Kunnugleg staða í íslenskum stjórnmálum einu ári eftir þingkosningar

Margt er sameiginlegt með þeirri þróun sem varð á fyrsta ári ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur eftir kosningarnar 2017 og þess sem hefur gerst á því ári sem liðið er frá síðustu kosningum.

þingsetning20221
Auglýsing

Flokk­arnir sem mynda rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur fengu sam­tals 52,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og byrj­aði líf­tíma sinn með 35 manna meiri­hluta, þótt það kvarn­að­ist úr honum síðar á kjör­tíma­bil­inu. Ári síðar var farið að halla tölu­vert undan fæti og fylgið mæld­ist ein­ungis 43,6 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði einn stjórn­ar­flokk­anna bætt ein­hverju við sig í könn­unum og mæld­ist með 25,8 pró­sent fylgi. Hinir tveir, Vinstri græn og Fram­sókn, höfðu tapað miklu fylgi, eða sam­tals 9,8 pró­sentu­stig­um.

Nokkrum mán­uðum síðar skall á kór­ónu­veiru­far­aldur og fylgi stjórn­ar­flokk­anna tók kipp upp á við. Verk­efni þeirra breytt­ist enda yfir nóttu í að vera fyrst og fremst við­bragð við heil­brigð­isvá og efna­hags­legum afleið­ingum þess far­ald­ur­s. 

Þegar kosið var á ný í sept­em­ber í fyrra gerði mik­ill kosn­inga­sigur Fram­sókn­ar­flokks­ins, og for­dæma­laust lið­hlaup Birgis Þór­ar­ins­sonar úr Mið­flokki í Sjálf­stæð­is­flokk. það að verkum að stjórn­ar­flokk­arnir styrktu stöðu sína á þingi. Stjórn­ar­flokk­arnir fengu 54,3 pró­sent atkvæða og eru nú með 39 þing­menn af 63 á þing­i. 

Auglýsing
Það sem af er kjör­tíma­bili er margt svipað því sem gerð­ist á fyrsta ári rík­is­stjórn­ar­innar eftir kosn­ing­arnar 2017. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur reyndar tapað smá fylgi, en það er vart mæl­an­legt, og hinir tveir flokk­arnir hafa skroppið skarpt sam­an. Alls hafa Vinstri græn misst þriðj­ung síns fylgis á kjör­tíma­bil­inu og tapað fleiri pró­sentu­stigum en nokkur annar flokk­ur. Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans mælist nú sjötti stærsti flokkur lands­ins. Fram­sókn er í frjálsu falli með 13,4 pró­sent fylgi og hefur misst bæði Sam­fylk­ingu og Pírata fram úr sér í stærð. Flokkur Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar er nú sá fjórði stærsti á þingi.

Með nákvæm­lega sama fylgi og ári eftir kosn­ing­arnar 2017

Í þing­kosn­ing­unum 2017 fengu Sam­fylk­ing­in, Píratar og Við­reisn sam­tals 28 pró­sent atkvæða. Ári síðar mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi þeirra 38,4 pró­sent í könn­unum Gallup. Sú staða hélst alls ekki út kjör­tíma­bilið og þegar kosið var að nýju í sept­em­ber 2021 fengu flokk­arnir þrír sam­tals 26,8 pró­sent atkvæða. Eftir fjögur ár í stjórn­ar­and­stöðu gegn rík­is­stjórn sem átti lítið sam­eig­in­legt sam­kvæmt hefð­bundnum póli­tískum kvörðum þá tap­aði hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja fylgi milli kosn­inga. Það átti ekki að vera hægt. 

Mestu mun­aði um hrun fylgis Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Hún mæld­ist með 17 pró­sent fylgi í októ­ber 2018 – og fór reyndar upp í 19,3 pró­sent skömmu áður sem var mesta fylgi sem flokkur annar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með á síð­asta kjör­tíma­bili – en fékk ein­ungis 9,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2021. 

Nú, ári eftir síð­ustu kosn­ing­ar, er Sam­fylk­ingin aftur á sigl­ingu og mælist næst stærsti flokkur lands­ins með 16,3 pró­sent fylgi. Þar skipta yfir­vof­andi for­manns­skipti í flokkn­um, sem munu eiga sér stað í lok þessa mán­að­ar, senni­lega miklu máli. Þá mun Kristrún Frosta­dóttir að óbreyttu taka við for­mennsku af Loga Ein­ars­syni. Fylgi flokks­ins er samt sem áður minna en það var ári eftir kosn­ing­arnar sem leiddu af sér fyrstu rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur. 

Sam­an­lagt fylgi hinnar frjáls­lyndu miðju er nú nákvæm­lega það sama og það var ári eftir kosn­ing­arnar 2017, eða 38,4 pró­sent. 

Níu flokka þing breytir stöð­unni

Nú mæl­ast hins vegar bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mun minni en þeir gerðu þá. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra tveggja var 16,5 pró­sent í lok októ­ber 2018 en mælist nú 10,5 pró­sent. 

Auglýsing

Þá hefur til­vist Sós­í­alista­flokks Íslands breytt stöð­unni í íslenskum stjórn­málum en hann mælist sem stendur með menn inni á þingi. Það þýðir að flokk­arnir á Alþingi yrðu níu tals­ins. Þótt Sós­í­alista­flokk­ur­inn bæti aðeins við sig einu pró­sentu­stigi í nýj­ustu könnun Gallup frá síð­ustu kosn­ingum þá myndi það skila honum þremur þing­mönnum í stað engra í dag.

Við það myndi rík­is­stjórnin falla, enda fengi hún ein­ungis 30 þing­menn ef kosið yrði í dag. Það er átta færri en hún fékk í síð­ustu kosn­ingum og níu færri en hún er með nú, þegar lið­hlaup Birgis Þór­ar­ins­sonar er talið með. 

Auk Sós­í­alista­flokks­ins myndu Sam­fylk­ingin og Píratar bæta við sig. Fyrr­nefndi flokk­ur­inn fengi fjóra nýja þing­menn ef kosið yrði í dag en  Píratar þrjá. 

Nokkur stjórn­ar­mynstur í kort­unum

Sú staða myndi teikna upp nokkra mögu­leika í rík­is­stjórn­ar­mynd­un. Í ljósi þess að núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf næði ekki meiri­hluta, og bæði Sam­fylk­ing og Píratar munu ekki mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, þá á stærsti flokkur lands­ins engan mögu­leika á tveggja eða þriggja flokka rík­is­stjórn­ar­sam­starfi miðað við stöðu mála í könn­unum í dag. 

Ef mynda ætti stjórn til hægri þyrfti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að fá til liðs við sig Fram­sókn, Við­reisn og annað hvort Mið­flokk eða Flokk fólks­ins til að ná þriggja manna meiri­hluta. 

Frjáls­lynda miðjan – Sam­fylk­ing, Píratar og Við­reisn – er sem stendur að mæl­ast með 24 þing­menn og ef miðju­flokk­ur­inn Fram­sókn myndi bæt­ast í hóp­inn væru flokk­arnir með 33 þing­menn og meiri­hluta. Önnur leið væri að horfa til vinstri, sleppa Við­reisn en bæta Vinstri grænum við fjög­urra flokka mynstrið og fá út sama meiri­hluta. Í slíku sam­starfi væri einnig hægt að bæta Sós­í­alista­flokknum við og ná þing­manna­fjöld­anum á bak­við stjórn­ina upp í 36.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar