Tölvur kunna að læra í gervigreindarbyltingu Google

ulfar_erlingsson_2.jpg
Auglýsing

Bylt­ing hefur orðið í þróun gervi­greind­ar, segir Úlfar Erlings­son, starfs­maður Google í tölvu­ör­ygg­is­rann­sókn­ar­deild. Google er að hans sögn í far­ar­broddi í þróun gervi­greindar enda hefur fyr­ir­tækið þegar komið tækn­inni í notkunn meðal almenn­ings. Í nýj­ustu upp­færslum for­rita frá Google getur not­and­inn fært sér lær­dóm tölva í nyt, hvort sem það er til þess að þýða texta eða leita að myndum af pít­sum í mynda­safni sínu.

Úlfar kennir masterskúrs í greina­lestri við Háskólan í Reykja­vík. Þar sem hann und­ir­býr nem­endur undir að stunda vís­inda­starf í tölvu­ör­yggi. Sjálfur lærði hann tölv­un­ar­fræði og stærð­fræði í Háskóla Íslands og tók dokt­ors­próf í kerfum og tölvu­ör­yggi við Corn­ell-há­skóla í Banda­ríkj­un­um. Á haust­ráð­stefnu Advania í Hörpu á föstu­dag flutti Úlfar fyr­ir­lestur um þessa bylt­ingu í lær­dómi tölva.

Auglýsing


„Við erum í raun og veru í miðj­unni á bylt­ingu á því hvernig tölvur geta gert það sem hingað til hefur aðeins verið á færi mann­eskja,“ segir Úlfar í sam­tali við Kjarn­ann. Hlusta má á sam­talið í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan. Hann útskýrir þessa bylt­ingu þannig að fyrir fjórum árum hafi vís­inda­menn farið að vinna með svokölluð tauga­net til þess að vinna úr gríð­ar­legu magni upp­lýs­inga sem tauga­netin geta svo lært af. „Þá geta þau leyst verk­efni sem eru aðeins á færi mann­eskja. Til dæmis horft á mynd og skilið strax hvað stendur á mynd­inni, hlustað á ein­hvern tala og ekki aðeins gripið það að þarna sé verið að tala eitt­hvað tungu­mál heldur þýtt merk­ingu þess á annað tungu­mál.“



„Það sem er meki­leg­ast í þessu er að það er sami hug­bún­að­ur­inn sem er bak við allar þessar þjón­ust­ur,“ útskýrir Úlfar og vísar þar í nýj­ungar í Google Photos, Google Translate og þar fram eftir göt­un­um. „Það er sama vélin sem er notuð til að túlka myndir yfir í orð eins og kött­ur, sól­ar­lag eða barn. Sama tækni er notuð til að þýða úr þýsku yfir á kín­versku.“



Úlfar spjallar um nýj­ungar Goog­le, nútíma gagna­nám úr gagna­gnótt og tölvu­ör­yggi í spjalli við Kjarn­an. Hægt er að hlusta á við­talið í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Úlfar Erlendsson Úlfar beitir stærð­fræði í starfi sínu hjá Google.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None