóðar taldi brot hennar varða við þjóðar­ör­ygg­i. Stefan Löf­ven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóð­ar, við­ur­kennir sama dag að ljóst hefði verið um brot Ågren síðan í jan­ú­ar.

Auglýsing

Á síð­ustu dögum hafa svo komið fram ásak­anir um þöggun af hálfu rík­is­stjórn­ar­inn­ar, en ráð­herrar innan hennar sem vissu af mis­ferl­inu til­kynntu það ekki til utan­rík­is­nefnd­ar. Einnig hef­ur ­starfs­maður Sam­göngu­stof­unnar stigið fram og sagst hafa grunað að lög væru brotin með útboð­inu, en honum hefði verið skipað að „halda kjaft­i,“ sam­kvæmt SVT.

Rík­is­stjórnin í kröppum dansi

Í gær hélt Löf­ven svo blaða­manna­fund með yfir­manni örygg­is­lög­regl­unn­ar, yfir­manni sænska hers­ins og nýjum fram­kvæmda­stjóra Sam­göngu­stof­unn­ar, en þar sagði hann að hann bæri fullt traust til allra í sinni rík­is­stjórn, þrátt fyrir vit­neskju margra þeirra um meint brot í langan tíma. Það sem skipti mestu máli væri að skað­inn hefði verið lág­mark­aður og upp­lýs­inga­brest­ur­inn ­leið­rétt­ur.

Óvíst er hvaða afleið­ingar þetta mál mun hafa fyrir sænsku rík­is­stjórn­ina, en Jimmie Åkerson, for­maður Sví­þjóð­ar­demókrata, hefur lagt fram van­traust­s­til­lögu sem mun fara fyrir þing­nefnd á næstu dög­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnJónas Atli Gunnarsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar