Auðveldara að losa höft með inngöngu í ESB og upptöku evru

evrur-1.jpg
Auglýsing

Inn­ganga í Evr­ópu­sam­bandið og upp­taka evru sem gjald­mið­ils myndi fela í sér heppi­legra umhverfi til los­unar hafta með auknum stöð­ug­leika og þrótti íslensks atvinnu­lífs. Auð­veld­ara yrði að losa fjár­magns­höftin hratt og efna­hags­sveiflur við hraða losun yrðu minni.

Þetta er nið­ur­staða sviðs­mynda­grein­ingar á losun fjár­magns­hafta sem KPMG á Íslandi hefur unnið fyrir Félag atvinnu­rek­enda, Sam­taka Atvinnu­lífs­ins, Alþýðu­sam­band Íslands og Við­skipta­ráð Íslands. Grein­ing­in, sem var kynnt í morg­un, ber nafnið "Úr höftum með evr­u". Hana er hægt að lesa hér.

Meiri hraði þýðir meiri sveiflur



Í sviðs­mynda­grein­ing­unni var  unnið út frá þeirri for­sendu að ákvörðun hafi verið tekin um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið með upp­töku evru. Sviðs­mynd­unum var stillt upp út frá drif­kröft­unum „hag­vöxtur eða sam­dráttur í helstu við­skipta­lönd­um“ ann­ars vegar og „hæg eða hröð losun fjár­magns­hafta“ hins veg­ar. Svið­mynd­unum voru gefin heit­in; Íslenski draum­ur­inn, Von­ar­neisti, Lága drifið og Línu­dans.

Grein­ingin leiddi í ljos að hrað­ara los­un­ar­ferli hafta hefði í för með sér aunkar sveiflur í efna­hahags­líf­inu, sem myndi að stórum hluta orsakast af þróun krón­unn­ar. Sam­kvæmt nið­ur­stöðu grein­ing­ar­innar yrðu sveifl­urnar væg­ari og síður öfga­fullar í umhverfi þar sem upp­taka evru væri í far­vatn­inu. „Þannig verði umhverfið stöðugra vegna minni sveiflna í þróun krón­unn­ar, minni verð­bólgu og stöðugra vaxta­stigs,“ segir í grein­ing­unni.

Auglýsing

Þar segir einnig að óvissan um fram­tíð­ar­á­form um losun hafta hafi nei­kvæð áhrif á við­skipta­líf­ið. Trú­verðug áætlun um losun hafta sé því mik­il­væg fyrir til­trú fyr­ir­tækja fyr­ir­tækja og fram­tíð­ar­sýn þeirra. „Slík áætlun myndi þannig auð­velda fyr­ir­tækjum áætl­ana­gerð og ákvarð­ana­töku og birt­ast í auk­inni inn­lendri fjár­fest­ingu, minna brott­hvarfi og auk­inni nýliðun fyr­ir­tækja. [...]Af nið­ur­stöðum þess­arar grein­ingar og sam­an­burði við fyrri grein­ingu má draga þá ályktun að ákvörðun um inn­göngu í ESB með upp­töku evru feli í sér heppi­legra umhverfi til los­unar hafta með auknum stöð­ug­leika og þrótti íslensks atvinnu­lífs, hvort sem losun hafta verður hröð eða hæg. Jafn­framt virð­ist auð­veld­ara að losa fjár­magns­höftin hratt með upp­töku evru í far­vatn­inu og efna­hags­sveiflur við hraða losun verða minn­i“.

Gáfu til kynna stærri skref



Bæði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gáfu það sterk­lega til kynna í ræðum sínum á aðal­fundi Seðla­bank­ans í síð­ustu viku að stór skref í átt að losun hafta væru framund­an. Und­an­farin ár hefur los­unin fyrst og síð­ast átt sér stað í gegnum gjald­eyr­is­út­boð Seðla­bank­ans, sem nú hefur verið hætt.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri gaf til kynna í ræðu sinni á aðalfundi Seðlabankans í síðustu viku að stærri skref í átt að losun hafta væru framundan. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri gaf til kynna í ræðu sinni á aðal­fundi Seðla­bank­ans í síð­ustu viku að stærri skref í átt að losun hafta væru framund­an.

Mikið hefur verið rætt um mögu­legar leiðir í þeim efnum og sér­stak­lega þegar kemur að með­höndlun þrota­búa föllnu bank­anna Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans. Margir stjórn­mála­menn eru á þeirri skoðun að setja eigi upp háan útgöngu­skatt sem kröfu­höfum þeirra verði gert að greiða til að kom­ast út úr íslensku hag­kerfi með eignir sín­ar. Enn sem komið er hafa stjórn­völd hins vegar ekk­ert sýnt á spilin í þessum efn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None