Stál í stál hjá Grikkjum og Evrópusambandinu - spennan magnast

Euro_coins_and_banknotes.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, Yanis Varoufa­kis, seg­ist vera til­bú­inn að gera „hvað sem er“ til þess að ná sam­komu­lagi við kröfu­hafa lands­ins, þar á meðal Evr­ópu­sam­bands­rík­in, um breytta skil­mála fyrir end­ur­greiðslu skulda lands­ins. Breska rík­is­út­varpið BBC greindi frá þessu í gær­kvöldi.

Fjár­mála­ráð­herrar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna stóðu upp frá samn­inga­borð­inu í gær­kvöldi og lét for­maður samn­inga­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins í við­ræð­unum við Grikkja, Jer­oen Dijs­sel­bloem, þau orð falla að nú væri tím­inn orð­inn naum­ur. Hann tal­aði fyrir því að fram­lengja áætl­un­ina, upp á 240 millj­arða evra, sem unnið hefur verið eftir frá því að Grikkjum voru veitt neyð­ar­lán í fjár­málakrepp­unni, fyrst 2010 og síðan aftur 2012. Áætl­unin rennur út 28. febr­ú­ar, nema að hún hafi þá þegar verið fram­lengd með sam­komu­lagi milli Grikkja og Evr­ópu­sam­bands­ins.

Áætlun eða ekki áætl­un, það er spurn­ingin



Það sem helst er deilt um er einkum tvennt. Ann­ars vegar er það krafa Varoufa­kis og félaga í Syr­iza flokkn­um, um að falla frá nið­ur­skurði hjá hinu opin­bera og eigna­sölu rík­is­ins í Grikk­landi, og end­ur­semja um greiðslu­byrði skuld­anna, og hins vegar kröfur Syr­iza um frek­ari afskriftir skulda rík­is­ins, eða lækkun á höf­uð­stól þeirra. Dijs­sel­bloem og félagar eru með áhrifa­ríka og ein­falda nálgun á við­ræð­urn­ar; höldum okkur við áætl­un­ina, hún er að virka.



For­svars­menn samn­inga­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa bent á að Grikkir hafi sýnt jákvæð efna­hags­leg merki, ítrek­að, frá því að áætl­un­inni var hrint í fram­kvæmd og að þessi merki sýni að hún sé að reyn­ast vel. Varoufa­kis er þessu algjör­lega ósam­mála og segir inn­viði Grikk­lands fúna, atvinnu­leysi hafi ekk­ert lækkað og að nið­ur­skurð­ur­inn hjá hinu opin­bera hafi veikt almanna­þjón­ustu mik­ið. Atvinnu­leysi í Grikk­landi mælist nú tæp­lega 26 pró­sent, en með­al­talið í Evr­ópu­sam­band­inu er ríf­lega ell­efu pró­sent. Varoufa­kis segir nauð­syn­legt að breyta skil­yrðum lán­töku Grikkja þannig, að greiðslu­byrðin sveiflist með næmum hætti í takt við hag­vöxt. Það sé ekki raunin nú, og það ráði almenn­ingur í Grikk­landi ekki við til lengd­ar.

Tím­inn tikkar



Nú hafa Grikkir ell­efu daga til þess að ná sam­komu­lagi við kröfu­hafa sína, einkum Evr­ópu­sam­bandið og Seðla­banka Evr­ópu, ann­ars er voð­inn vís. Ýmsir hafa spáð því að nú sé raun­veru­leg hætta á því að Grikkir yfir­gefi evr­una, og taki upp eigin mynt á nýjan leika, en Varoufa­kis hefur talað allt slíkt nið­ur. Grikkir vilji áfram vera hluti af evr­unni, en á eigin for­send­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None