Stærsti kröfuhafi Íslands á tæpa þúsund milljarða

fors----a.jpg
Auglýsing

Eignir vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, stærsta ein­staka kröfu­hafa fall­inna íslenska banka, juk­ust um 65 pró­sent í fyrra. Alls nema bók­færðar eignir hans tæp­lega þús­und millj­örðum króna. Virði eign­ar­safns hans á Íslandi dróst hins vegar lít­il­lega sam­an.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi sjóðs­ins vegna árs­ins 2014 sem nýverið var skilað inn til írsku fyr­ir­tækja­skrá­ar­inn­ar, en Burlington, sem er fjár­magn­aður og stýrt af banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Dav­id­son Kempner, er með heim­ils­festi þar í landi.

Bók­færðar eignir hærri en árlegar tekjur íslenska rík­is­ins



Burlington er risa­vax­inn sjóð­ur. Alls eru eignir hans bók­færðar á 7,4 millj­arða dali, eða 938 millj­arða króna. Stærstur hluti þeirra er í Írlandi og Bret­landi. Til að setja þá tölu í sam­hengi má nefna að allar tekjur rík­is­sjóðs Íslands á næsta ári eru áætl­aðar 696,3 millj­arðar króna á næsta ári sam­kvæmt nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi, eða 74 pró­sent af eignum Burlington. Eignir sjóðs­ins juk­ust gríð­ar­lega á síð­asta ári, en þær voru um 565 millj­arðar króna í lok árs 2013.

Uppi­staðan í eignum sjóðs­ins eru fjár­fest­inga­eign­ir, meðal ann­ars skulda­bréf útgefin af bönkum og ýmis konar fast­eign­ir. Allar eignir eru bók­færðar á gang­virði í gegnum rekstr­ar­reikn­ing. Þær eru því ekki færðar á mark­aðsvirði, enda eina leiðin til að vita hvert mark­aðsvirði þeirra er að selja þær. Miðað við þróun á bók­færðu virði eigna Burlington á Íslandi í árs­reikn­ingum sjóðs­ins und­an­farin ár virð­ast þær mun frekar vera bók­færðar á því verði sem eign­irnar voru keyptar á.

Auglýsing

Á miklar eignir á Íslandi



Og Burlington á gríð­ar­lega mikið af eignum á Íslandi. Þær hefur hann sankað að sér í gegnum árin. Á árinu 2013 jók sjóð­ur­inn til að mynda eignir sínar á Íslandi um 70 pró­sent og í lok þess árs voru 18 pró­sent af fjár­fest­inga­eignum hans á Íslandi. Bók­fært virði þeirra var 738 millj­ónir dala, eða um 95 millj­arðar króna.

Eignir sjóðs­ins á Íslandi dróg­ust lít­il­lega saman á síð­asta ári án þess að það sé sér­stak­lega útskýrt í árs­reikn­ingn­um. Í lok síð­asta árs voru þær um bók­færðar á um 700 millj­ónir dali, eða um 90 millj­arða króna. Til sam­an­burðar voru bófærðar eignir Burlington hér­lendis 55,5 millj­arðar króna í lok árs 2012. Alls voru eignir Burlington á Íslandi um tíu pró­sent af fjár­fest­ing­ar­eignum hans í lok síð­asta árs.

Mark­aðsvirðið mun hærra en bók­fært virði



Mark­aðsvirði eigna Burlington á Íslandi er mun hærra en 90 millj­arðar króna. Miðað við væntar end­ur­heimtir í þrotabú Glitnis eru nafn­virði krafna Burlington í bú bank­ans, sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum Kjarn­ans um umfang þeirra, til að mynda að minnsta kosti vel á þriðja hund­rað millj­arð króna. Miðað við að kröfu­hafar Glitnis geta búist við að fá allt að 33 pró­sent af nafn­virði krafna sinna greitt, gangi áform um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags eft­ir, má áætla að raun­virði þeirra krafna sem Burlington á á slitabú Glitnis sé um 81 millj­arður króna, miðað við síð­ustu birtu upp­lýs­ingar um umfang krafna sjóðs­ins.

Burlington er stærsti einstaki kröfuhafi slitabús Glitnis. Burlington er stærsti ein­staki kröfu­hafi slita­bús Glitn­is.

Sjóð­ur­inn er einnig einn stærsti kröfu­hafi slita­bús Kaup­þings. Í nóv­em­ber 2012 átti hann kröfur í búið að nafn­virði 109 millj­arðar króna. Miðað við væntar end­ur­heimtir kröfu­hafa Kaup­þings ætti sú eign að skila Burlington um 29 millj­örðum króna þegar búinu verður slit­ið. Vert er að taka fram að eignir Burlington og tengdra aðila gætu hafa auk­ist eða dreg­ist saman frá því að fjöl­miðlar komust síð­ast yfir upp­lýs­ingar um umfang krafna í búið. Heim­ildir Kjarn­ans herma þó að þessir aðilar séu enn á meðal stærstu kröfu­hafa í bú Kaup­þings.

Til við­bótar á Burlington fullt af öðrum eignum hér­lend­is. Sjóð­ur­inn á umtals­verðar kröfu í bú Lands­bank­ans, er á meðal eig­anda ALMC (áður Straumur fjár­fest­inga­banki), á beint 13,4 pró­sent hlut í Klakka (sem seldi stóran hlut í VÍS í fyrra og á allt hlutafé í Lýs­ingu) og keypti 26 millj­arða króna skuldir Lýs­ingar skömmu fyrir ára­mót 2013. Auk þess hefur sjóð­ur­inn verið að kaupa hluti í Bakka­vör í Bret­landi af miklum móð, en þær eignir eru skráðar sem breskar þótt aðrir stórir eig­endur séu að mestu íslenskir og rætur fyr­ir­tæk­is­ins liggi hér­lend­is.

Því er ljóst að mark­aðsvirði eigna Burlington á Íslandi, það fé sem myndi fást fyrir þær ef eign­irnar yrðu seld­ar, er miklu hærra en það virði sem þær eru bók­færðar á í bókum sjóðs­ins.

Er fjár­magn­aður af Dav­id­son Kempner



Burlington sjóð­ur­inn er fjár­magn­aður af Dav­id­son Kempner European Partners í London, sem er dótt­ur­fé­lag banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Dav­id­son Kempner, eins stærsta vog­un­ar­sjóðs í heimi. Sjóðir Dav­id­son Kempner eru með um 25,4 millj­arða dali, tæp­lega 3.300 millj­arða króna, í stýr­ingu. Til sam­an­burðar var verg lands­fram­leiðsla Íslands á síð­asta ári 1.989 millj­arðar króna, eða 60 pró­sent af því sem sjóðir Dav­id­son Kempner stýra.

Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig meðal ann­ars í að hagn­ast á við­skiptum með kröfur í gjald­þrota fyr­ir­tækj­um. Hlutir í Burlington eru í eigu alls tólf sjóða Dav­id­son Kempner. Hverjir end­an­legir eig­endur hlut­deild­ars­kirteina í þeim sjóðum eru veit eng­inn nema stjórn­endur Dav­id­son Kempner.

Burlington, sem er skráður til heim­ilis á Írlandi, var stofn­aður 24. apríl 2009. Hann er í raun skráð í eigu þriggja góð­gerð­ar­sam­taka.  Í árs­reikn­ingi Burlington kemur his vegar líka fram að stjórn­andi sjóðs­ins (e. cor­porate administrator and company secret­ary) sé dótt­ur­fé­lag þýska bankaris­ans Deutsche Bank, Deutsche International Cor­porate Services Limited á Írlandi.

Deutsche Bank átti mikið undir í íslenska efnahagshruninu. Og virðist enn eiga mikið undir við lausn á þeim vandræðum sem hrunið olli. Deutsche Bank átti mikið undir í íslenska efna­hags­hrun­inu. Og virð­ist enn eiga mikið undir við lausn á þeim vand­ræðum sem hrunið oll­i.

Mikil sam­skipti við Deutsche Bank



Sam­kurl Burlington við Deutsche Bank hefur því verið nokkuð mik­ið. Dótt­ur­fyr­ir­tæki þýska bankarisans, Deutsche Bank AG í Amster­dam, heldur til að mynda á 99 pró­sent af hlut­deild­ars­kirteinum í ALMC. Heim­ildir Kjarn­ans herma að Burlington eða sjóðir Dav­id­son Kempner séu end­an­legir eig­endur hluta þeirra skirteina. Þá keypti Burlington 26 millj­arða króna skuldir Lýs­ingar af Deutsche Bank skömmu fyrir síð­ustu ára­mót.

Deutsche Bank var einn stærsti, ef ekki stærsti, lán­veit­andi íslensks efna­hags­lífs fyrir hrun. Það vakti því athygli sum­arið 2014 þegar hol­lenski seðla­bank­inn til­kynnti að hann hefði selt Deutsche Bank það sem eftir stóð af Ices­a­ve-­kröfum bank­ans, alls um 700 millj­ónir evra. Kjarn­inn greindi frá því 29. ágúst 2014 að bank­inn hefði keypt kröf­urnar fyrir aðra, og væri búinn að selja þær áfram.

Kaup­end­urnir voru fleiri en tveir og á meðal þeirra voru þekktir vog­un­ar­sjóðir sem eiga aðra hags­muni á Íslandi. Til­gang­ur­inn er að styrkja stöðu þeirra sem eiga mest undir þegar kemur að upp­gjöri þrota­búa föllnu bank­anna. Þar á eng­inn meira undir en Burlington Loan Mana­gement.

Sala hol­lenska seðla­bank­ans á Ices­a­ve-­kröfum kom í kjöl­farið af því að bresk sveit­ar­fé­lög, sem áttu einnig slíkar kröf­ur, seldu þær í febr­úar síð­ast­liðn­um. Þegar til­kynnt var um þá sölu kom ekki fram hverjir kaup­endur krafn­anna væru.

Kjarn­inn greindi frá því í des­em­ber í fyrra að Deutsche Bank væri orðin þriðji stærsti kröfu­hafi í slitabú Glitnis með kröfur að nafn­virði upp á 157,1 millj­arð króna. Bank­inn hefur bætt við sig miklu magni krafna frá byrjun árs 2013. Þeir sem vel þekkja til í kröfu­hafa­iðn­að­inum telja öruggt að Deutsche Bank sé að halda á þessum kröfum sem bank­inn er skráður fyrir á Glitni fyrir ein­hverja aðra. Bank­inn sé milli­lið­ur, ekki end­an­legur eig­andi þeirra.

Sátu nær örugg­lega við samn­ings­borðið



Í aðdrag­anda þess að íslensk stjórn­völd kynntu áætlun sína um losun fjár­magns­hafta í júní síð­ast­liðnum höfðu átt sér stað við­ræður við stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna í nokkra mán­uði. Lee Buchheit, ráð­gjafi fram­kvæmda­hóps um losun hafta sem lék lyk­il­hlut­verk í þeim samn­ingum sem nú liggja fyrir um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags og losun hafta, sagði í við­tali við Kjarn­ann í júní að við­ræð­urnar hafi verið við þrjá til fjóra stærstu kröfu­hafa í hverju slita­búi fyrir sig, sem taldir voru leið­andi í kröfu­hafa­hópi þeirra.

Lee Buchheit og félagar ræddu við þrjá til fjóra stærstu kröfuhafahópanna í hverju slitabúi fyrir sig. Burlington hefur nær örugglega átt þar fulltrúa. Lee Buchheit og félagar ræddu við þrjá til fjóra stærstu kröfu­hafa­hópanna í hverju slita­búi fyrir sig. Burlington hefur nær örugg­lega átt þar full­trú­a.

Telja verður nær öruggt að full­trúar Burlington hafi verið í þessum hópi, þar sem sjóð­ur­inn er án efa stærsti ein­staki kröfu­hafi föllnu íslensku bank­anna.

Sá sem stýrir málum Burlington og Dav­id­son Kempner hér­lendis heitir Jer­emy Clem­ent Lowe. Innan kröfu­hafa­iðn­að­ar­ins eru allir sam­mála um að Lowe sé lang­virkastur allra kröfu­hafa hér­lend­is. Hann dreifi hins vegar verk­efnum á milli inn­lendra aðila, not­ast við þjón­ustu að minnsta kosti þriggja fjár­mála­fyr­ir­tækja og nokk­urra mis­mun­andi lög­mann­stofna.

Þessi taktík gerir það að verkum að eng­inn hefur heild­ar­mynd af því sem Lowe og Burlington eru að gera á Íslandi nema hann sjálfur og þeir sem með honum starfa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None