Níu af hverjum tíu nýjum íbúum Íslands í ár koma erlendis frá – 2022 verður algjört metár

Erlendum ríkisborgurum fjölgaði um rúmlega íbúafjölda Akraness á fyrstu níu mánuðum ársins. Á sama tíma fluttu fleiri íslenskir ríkisborgarar frá landinu en aftur til þess. Alls hefur erlendum ríkisborgurum hérlendis fjölgað um 42.170 á tíu árum.

Mannflóran á Íslandi hefur breyst hratt síðastliðinn áratug. Í lok september 2012 voru erlendir ríkisborgarar 6,5 prósent íbúa. Í dag eru þeir 16,3 prósent þeirra.
Mannflóran á Íslandi hefur breyst hratt síðastliðinn áratug. Í lok september 2012 voru erlendir ríkisborgarar 6,5 prósent íbúa. Í dag eru þeir 16,3 prósent þeirra.
Auglýsing

Fleiri Íslend­ingar hafa flutt af landi brott en til lands­ins á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Alls hafa 490 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar flutt frá land­inu en til þess á umræddu tíma­bili. Á sama tíma hefur fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem flutt hafa til Íslands auk­ist um 8.270 umfram þá sem hafa flutt frá því. 

Þar af voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar 3.510 fleiri en brott­fluttir á öðrum árs­fjórð­ungi 2022 og 3.410 á þriðja árs­fjórð­ungi. Ein­ungis einu sinni áður í Íslands­sög­unni hafa aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar umfram brott­flutta verið fleiri þrjú þús­und á einum árs­fjórð­ungi. Það var á öðrum árs­fjórð­ungi 2017 þegar þeir voru 3.130 tals­ins.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hag­stofu Íslands um mann­fjölda á Ísland­i. 

2022 er metár

Mesti fjöldi aðfluttra erlendra rík­is­borg­ara umfram brott­flutta sem hafði komið til lands­ins innan heils árs kom á árinu 2017. Þá var fjöld­inn alls 7.910. Það liggur því fyrir að fjöldi erlendra sem kom til lands­ins umfram þá sem fluttu burt á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs er umfram þá tölu. Nýtt met hefur þegar verið sett á þessu ári. Fátt bendir til þess að sam­dráttur verði í aðflutn­ingi á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins og því verður árið 2022 að öllum lík­indum nýtt metár í inn­flutn­ingi erlendra rík­is­borg­ara til Íslands. 

Auglýsing
Alls hefur íbúum á Íslandi fjölgað um 9.230 það sem af er ári. Níu af hverjum tíu nýjum íbúum eru aðfluttir erlendir rík­is­borg­ar­ar. Til að setja umfang þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem bæst hafa við flóru lands­manna á þremur fyrstu árs­fjórð­ungum árs­ins 2022 í sam­hengi má benda á að þeir eru 350 fleiri en allir íbúar Akra­ness í lok sept­em­ber og næstum jafn margir og allir íbúar Sel­tjarn­ar­ness og Grinda­víkur sam­an­lag­t. 

Alls eru erlendu rík­is­borg­arar sem búa á Íslandi nú 62.990 tals­ins, eða 16,3 pró­sent allra íbúa lands­ins. Í lok sept­em­ber 2012 voru þeir 20.820 tals­ins og 6,5 pró­sent íbúa. Þeim hefur því fjölgað um 42.170 á sléttum ára­tug. Það eru 2.520 fleiri en búa í næst fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, Kópa­vogi, en íbúar þess voru 39.650 í lok síð­asta mán­að­ar. 

Flestir í Reykja­vík en fáir í Garðabæ

Flestir erlendu rík­is­borg­ar­arnir búa í höf­uð­borg­inni Reykja­vík, en þeir eru 27.460 tals­ins, eða 19,8 pró­sent íbúa borg­ar­inn­ar. Alls búa 56,4 pró­sent allra íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í Reykja­vík en 69,6 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem búa á svæð­inu. Ef Kjósa­hrepp­ur, þar sem 280 manns búa, er und­an­skilin búa fæstir erlendir rík­is­borg­arar sem sest hafa að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á Sel­tjarn­ar­nesi, eða 450 tals­ins. Þeir eru alls 9,6 pró­sent íbúa þess sveit­ar­fé­lags. Hitt sveit­ar­fé­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem er með hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara undir tíu pró­sentum er Garða­bær. Þar búa alls 1.100 erlendir rík­is­borgar sem eru 5,8 pró­sent allra íbú­a. 

Hjá þeim sveit­ar­fé­lögum sem eru með fleiri en þús­und íbúa er hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara af heild­inni hæst í Reykja­nes­bæ, þar sem 28,8 pró­sent íbúa eru fæddir ann­ars­staðar en á Íslandi.

Pól­verjar sex pró­sent íbúa lands­ins

Flestir þeirra sem hér búa og eru með annað rík­is­fang en íslenskt koma frá Pól­landi. Þeir voru 22.888 tals­ins í byrjun októ­ber sam­kvæmt tölum frá Þjóð­skrá. Það þýðir að um sex pró­sent íbúa lands­ins eiga rætur að rekja til Pól­lands. Því búa fleiri Pól­verjar á Íslandi en búa í heild í fjórða stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, Reykja­nes­bæ, en íbúa þess eru 21.840 alls. 

Alls hefur þeim sem eiga rætur að rekja til Pól­lands fjölgað um 1.697 á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs. Þeim hefur fjölgað meira en nokkrum öðrum hópi erlendra rík­is­borg­ara, þar með talið þeirra sem hafa komið til lands­ins sem flótta­fólk frá Úkra­ínu vegna stríðs­ins sem þar geis­ar. 

Aukn­ingin hefur þó hlut­falls­lega verið lang­mest í þeim hópi. Alls voru 239 með rætur í Úkra­ínu hér­lendis í byrjun des­em­ber í fyrra. Þeim hefur síðan fjölgað um 696 pró­sent, eða um 1.664 tals­ins og er nú 1.903. Þessi mikla fjölgun hefur gert það að verkum að rík­is­borg­arar Úkra­ínu eru nú í fimmta sæti yfir fjöl­menn­ustu erlendu rík­is­borg­ara­hópanna sem skráðir eru með búsetu á Íslandi. Í des­em­ber voru þeir sem eru með úkra­ínskt ríki­fang í 31. sæti yfir fjöl­menn­ustu erlendu hópanna sem hér búa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar