Mynd: samsett

Nær enginn munur á fylgi Sósíalistaflokks og Flokks fólksins en bara annar nær inn

Engar breytingar eru á skiptingu borgarfulltrúa á milli kosningaspáa. Samfylkingin heldur áfram að bæta lítillega við sig og Sjálfstæðisflokkurinn þokast upp á við í fyrsta sinn í nokkrar vikur. Vinstri græn stefna í vonda niðurstöðu og handfylli atkvæða gæti skorið úr um hvort oddviti Sósíalistaflokks eða Flokks fólksins nær inn.

Engar breyt­ingar eru á skipt­ingu borg­ar­full­trúa milli flokka frá síð­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans og Dr. Bald­urs Héð­ins­son­ar. Átta flokkar mæl­ast enn með mann inni og þeir flokkar sem sitja í meiri­hluta í dag og eru í fram­boði mæl­ast enn með tólf borg­ar­full­trúa. Þar með myndi meiri­hlut­inn halda ef kosið yrði í dag.

Sam­fylk­ingin mælist sem fyrr stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni, líkt og hún hefur verið frá því í lok mars, með 31,8 pró­sent fylgi. Það myndi skila henni átta borg­ar­full­trúum og sá níundi er ekki langt frá því að ná inn líka.

Fylgi Sam­fylk­ingar hefur verið að aukast hægt og rólega á und­an­förnum vik­um. Í byrjun maí var það til að mynda 28,3 pró­sent en hefur hækkað í hverri spá sem gerð hefur verið síðan þá. Fylgið nú er nán­ast það sama og það var í kosn­ing­unum 2014, þegar Sam­fylk­ingin fékk 31,9 pró­sent atkvæða.

Niðurstöður kosningaspárinnar 25. maí 2018

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks tekur stökk upp á við í nýj­ustu spánni eftir að hafa dalað í hverri ein­ustu spá frá því í lok apr­íl. Nú mælist það 26 pró­sent sem myndi skila sjö borg­ar­full­trú­um. Sá síð­asti inn er þó valtur í sessi og lítið þyrfti út af að bregða til að borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks yrði sex.

Þessir tveir flokk­ar, Sam­fylk­ing og Sjálf­stæð­is­flokk­ur, eru í sér­flokki í borg­inni. Alls 57,6 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa þá og miðað við núver­andi stöðu myndu þeir fá 65 pró­sent borg­ar­full­trúa. Nær öruggt er að annar hvor odd­vita flokk­anna, Dagur B. Egg­erts­son eða Eyþór Arn­alds, verði borg­ar­stjóri í Reykja­vík eftir kosn­ing­arnar á morg­un.

Fram­sókn sækir á

Af þeim fram­boðum sem mæl­ast með minna fylgi hafa Píratar og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verið að styrkja stöðu sína mest á síð­ustu dög­um. Píratar mæl­ast nú með 9,7 pró­sent fylgi og eru mun nær því að ná inn þriðja manni sínum en að tapa öðrum þeirra sem nú mæl­ast inni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er einn þeirra flokka sem hefur verið með í kringum þriggja pró­senta fylgi sem mælist stundum inni í spám Kjarn­ans og stundum ekki.  Frá 17. maí hefur flokk­ur­inn hins vegar bætt við sig 0,6 pró­sentu­stigum og mælist með 3,5 pró­sent fylgi. Það ætti að skila Ingvari Mar Jóns­syni í borg­ar­stjórn.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur einnig verið að ná eft­ir­tekt­ar­verðum árangri og Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, odd­viti hans, er sem stendur inni. Miðað við nýj­ustu kosn­inga­spánna er fylgi Sós­í­alista­flokks­ins og Flokks fólks­ins það sama, eða 3,2 pró­sent. Það myndi því ekki muna nema hand­fylli atkvæða á því að Kol­brún Bald­urs­dótt­ir, odd­viti Flokks fólks­ins, myndi fella Sönnu Magda­lenu út.

Fjár­lægur draumur um fjóra

Vinstri græn halda áfram að falla í fylgi. Það mælist nú 7,3 pró­sent, sem er heilu pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk 2014. Sem stendur rétt dugar það til að ná inn tveimur mönnum en flokk­ur­inn er mun nær því að tapa öðrum þeirra en að ná inn þriðja mann­in­um. Þessi staða er athygl­is­verð í ljósi þess að fyrir tveimur mán­uðum síðan mæld­ist fylgi Vinstri grænna í kosn­inga­spánni 12,2 pró­sent.

Við­reisn hefur einnig verið að dala og virð­ist geta kvatt þann draum að ná öðrum manni síns lista, Pawel Bar­toszek, inn í borg­ar­stjórn nema að miklar breyt­ingar eigi sér stað næsta sól­ar­hring­inn. Fylgi flokks­ins, sem er 5,9 pró­sent, er nú í fyrsta sinn undir sex pró­sentum frá því í byrjun mars. Hæst mæld­ist það 7,6 pró­sent þann 10. apr­íl.

Mið­flokk­ur­inn, með Vig­dísi Hauks­dóttur í vík­inga­ham í far­ar­broddi, er einnig að missa flug­ið. Frá 8. maí hefur flokk­ur­inn misst 1,2 pró­sentu­stig og mælist nú með 5,5 pró­sent fylgi. Draumur Vig­dísar um að ná fjórum mönnum inn virð­ist því mjög fjar­lægur eins og stend­ur.

Eins og staðan er í dag myndu borg­ar­full­trú­arnir skipt­ast með eft­ir­far­andi hætt­i: 

  • Sam­fylk­ing myndi fá átta borg­ar­full­trúa

  • Sjálf­stæð­is­flokkur myndi fá sjö borg­ar­full­trúa

  • Píratar myndu fá tvo borg­ar­full­trúa

  • Vinstri græn myndu fá tvo borg­ar­full­trúa

  • Mið­flokkur myndi fá einn borg­ar­full­trúa

  • Við­reisn myndi fá einn borg­ar­full­trúa

  • Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi fá einn borg­ar­full­trúa

  • Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi fá einn borg­ar­full­trúa

Þróun fylgis framboða í kosningaspánni
Kosningaspáin er unnin í aðdraganda borgarstjórnarkosninga 2018.
B C D F M P S V Aðrir

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (25. maí) eru eft­ir­far­andi:

  • Gallup fyrir Við­skipta­blaðið 2. – 14. maí (22,4 pró­sent)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 17. – 21. maí (37,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. - 24. maí (40,0 pró­sent)

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ing­um. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­leg­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­um. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta bet­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­un­ar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unn­ar.

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Síð­asta kosn­inga­spáin fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar mun verða birt á morg­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar